Morgunblaðið - 08.12.2001, Page 1

Morgunblaðið - 08.12.2001, Page 1
Morgunblaðið/Alfons Finnsson Brimið gekk yfir Svanborgu SH í gærkvöld þar sem báturinn lá skorðaður í klettunum nálægt Skálasnagavita á Snæfellsnesi. Samkvæmt upplýsingum Slysa- varnafélagsins Landsbjargar var veður mjög vont á þessum slóðum, suðsuðvestan 20 til 25 metrar á sekúndu, slydduél og lítið skyggni. Voru aðstæður til björgunar mjög erfiðar og mikið brim við strönd- ina. Neyðarkall barst frá bátnum kl. 17.46 um að hann ætti í vandræð- um vegna bilunar í vél og ræki upp undir kletta á Öndverðarnesi, vest- ast á Snæfellsnesi. Nærstödd skip reyndu þegar í stað að nálgast bát- inn en urðu frá að hverfa vegna veðurs og hversu nálægt strönd- inni báturinn var. TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæsl- unnar, var einnig send á slysstað en varð frá að hverfa vegna bil- unar í sjálfstýringu er hún var komin í grennd við Snæfellsnes. Björgunarskipið Björg frá Rifi fór einnig á vettvang en komst ekki að bátnum sökum veðurs. Skorðaðist í stórgrýti 10–20 metra út frá klettabeltinu Björgunarsveitir af öllu Snæ- fellsnesi voru kallaðar út og sjúkrabílar og læknir sendir á vettvang. Erfitt var að komast á slysstað og þurftu björgunarsveit- armenn að fara fótgangandi yfir hraungrýti síðustu tvo kílómetrana fram á bjargbrúnina en komust ekki niður að bátnum sem þá hafði rekið upp að klettabeltinu og skorðast í stórgrýti um 10 til 20 metra út af bjarginu. TF-SIF, þyrla Landhelgisgæsl- unnar, var komin til leitar og björgunaraðgerða upp úr kl. 21 og tvær þyrlur frá varnarliðinu. Um klukkan 23 í gærkvöld hafði björg- unarmönnum tekist að komast nið- ur á klettasyllu í fjörunni en kom- ust ekki út í bátinn vegna veðurs og aðstæðna á slysstað. Alls tóku um 70 björgunarsveit- armenn þátt í björgunaraðgerðum og seint í gærkvöld stóð yfir flutn- ingur fleiri björgunarsveitarmanna af Vesturlandi sem ætluðu að taka þátt í leitinni í nótt. Veður hafði þá nokkuð tekið að lægja. Reiknað var með að þyrlurnar hættu leit um miðnætti. Mjög slitrótt fjar- skiptasamband var á slysstað í gær sem jók á erfiðleika við björgunaraðgerðir en unnið var að því í gærkvöld að koma upp endurvörpum til að bæta sam- bandið. Þyrla bjargaði einum manni þegar bátur fórst við Snæfellsnes í gærkvöld Þriggja sjómanna af Svanborgu SH er saknað Morgunblaðið/Hafþór Svanborg SH 404 frá Ólafsvík er 30 brúttólesta stálskip, smíðað í Hafnarfirði árið 1999.                     EINUM manni var bjargað en þriggja er enn saknað af Svan- borgu SH 404, 30 tonna vélskipi frá Ólafsvík, sem rak vegna vél- arbilunar upp að klettóttri strönd og strandaði skammt sunnan við Skálasnagavita á Snæfellsnesi í vonskuveðri í gærkvöld. Manninum var bjarg- að um borð í þyrlu varnarliðsins um kl. 21.30 í gærkvöld, en þá tókst að hífa manninn upp úr bátnum og var hann fluttur í heilsugæslustöðina í Ólafsvík. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar í Ólafsvík var maður- inn tiltölulega vel á sig kominn. Leit að mönnunum þremur sem saknað er stóð enn yfir þegar Morgunblaðið fór í prentun.  Erfiðar aðstæður/6 282. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 8. DESEMBER 2001 „STJÓRN talibana er fallin. Afganar eru lausir við hana,“ sagði Hamid Karzai, leiðtogi nýrrar bráðabirgða- stjórnar í Afganistan, er talibanar í Kandahar höfðu ýmist gefist upp eða flúið borgina. Ekki var vitað hvar Mohammed Omar, leiðtogi talibana, var niðurkominn en hans og Osama bin Ladens, leiðtoga al-Qaeda, er ákaft leitað. Karzai sagði, að Omar hefði fengið tækifæri til að fordæma hryðjuverk en ekki nýtt það og því yrði hann handtekinn og leiddur fyrir rétt. Kvaðst hann ekki vita hvar hann væri, en hann og pakistanska leyni- þjónustan telja líklegast, að hann hafi reynt að flýja til fjalla í Zabul- héraði, norðaustur af Kandahar. Bandarískir hermenn börðust í gær við talibana á flótta og var reynt að hindra þá í að komast undan. Harðir bardagar voru við hellana í Tora Bora þar sem talið er, að bin Laden haldi sig. Höfðu andstæðing- ar talibana náð á sitt vald nokkrum hellum en sögðu, að liðsmenn bin Ladens hefðu verið búnir að færa sig ofar í fjöllin með fjölskyldur sínar. Bandaríkjamenn héldu uppi loft- árásum á hellasvæðið en ólíklegt þykir, að bin Laden hafi komist yfir til Pakistans þar sem öll fjallaskörð eru ófær vegna snjóa. Bandarískir hermenn fóru í gær um borð í kaup- skip á Arabíuflóa en þeir leita alls að 23 skipum, sem bandarískar og norskar leyniþjónustuheimildir segja, að bin Laden eigi eða séu á hans vegum. Stjórn talibana í Afganistan fallin Omars og bin Ladens leitað  Bin Laden/26 Washington, Kabúl. AP, AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.