Frjáls verslun - 01.10.1994, Side 8
FRETTIR
OVÆNT SLEGIST
UM STÁLSMIÐJUNA
/
Agúst Einarsson í Lýsi ogDarri Gunnarsson keþþtu um Stálsmiðjuna
Skúli Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Stálsmiðj-
unnar, getur vel við unað
með árangur sinn við
endurskipulagningu fyr-
irtækisins. Þegar upp var
staðið var slegist um
fyrirtækið.
Skúli, sem gegnt hefur
stöðu framkvæmdastjóra
Stálsmiðjunnar síðastlið-
in 10 ár, hefur sagt starfi
sínu lausu samhliða yfir-
töku nýrra eigenda.
Tvær fylkingar kepptu
um fyrirtækið. önnur var
undir forystu Ágústs Ein-
arssonar, stjórnarfor-
manns Stálsmiðjunnar og
forstjóra Lýsis. Hin fylk-
ingin var undir forystu
Darra Gunnarssonar,
verkfræðings og yfir-
manns viðhaldsdeildar
Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum. Darri
hafði betur.
Keppnin tók að harðna
eftir nauðasamning sem
Stálsmiðjunni tókst að
gera við lánardrottna í
endaðan nóvember, þar
sem 75% af kröfum voru
slegin af gegn því að 25%
þeirra yrðu greidd.
Skipulagsbreytingin
fólst einnig í því að færa
gamla hlutaféð niður í um
9 milljónir króna og koma
með nýja hlutafjáraukn-
ingu upp á 40 milljónir
króna. Eftir þessar skipu-
lagsbreytingar er gert ráð
fyrir að fyrirtækið eigi
þokkalega framtíð fyrir
sér. Þetta er samt mjög
erfiður iðnaður.
í keppni Darra og
Ágúst Einarsson, forstjóri Lýsis, virðist hafa verið of sigur-
viss í keppninni um Stálsmiðjuna. Hann sagði upp störfum hjá
Lýsi til að taka við Stálsmiðjunni.
Ágústs Einarssonar virð-
ist Ágúst hafa misreiknað
sig og talið sig eiga fyrir-
tækið víst, að minnsta
kosti sagði hann upp
starfi sínu hjá Lýsi til að
taka við framkvæmda-
stjórastjórastöðu Stál-
smiðjunnar.
Það, sem réð úrslitum í
þessari keppni, var að
Darri, studdur af föður
sínum, Gunnari Bjarna-
syni, forstjóra Stálsmiðj-
unnar á árum áður, tókst
óvænt að kaupa meiri-
hlutann af gamla hluta-
fénu sem búið var að færa
niður í um 9 milljónir.
Keypti hann meðal ann-
ars af Þóri Gröndal hjá
Hamri og Ernu Jónsdótt-
ur. Þar með var Darri
kominn með forkaupsrétt
að hinu nýja hlutafé.
í kringum 15. desem-
ber var Darri búinn að
smala saman tiltölulega
breiðum hópi fjárfesta.
Má þar nefna fyrirtæki
eins og Gjögur á Greni-
vík, Hringrás hf., (endur-
vinnsla á málmum í eigu
Sindra-Stáls og Gott-
skálks Eggertssonar, eig-
anda Harðviðarvals), Að-
albjörgu, sem er öflugt í
smábátaútgerð í Reykja-
vík, Fiskafurðir, Sindra-
stál, Harðviðarval, Sjóvá-
Almennar og málningar-
verksmiðjuna Hörpu.
Þess má geta að Darri
og maður ársins í ís-
lensku atvinnulífi 1994,
Sighvatur Bjarnason, eru
svilar, kvæntir dætrum
Gottskálks Eggertssonar
í Harðviðarvali. Darri
hefur verið yfirmaður
viðhaldsdeildar Vinnslu-
stöðvarinnar en hverfur
nú brott af þeim vett-
vangi.
Ágúst Einarsson var
búinn að fá Málningar-
verksmiðju Slippfélags-
ins í lið með sér við að
fjármagna 40 milljóna
króna hlutafjáraukning-
una. Málningarverk-
smiðja Slippfélagsins var
tilbúin til að koma með
bróðurpart þess fjár og er
talað um allt að 35 millj-
ónir í því sambandi en það
er þó óstaðfest.
Þess má geta að fyrr í
sumar hafði Reykjavíkur-
höfn keypt dráttarbraut
fyrirtækisins með það í
huga að leigja hana aftur
til þess. Þegar þetta er
skrifað á eftir að semja á
milli Stálsmiðjunnar og
Reykjavíkurhafnar um
leigu á dráttarbrautinni.
Þegar sá samningur ligg-
ur fyrir verður endanlega
gengið frá kaupum fyrr-
nefndra fyrirtækja, undir
forystu Darra, á hinu nýja
hlutafé og ættu nýir hlut-
hafar því að taka við
rekstri fyrirtækisins upp
úr áramótum.
8