Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1967, Blaðsíða 35
37
una. Einnig staðfestist það, að afurðir metnar í fitueining-
um falla á sama veg og ársnytin.
3. Kjarnfóðurgjöfin er eðliiega meiri vetrarmánuðina, en
sumarmánuðina. Þessi munur er þó varla meiri en ætla
mátti. Mest er kjarnfóðurgjöfin hjá janúarbærunum 829 kg
en í júlí 555 kg.
Síðasti dálkur töflunnar er hve mörg kg mjólkur koma á
móti hverju kg kjarnfóðurs. Það er athyglisvert þegar frá
eru taldir september og október þá er útkoman lík alla mán-
uðina. Hér verður ekki farið út í það stóra spursmál, hve-
nær á árinu sé hagkvæmast að framleiða mjólkina, en óneit-
anlega hlýtur að vakna sú spurning, þegar hér er komið,
hvort Svarfdælingar, sem þurfa að flytja mjólk sína langan
veg og oft erfiðan, ættu ekki þrátt fyrir það, að dreifa burð-
artíma kúa sinna jafnar á árið en nú er. Nú er það svo, að
flutningum er haldið uppi allan veturinn meðan gengið
getur. Hér vantar rannsóknir sem miðuðust að því að finna
hvað hagstæðast væri.
í töflu 3 er svo að finna niðurstöður úr félagi Önguls-
staðahrepps.
Þar sem öll aðalatriði hníga eindregið í sömu átt og í
töflum f og 2, er ekki ástæða til að skýra einstaka liði sér-
staklega. Benda má þó á það, að burðartíminn dreifist jafn-
ara á árið í Öngulsstaðafélaginu en í Svarfaðardal. Þá er
minni munur á hæstu dagsnyt í Öngulsstaðafélaginu og
ennfremur minni munur á heildarafköstum beztu vetrar-
mánuðina og lökustu sumarmánuðina. Þetta styrkir þá skoð-
un, að sumarbeitin sé almennt betri í Öngulsstaðahreppi en
Svarfaðardal, en aftur á móti virðist vetrarfóðrunin vera
svipuð. Enn má nefna að kýr í Öngulsstaðafélaginu, sem
bera í nóvember og desember skila mikið meiri afurðum
þessa mánuði en kýr bornar í sömu mánuðum í Svarfaðár-
dal, og er sennilegt að ætla, að það gæti stafað af því, að kýr
í Öngulsstaðafélaginu væru betur haldnar eftir sumarið og
því fyrr komnar í gott lag, til þess að hefja nýtt mjaltaskeið.
Afköst kúnna í þessum tveimur félögum eru lík fimm fyrstu
mánuði ársins, en úr því er munurinn verulegur, enda kem-