Frjáls verslun - 01.10.1994, Blaðsíða 58
ERLENDIR FRETTAMOLAR
Stærsta hótelkeðja í heimi, Accor. Þar eiga stjórnendur nú svefnlitlar næt-
ur.
HÓTELKEÐJAN ACCOR í BOBBA
HARKAN SEX
í HRAÐPÓSTI
Gífuleg samkeppni ríkir á milli fyrir-
tækja í hraðpósti vestanhafs.
Hörð samkeppni ríkir á hinum 18
milljarða dollara hraðpóstþjónustu-
markaði í Bandaríkjunum sem gefur
ekkert eftir í þeirri samkeppni er ríkt
hefur á milli kóla-risanna. Federal
Express og United Parcel Service
berjast hart um markaðshlutdeild inn-
anlands í afhendingarþjónustu innan
sólarhrings, FE með 45 % og UPS
með 25 %. Bæði fyrirtækin hafa kom-
ið upp tölvutengdri þjónustu fyrir við-
skiptavini sína, auk þess sem flutn-
ingatækjafloti þeirra verður endur-
skoðaður til aukinnar samkeppnis-
hæfni.
Paul Dubrule og Gérard Pelisson
opnuðu mótel við vegarbrún í Frakk-
landi árið 1967. Síðan þá hafa þeir
byggt upp franska fyrirtækið Accor
sem er með flest hótelherbergi á sín-
um snærum í heiminum, eða 252.887
alls í 65 löndum. Kostnaðarsamar
hótelfjárfestingar hafa valdið rekstr-
arerfiðleikum og hefur hlutabréfa-
verð fyrirtækisins fallið um 42 %, eða
í 119 dollara frá hámarki ’90. Vilja þeir
fá Al-Walid bin Talal, prins frá Saudi
Arabíu, sem kom Euro-Disney til
„bjargar“ sl. vor, til að kaupa 12,5 %
hlut í Accor að andvirði 368 milljónir
dollara. Pelisson stefnir á 290 til 330
milljóna dollara hagnað en það getur
reynst erfitt að skera niður 4,3 millj-
arða dollara skuldir sem nema hálfu
öðru eigin fé.
FJÁRFESTAR
FÁ RAFLOST
Þar sem stefnir í að aflétt verði höft-
um í bandaríska rafmagnsveitugeir-
anum, hefur það valdið áhyggjum að
hin kostnaðarsömu einkasölufyrir-
tæki muni eiga í eríiðleikum með að
aðlaga sig samkeppni, sem gefið hef-
ur fjárfestum í fyrirtækjum þessum
raflost, því Dow-Jones-vísitala fjár-
festinga þeirra hefur fallið um 25 % sl.
ár. Stanley T. Skinner forstjóri Pacif-
ic Gas & Electric Co. í Kaliforníu
fagnar hins vegar breytingunni.
„Betri þjónusta á lægra verði,“ segir
hann og verður tekist á við aðlögunina
með því að skera niður um 285 mill-
jónir dollara í fjárútlátum ’95, orku-
sparandi áætlunum um 100 milljónir
dollara, auk fækkunar í mannafla.
Fram undan eru enn hertari aðgerðir
til aðlögunar samkeppni.
Verð á pappír rýkur nú upp í Bandaríkjunum eftir mestu niðursveiflu
bandarísks pappírsiðnaðar í áratugi.
Banáaríkin:
VERÐ Á PAPPÍR RÝKUR NÚ UPP
Fyrir aðeins 6 mánuðum var
pappírsiðnaðurinn í Bandaríkjunum
enn fastur í mestu niðursveiflu sem
dunið hefur á honum í áratugi. Verð
fyrir pappír og trjákvoðu var það
lægsta í 50 ár að teknu tilliti til verð-
bólgu á tímabilinu. Mikil breyting
hefur nú orðið hér á því sumar teg-
undir pappírs hafa hækkað um 25 %
á einum mánuði og eftirspurn prent-
iðnaðar hefur verið mikil til að auka
birgðir áður en verð hækka enn
meir. Skortur hefur verið á prent-
og skrifpappír í heiminum undanfar-
ið og lager pappírsframleiðenda sá
minnsti í 40 ár.
58