Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1967, Blaðsíða 113
115
uppskeru á heyi, jafnvel þótt vitað sé að niðurrif hinna líf-
rænu leifa sé mjög hægfara.
Fáar niðurstöður eru til um brennisteinsmagn í íslenzk-
um jarðvegi og enn minna þó vitað um hvernig brenni-
steinninn finnst bundinn í moldinni. Hvort mun þar finn-
ast gips eða súlfat bundið á annan hátt eða er brennisteinn-
inn aðallega í lífrænum leifum jarðvegsins? Ekki verður í
þessari grein gerð nein ýtarleg skil á þessu, en sumurin 1966
og 1967 var reynt hjá Rannsóknarstofu Norðurlands að
ákvarða leysanlegt magn af súlfati í jarðvegi og síðan sam-
kvæmt heimatilbúinni aðferð magn af brennisteini í líf-
rænum leifum. Þá er og í greinarkorni þessu athugað sam-
hengi á milli brennisteinsmagns og ýmissa annarra þátta,
svo sem glæðitaps, pH, sprettu og aldurs á túnum er sýni
voru tekin úr.
AÐFERÐIR.
a) Ákvörðun á brennisteini: Aðferð I, tíering með EDTA. (3).
Grundvöllur þessarar aðferðar er sá, að súlfatjónirnar í sýninu eru
felldar út sem BaS04. í prufuna er sett meira magn af BaCl2 en gera
má ráð fyrir að sé af súfatjónum í sýninu. Það baríum, sem ekki fellur
út, er síðan mælt með EDTA (Triplex III) títeringu. í sýnum þar sem
eitthvað er af kalsíum (Ca) og magníum (Mg) þarf að ákvarða magn
þeirra sérstakega og er það einnig gert með EDTA títeringu. Ýmsar
jónir svo sem af Fe, Al, Mn og Cu sem myndu trufla mælinguna eru
útilokað með kalíumcyaníð-tríetanólamín upplausn. Til að reikna út
brennisteinsmagnið er eftirfarandi líking notuð:
mg brennisteinn (S) = (H -f- B + M — T) 32.
Þar sem H eru meq. EDTA notaðir við Ca -f Mg-títeringuna, B eru
meq af BaCl2, M eru meq af MgCl2 notað við bakatíteringu og T eru
meq notaðir alls af EDTA.
Aðferð II. Gruggmæling. (Turbidimetric sulfate determination) (3).
Notað er baríumklóríð til að fella út súlfatjónirnar á þann hátt, að
það fæst gruggug (kolloid) upplausn af BaSO^. Sýni (oftast 2 ml) er
sett í 25 ml mæliflösku og þynnt dálítið. H. u. b. 1 g af BaCl2 (krist-
allar, síaðir gegnum 0,5 mm síu) bætt í og hrist í eina mínútu, síðhn
bætt á ögn af upplausn til að gera gruggupplausnina stöðuga og fyllt
með vatni í 25 ml, þar á ofan enn hrist í eina mínútu. Gruggið er
mælt á ljósmæli við bylgjulengd 400 mu, 5—30 mín. eftir að sýnið er
tilbúið. Samanburðarlínurit er gert með því að mæla grugg í upplausn-