Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1967, Blaðsíða 94
96
úrulegar aðstæður. Líklega fjölgar gulstör aðallega með kyn-
lausri æxlun. Nýlegar rannsóknir frá Wyoming benda til,
að auðveldast sé að láta stararfræ spíra með því að geyma
þau í 7 daga í kulda og ljósi (7).
VIII. Helztu ályktanir.
Miðað við núverandi verðlag er bersýnilega hagnaður að
því að bera tilbúinn áburð á Hvanneyrarengjarnar, hins
vegar er vafasamur hagur að því á engjum Skriðuklausturs.
Með verðlagi á tilbúnum áburði 1966 kostar heyhestur upp-
skeruaukans á Hvanneyri um 40 kr., ef borið er á 50 kg/ha
af köfnunarefni og um 60 kr., ef borið er á 100 kg/ha af
köfnunarefni. Hins vegar verður uppskeruaukinn dýr, ef
fosfór er borinn á. Gera má ráð fyrir, að minni skammtar
af fosfór borguðu sig. Kalíáburður borgar sig ekki.
Engið á Skriðuklaustri er ófrjótt, en svarar sæmilega fos-
fóráburði. Heyhesturinn, sem fæst vegna tilbúins áburðar
verður dýr. Líklega hefði þó fengizt ódýrara hey, ef borið
hefði verið á dálítill fosfór með 50 kg/ha af köfnunarefni.
í verðútreikningum hér er verð á áburði á Hvanneyri og
TAFLA 8. Verð uppskeruauka í tilrauninni 19—56 frá
Hvanneyri. Miðað er við uppskerumeðaltal 10 ára og verð
á áburði 1966.
Uppskeru- auki hey hkg/ha Verð á áburði kr. pr. ha Verð pr. heyhest kr.
b-a. (50 kg/ha N borið á) 15,5 600,00 39,00
c-b. (50 kg/ha N bætt við b) 10,2 600,00 59,00
d-c. (30,6 kg/ha P bætt við c) 3,6 490,00 136,00
e-d. (66,4 kg/ha K bætt við d) 1,8 500,00 277,00