Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Blaðsíða 52
I
róta í moldinni kringum plönturnar. Þær eru einmitt mjög
viðkvæmar fyrir slíku, vegna þess hve ræturnar eru fíngerðar
og ofarlega í moldinni.
Notað er fremur þunnt plast, 0.03 mm, og hæfileg breidd er
1.20 m. Það er lagt yfir svolítið upphækkuð beð sem eru um 1 *>
m á breidd. Ef moldin er vel unnin og laus má beygja plast-
jaðrana inn undir í moldina sitt hvoru megin.
Götur á milli beða þurfa að vera a.m.k. 50 sm og betra er að
hafa þær breiðar, ef plastskýli eru sett yfir beðin. Þær eru
hafðar opnar.
Einnig má vel leggja plast á moldina án þess að moka henni
í upphækkuð beð, leggja plastjaðrana í rásir meðfram beðinu
og þjappa mold ofan á.
Plönturnar eru gróðursettar í tvær raðir í hvert beð með 50
sm bili á milli raða og 40 sm á milli plantna. Þess verður að
geta að jarðarberjaafbrigði taka nokkuð mismunandi mikið
pláss og sum geta staðið þéttar, t.d. með 30 sm bili milli
plantna.
Beðin má einnig hafa breiðari, ef það hentar betur og
stórvaxin afbrigði geta þurft lengra bil milli raða eða allt að
60 sm.
Moldin verður að vera sæmilega rök þegar plastið er lagt
yfir, svo að ekki þurfi að vökva lengi á eftir.
Vel má vera að sumum finnist óþarfa umstang að breiða
svart plast yfir beðið, ekki síst ef um fáar plöntur er að ræða.
Þá verður að fara gætilega við hreinsun illgresis, helst að tína
það burt. Eins þarf að leggja eitthvað undir berjaklasana til
þess að berin óhreinkist sem minnst. Tómir plastpokar ýmiss
konar eru líklega víðast hvar tiltækir eða grófgert þurrt hey.
Plastskýli.
Sumarið er svo stutt á íslandi að vonlítið er að rækta jarðarber
nema undir plasti eða gleri. Auðvitað má nota ýmsar gerðir af j
sólreitum en fljótlegast og ódýrast er að nota boga úr galvan-
húðuðum vír eða plastrafmagnsrörum. Þeim er stungið niður
yfir beðin með jöfnu millibili og plastdúkur lagður yfir. Hann
er festur vel við endana, t.d. bundinn við hæla eða grafinn
54