Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Page 41
vel. Talið er best að bera vel á búfjáráburð, 7-8 kg á hvern
fermetra og til viðbótar 20-30 g garðáburð á fermetra fyrir
útplöntun. Síðan þarf að bera á árlega og má þá nota 40-50 g
blandaðan garðáburð á fermetra og 15-20 g kalksaltpétur
síðar að vorinu. Oftast er ráðlagt að bera meira af köfnunar-
efni á rifs en aðra berjarunna, en þá þurfa þeir einnig að fá
nóg kalí. Kalískortur sést á því að blaðrendur þorna og visna.
Er þá borið á brennisteinssúrt kalí. Rifs þolir ekki klór og má
alls ekki nota kórsúrt kalí, né venjulegan túnáburð.
Vaxtarrými og gróðursetning.
Berjarunnar eru gróðursettir með 1,5-2 m millibili og 2 m á
milli raða, séu þær fleiri en ein. Réttast er að gróðursetja strax
með þessu millibili en ekki helmingi þéttar eins og stundum er
ráðlagt og flytja síðar aðra hverja plöntu. Það vill jafnan
dragast of lengi, ef það gleymist þá ekki alveg.
Best er að gróðursetja snemma á vorin eða jafnskjótt og jörð
er orðin þíð. Plönturnar vaxa þeim mun betur, sem fyrr er
plantað. Plöntur úr pottum má þó gróðursetja hvenær sem er
að sumrinu.
Runnarnir eru gróðursettir að minnsta kosti jafndjúpt og
þeir hafa staðið áður. Kemur ekki að sök þó þeir fari dýpra og
neðstu greinaskiptin lendi undir yfirborði moldarinnar.
Holan á að vera vel víð og djúp, svo að greiða megi sem best
úr rótunum og þær liggi eðlilega. Ef einhverjar rótargreinar
eru samt of langar má stytta þær hæfilega.
Ef plöntur eru teknar úr pottum eða plastpokum verður að
athuga hvort þær hafa byrjað að vefja sig í hringi við botninn
og losa þá í sundur eða klippa af þeim. Rætur mega aldrei
liggja berar og þorna. Þá eyðileggjast fíngerðustu rótargreinar
og rótarhár, þar sem vatn með næringarefnum á greiðasta leið
inn í ræturnar. Plöntur sem þurfa að bíða gróðursetningar
eiga að vera í skugga og breitt yfir ræturnar.
Mold er mokað að rótunum og plöntunni hagrætt svo hún
standi bein. Moldinni er þjappað nokkuð með fótunum jafn-
óðum og mokað er að. Aður en holan er orðin full er vökvað
rækilega og síðan er hún fyllt af lausri mold þegar vatnið
43