Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1967, Blaðsíða 39
41
verið búin að segja þetta áður, því eins og skýrsla þessi ber
með sér hafa langflestar kýrnar í eftirlitsfélögunum borið í
september til desember, en það er bezti burðartíminn.“ Ar-
ið 1910 var landsmeðaltal í nautgriparæktarfélögunum 2234
kg mjólk. Lökust er útkoman í júní og júlí en bezt í nóvem-
ber og desember. Munurinn er skiljanlega minni þá en nú.
Þá er mjólkurmagn á kú 393 kg meira í nóvember en júlí.
Ekki eru stórar sveiflur á fituprósentunni þá fremur en nú.
Það er athyglisvert og þarfnast fyllstu umhugsunar að þetta
vandamál með burðartímann, sem var vitað fyrir 56 árum,
er í dag sízt minna, en að því leyti mikið alvarlegra, að árið
1910 bera 84% af kúnum þrjá fyrstu og þrjá síðustu mánuði
ársins, en aðeins 34,8% af kúnum í margnefndum félögum
á sama tíma. Við þennan samanburð væri eðlilegt að gera þá
athugasemd, að ekki sé raunhæft að ber saman landsmeðal-
tal fyrir 56 árum við niðurstöður tveggja félaga nú. Þetta
kann að vera rétt, en við nánari athugun sýnist vera hægt að
rökstyðja þetta. Með því að bera saman heildarinnlegg í
Mjólkursamlag K.E.A. árið 1966 annars vegar og liins vegar
innlegg frá þessum tveim hreppum, sem félögin eru starf-
andi í, hvern mánuð ársins, verður samræmið mjög gott.
Þetta ár komu 37,9% af allri ársmjólkinni í mjólkursamlag-
ið tímabilið október—marz, en mjólkurinnleggið úr hrepp-
unum tveim var 37,7% þessa sex mánuði, eða næstum ná-
kvæmlega það sama. Vert er að benda á þann litla mun, sem
kemur fram á prósent kúnna beztu burðarmánuðina og
prósent mjólkurinnleggs á sama tíma. I fljótu bragði hefði
mátt ætla, að þessi munur væri meiri. Þetta má þó ljóst vera,
því heildarafurðirnar liggja ekki fyrst og fremst í hárri nyt
fyrst eftir burð, heldur í því að kýrnar haldi vel á sér. Vetr-
arbærurnar halda vel á sér og verulegur hluti af afurðum
þeirra kemur til innleggs að sumrinu. Sumarbærurnar halda
verr á sér og skila tiltölulega litlum afurðum vetrarmánuð-
ina. Það má því ekki rugla saman hagstæðum burðarmán-
uðum og mjólkurinnleggi á sama tíma.
Á síðastliðnum 50 árum hefur burðarhlutfall kúnna al-
gerlega snúizt við með tilliti til vetrar- og sumarbæra. Án