Frjáls verslun - 01.10.1994, Page 12
FRETTIR
LANDSBRÉF MEÐ FLUGMENN
V erðbréfafyrirtækið
Landsbréf og Eftirlauna-
sjóður Félags íslenskra
atvinnuflugmanna undir-
rituðu hinn 5. desember
samning um að Landsbréf
taki að sér umsjón og
rekstur sjóðsins.
Frá síðustu áramótum
hafa Landsbréf haft um-
sjón með fjárfestingum
sjóðsins til reynslu. í
ljósi góðrar reynslu
ákvað stjórn Eftirlauna-
sjóðsins að gera samning
þess efnis að Landsbréf
taki að sér allan daglegan
rekstur.
Samningurinn handsalaður. Frá vinstri: Geir Garðarsson,
stjórnarformaður Eftirlaunasjóðs FÍA, og Gunnar Helgi Hálf-
danarson, forstjóri Landsbréfa.
Eftirlaunasjóður Fé-
lags íslenskra atvinnu-
flugmanna er þriðji líf-
eyrissjóðurinn sem
Landsbréf hafa heildar-
umsjón með.
Eftirlaunasjóður Fé-
lags íslenskra atvinnu-
flugmanna er stærsti líf-
eyrissjóður á íslandi sem
hefur gert samning af
þessu tagi. Heildareignir
sjóðsins eru nú um 3,5
milljarðar króna og er
hlutfall eigna á móti
skuldbindingum með því
hæsta sem gerist hjá líf-
eyrissjóðum.
__ % _®
mita
CC-50
OSRITI
sem mælt er með
►150 blaða bakki.
►Ljósritar 10 síður á mínútu.
►Sérstök stilling til
að ljósrita ljósmyndir.
►Minnkun og stækkun 64% - 156%.
Œaill Guttormsson-Fjölval hf.
Mörkin 1 • Pósthólf 8895 • 128 Reykjavík • Símar: 81 27 88 og 68 86 50 • Fax: 3 58 21
Helstu söluaðilar: SAUÐÁRKRÓKUR, Bókabúð Brynjars - ÍSAFJÖRÐUR, Straumur.
12