Frjáls verslun - 01.10.1994, Side 51
erlendu aðilunum sem hafa verið
ósanngjöm gagnvart íslenskum aug-
lýsingastofum og íslenskum framleið-
endum.“
SVALIFRÁSÓL
Finnur Malmquist hjá Grafít segir
að auglýsinga-, útlits- og kynningar-
mál fyrir Sól hf., einkanlega nýtt
heildarútlit fyrir Svala, ávaxtadrykk í
fernum, „þáSvalabræður“, séámeð-
al þeirra kærastu verkefna á árinu.
„Ég er að tala um umbúðir, auglýs-
ingagerð fyrir dagblöð, útvarp og
sjónvarp, upphengispjöld, jóladagatal
og annað sem við gerðum í því átaki.
Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta
verkefni sérstaklega er sú ánægja
sem fylgir því að taka þátt í heildar-
tiltekt á vörunni og hvemig forsvars-
menn Sólar fylgdu verkefninu eftir frá
A til Ö og tóku alla þætti herferðar-
innar til greina og endurskoðunar."
GARÚN, GARÚN!
Ólöf Þorvaldsdóttir hjá Hér og nú
segir að persónulegar ástæður liggi
að baki því að hún velji litla og snarpa
auglýsingaherferð sem hennar kær-
asta verkefni ársins. „Herferðin var
unnin fyrir áhugahóp um bætta um-
ferðarmenningu og hún birtist dagana
fyrir verslunarmannahelgina. Þetta
var síðasta framlag hópsins til þess að
reyna að bæta úr þeim tvískinnungi
sem ríkir hjá allt of mörgum. I þessari
herferð unnum við út frá sögunni af
djáknanum á Myrká, þ.e. siglir sá
sem situr við stýrið, undir fölsku
flaggi — Garún, Garún!“
EYDDU í SPARNAÐ
Helgi Helgason hjá Góðu fólki segir
flestar auglýsingar og herferðir lifa og
deyja. „Hins vegar hefur okkur tekist
að þróa tvær herferðir sem virðast
geta þróast út í hið óendanlega og
önnur þeirra er herferðin fyrir ríkis-
sjóð þar sem okkur hefur ávallt tekist
að endumýja okkur og koma með
ferskar og frumlegar lausnir fyrir
áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs.
Við höfum lagt okkur fram um að
benda á aðra þætti en aðrir sem eru á
þessum sama markaði. Við auglýsum
til að mynda ekki þessi tæknilegu at-
riði eins og vexti, lánstíma og mark-
mið, heldur að spamaðurinn snúist
fyrst og fremst um viðhorf.
í hugum margra er ríkissjóður ef til
vill íhaldssamur viðskiptavinur en
annað er uppi á teningnum. Við-
skiptavinurinn hefur gefið okkur fullt
frelsi, enda hefur hann áttað sig á að
það gefur góða raun.
SAFNKORT ESSÓ
Leópold Sveinsson hjá AUK segir
að markaðssetning Safnkorts Essó sé
minnisstæðasta verkefni ársins.
„Skipulagningin og leyndin, sem við-
höfð var fyrir markaðssetninguna að
ógleymdum viðbrögðum neytenda og
keppinauta, gaf okkur sjaldgæft
„kikk“ og vímu sem ég held að aug-
lýsinga- og markaðsfólk eitt geti not-
ið. Verkefnið var og er ennþá óhemju
viðamikið og af stærðargráðu sem er
fátíð hér á landi.
Starfsmenn Olíufélagsins lyftu
grettistaki í þessu máli og það var
einstakt tækifæri fyrir starfsfólk
AUK að taka þátt í ævintýrinu."
MÁLRÆKTARÁTAK
MJÓLKURSAMSÖLUNNAR
Halldór Guðmundsson hjá Hvíta
húsinu segir málræktarátak Mjólk-
ursamsölunnar sem dæmi um verk-
efni sem veitti öllum mikla gleði að
fást við, „kannski vegna þess hversu
mikilvægt mál var þar á ferðinni, fyrir
þjóðina í bráð og lengd.“
Halldór segir að það sé reyndar
leikgleðin sem skipti höfuðmáli í vinnu
stofunnar „og ef hún er ekki til staðar
er lítil von um árangur."
KEPPNI í HEPPNI
Hallur Baldursson nefnir herferð-
ina Keppni í heppni sem unnin var
fyrir happdrætti Háskóla íslands,
Gullnámuna, sem dæmi um verkefni
sem honum var kært á árinu. „Það
hefur náðst góður árangur með
Gullnámuna þrátt fyrir erfiða stöðu í
byrjun herferðarinnar. Gullnáman
varð fyrir gríðarlegri ófrægingarher-
ferð um það leyti sem rekstur hennar
hófst í lok ársins 1993 og það var ljóst
að fara yrði mjög varlega í allar mark-
aðsaðgerðir. Herferðin hefur hins
vegar skilað árangri jafnt og þétt og
vikuleg veltuaukning hefur orðið allt
að þreföld frá því herferðin hófst í lok
febrúar."
LANDKYNNING ERLENDIS
Ólafur Ingi Ólafsson hjá íslensku
auglýsingastofunni nefnir sameigin-
legt átak Flugleiða, Ferðamálaráðs
og Framleiðnisjóðs landbúnaðararins
til kynningar á íslandi í tímaritum er-
lendis sem dæmi um afar gleðilegt
verkefni. „Verkefnið var gleðilegt
fyrir margra hluta sakir en ekki síst
vegna þess að íslensk auglýsingastofa
fékk þar tækifæri til að vinna að aug-
lýsingaherferð sem birtist í mörgum
virtustu og útbreiddustu tímaritum
Evrópu og Bandaríkjanna. Þetta var
einnig í fyrsta skipti sem Flugleiðir
tóku þátt í samræmdum aðgerðum í
þessa veru en þær hafa meðal annars
í för með sér að unnt er að ná birting-
arafslætti hjá tímaritum sem fer lang-
leiðina með að vega upp á móti öllum
kostnaði við gerð auglýsinganna.
Með þessu verkefni fengum við einn-
ig mikla reynslu í að starfa með er-
lendum starfsbræðrum okkar erlend-
is og komumst við þá einnig að því að
auglýsingastofur hér á landi eru betur
tölvuvæddar en stofur í nágranna-
löndunum. Síðast en ekki síst sannaði
þetta verkefni að útflutningur á aug-
lýsingagerð fyrir prentmiðla er mögu-
legur."
IAImennur samdráttur íþjóðfélaginu hefur
sannarlega haft mikil áhrif á auglýsingafagið og
sem dæmi má nefna að á síðustu sex til átta
árum hefur auglýsingastofum fækkað um
helming hér á landi.