Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Page 2

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Page 2
fengið innsýn í þessi fræði á námsárum erlendis. Má þar til nefna í fyrstu röð Þórð Thoroddi, er lagði stund á náttúru- fræði með viðtengdum hliðargreinum í Danmörk og Svíþjóð á síðari hluta 18. aldar, enda hefur hann hlotið þann heið- urstitil að vera viðurkenndur fyrsti búfræðingur á fslandi. Ekki skal þó dregin fjöður yfir það, að fleiri voru þeir á þeirri öld, sem lögðu nokkuð af mörkum til framdráttar búskaparlegum viðhorfum. Má í því sambandi nefna Ólaf Ólavíus, Eggert Ólafsson, Gísla Magnússon á Hlíðarenda (Vísa Gísla) og þó sérstaklega sr. Björn Halldórsson í Sauð- lauksdal, en frá hans hendi komu „á þrykk“ fyrst: Korte Beretninger om nogle Forsög til Landvæsenets og især Haugedyrkningens Forbedring i Island, er prentaður var árið 1765 og svo hinar víðfrægu bækur hans: Atli og Arnbjörn. Atli kom frá hendi Björns sem handrit árið 1777 og var bókin fyrst prentuð í Hrappsey 1780. Grasnytjar komu á prent 1783 og fleira mætti telja búfræðilegs efnis frá hendi Björns, svo sem Lachanologi eða matjurtabók, en um það eru skiptar skoðanir hvort Björn eða mágur hans, Eggert Ólafs- son, var höfundur hennar, en hún var prentuð í Kaup- mannahöfn árið 1774. Þetta voru bókmenntir til fróðleiks fyrir bændur. Allt voru þetta ávextir, sumpart grundvallaðir á eigin reynslu og að öðru leyti fengnir úr þeim fræðum, sem höfundi voru kunn og að hans hyggju mættu efla framfarir meðal búenda, styðja búhætti og hagnýta auðlindir náttúrunnar svo sem best yrði gert. Árin liðu í aldanna djúp. Viðhorf til eiginlegrar búfræði- menntunar að öðru leyti voru lítt rækt hér á landi, svo sögur hermi, en upp rann síðar sá tími er danska stjórnin hlutaðist til um að nokkrum Islendingum var boðin vist til náms í búskap í Danmörk, á árunum 1815-1817. Svo er sagt að þrír piltar hafi þegið boðið og að lokinni þeirri dvöl gerðust þeir forgöngumenn um búskaparlegar athafnir svo eftirtekt vakti, en þeir voru: Þorsteinn Daníelsson, Skipalóni við Eyjafjörð, Jón Þorláksson frá Skriðu í Hörgárdal og Þorvaldur Sívertsen úr Dalasýslu. 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.