Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1946, Síða 8

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1946, Síða 8
Höfðingleg gjöf vestan um haf Þegar dr. Rögnvaldur Pétursson var hér á ferð í síðasta sinn sumarið 1937, lét hann þess getið við þáverandi landsbókavörð, að í sínum fórum væru nokkur gömul, íslenzk handrit, sem Landsbókasafnið mundi geta fengið, ef það óskaði. Það fórst þó fyrir, að þetta væri athugað nánar meðan Rögnvaldur var á lífi. Þegar styrjöldinni var lokið, fór Landsbókasafnið þess á leit við dr. Helga Briem, aðalræðismann íslands í New York, að hann færi til Winnipeg og semdi við ekkju dr. Rögnvalds um kaup á handritum úr bókasafni hans, ef hún vildi láta þau af hendi. Jafnframt var honum falið að gera tilboð í bókasafn dr. Rögnvalds, ef það væri til sölu, og var einkum lögð áherzla á að fá íslenzk rit, prentuð vestan hafs, og það sem til kynni að vera af ritum á ensku um íslenzk efni eða eftir íslenzka menn. Haustið 1945 fór dr. Helgi Briem síðan til Winnipeg og bar upp erindi sitt við ekkju dr. Rögnvalds, frú Hólmfríði Pétursson. Frúin svaraði strax á þá leið, að sala kæmi ekki til greina. Hinsvegar skýrði hún frá því, að það hefði jafnan verið vilji og ásetningur þeirra hjóna beggja, að Landsbókasafnið nyti þeirra handrita og prent- aðra bóka úr bókasafni manns síns, sem það teldi sér feng í að eignast. Bauðst hún þegar til þess að gefa Landsbókasafninu öll handritin og þær prentaðar bækur og blöð, sem það helzt óskaði að fá. Svo sem nærri má geta, tók dr. Helgi þessu ágæta boði með þökkum fyrir hönd Landsbókasafnsins, og var þegar hafizt handa um að velja bækurnar og búa um þær til heimflutnings. Áður en því verki væri lokið, veikt- ist frú Hólmfríður, en dr. Helgi gekk frá þeim bókum til sendingar, sem búið var að taka frá. Gaf Soffanías Þorkelsson, verksmiðjueigandi, vandaða kassa undir send- inguna, og kom hún heilu og höldnu til Reykjavíkur nokkrum vikum síðar. í sendingu þessari, sem fyllti sex stóra kassa, voru rúmlega 80 bindi handrita og um 300 bindi prentaðra bóka, blaða og ritlinga. Meðal handritanna eru nokkrar gaml- ar og vinalegar skruddur með rímum, sögum og kvæðum, sem fylgt höfðu á sínum tíma íslenzku sveitáfólki vestur um haf og átt sinn þátt í að ylja því um hjartarætur í harðri lífsbaráttu frumbýlingsáranna og tengja hug þess órjúfanlegum böndum við gamla landið. Þarna komu aftur heim til ættjarðarinnar lengstu rímur, sem ortar hafa verið á íslandi, Bragða-Mágusar rímur eftir Jón lang Jónsson, 70 að tölu. Voru
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.