Morgunblaðið - 08.12.2001, Síða 15
ÞAÐ ríkti sönn jólastemmning
fyrir utan og inni í Grímskjöri
„verslunarmiðstöð“ Grímseyinga
þegar ljós voru tendruð á mynd-
arlegu jólatré við verslunina.
Guðrún kaupmaður og Brynjólfur
hennar maður buðu íbúum upp á
kaffi, gos, konfekt og smákökur í
jólaskreyttri búðinni sem er eins
árs um þessar mundir. Skóla-
börnin mættu öll með jólasveina-
húfur og sungu undir stjórn
skólastjórans Dónalds Jóhann-
essonar um Snæfinn snjókarl,
Meiri snjó, Jólin koma og Jóla-
sveinninn kemur í kvöld, við góð-
ar undirtektir viðstaddra.
Ánægjulegt var að um 75% eyj-
arbúa tóku þátt í „miðbæj-
arskemmtuninni“.
Grímseyingar
kveikja á jólatré
Grímseyingar fjölmenntu þegar kveikt var á jólatrénu við Grímskjör.
Grímsey
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 15
Handmálaðir
englar
sími 462 2900
Blómin
í bænum
Akureyri
- skrifstofuhúsnæði óskast
Ríkissjóður óskar eftir að taka á leigu u.þ.b. 150-160
fm skrifstofuhúsnæði á Akureyri. Gott aðgengi áskilið.
Tilboð er greini ástand, staðsetningu, bílastæði, leigu-
verð og áætlaðan afhendingartíma, sendist eignadeild
fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli 150 - Reykjavík,
fyrir 19. desember nk.
Fjármálaráðuneytið 4. desember 2001.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 á morgun, sunnudag. Félagar úr Kór
Akureyrarkirkju syngja. Organisti: Björn
Steinar Sólbergsson. Sunnudagaskóli kl.
11, fyrst í kirkju en síðan í Safnaðarheim-
ili. Bíóferð hjá Æskulýðsfélagi Akureyrar-
kirkju kl. 17.30. Aðventukvöld í Akureyr-
arkirkju kl. 20.30. Barna- og unglingakórar
Akureyrarkirkju flytja helgileikinn „Hljóðu
jólaklukkurnar“ undir stjórn Sveins Arnar
Sæmundssonar. Björn Steinar Sólbergs-
son verður við orgelið og lesari er Hildur
Þóra Franklín. Ræðumaður verður Jón
Björnsson, fyrrum félagsmálastjóri, Sól-
björg Björnsdóttir syngur einsöng, Félagar
í Æskulýðsfélagi kirkjunnar verða með tón-
listaratriði. Sjálfshjálparhópur foreldra kl.
20.30 á mánudagskvöld í Safnaðarheim-
ili. Morgunsöngur kl. 9 á þriðjudag
Mömmumorgunn kl. 10–12 á miðvikudag.
„Börnin gera jólakort. TTT-starf kl. 17–18 í
Safnaðarheimili. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12 á fimmtudag. Bænaefnum
má koma til prestanna. Eftir stundina er
hægt að kaupa léttan hádegisverð.
GLERÁRKIRKJA: Messa og barnasam-
vera kl. 11 á morgun, sunnudag. Sameig-
inlegt upphaf. Kór Háskólans á Akureyri
syngur, stjórnandi og organisti er Sveinn
Arnar Sæmundsson. Aðventukvöld kl.
20.30 um kvöldið. Ræðumaður er sr.
Kristján Valur Ingólfsson lektor. Margrét
Bóasdóttir syngur einsöng. Barnakór Gler-
árkirkju syngur, stjórnandi og organisti er
Hjörtur Steinbergsson. Athöfninni lýkur
með ljósaathöfn fermingarbarna. Kyrrðar-
og tilbeiðslustund kl. 18.10 á þriðjudag.
Hádegissamvera kl. 12 til 13 á miðviku-
dag, orgelleikur, helgistund, fyrirbænir og
sakramenti. Léttar veitingar á eftir. Opið
hús fyrir mæður og börn kl. 10 til 12 á
fimmtudag. Aðventusamvera eldri borgara
kl. 15 á fimmtudag. Gestur samverunnar
verður sr. Pétur Þórarinsson prófastur. Fé-
lagar úr Kór Glerárkirkju syngja, helgistund
og veitingar.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli
kl. 11 á morgun, bænastund kl. 19.30 og
sameiginleg samkoma með KFUM og K og
Sjónarhæðarsöfnuði kl. 20. Ræðumaður
Bjarni Guðleifsson. Heimilasamband kl.
15 á mánudag, Örkin kl. 17. Biblíufræðsla
kl. 19 á þriðjudag. Mannakorn kl. 17.30 á
miðvikudag. Krakkaklúbbur kl. 17 á
fimmtudag. Unglingasamkoma kl. 20.30
um kvöldið. Flóamarkaður frá kl. 10 til 18
á föstudag.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bænastund kl.
20 á laugardag. Sunnudagaskóli fjölskyld-
unnar kl. 11.30. Vakningarsamkoma kl.
16.30 þar sem Snorri Óskarsson predik-
ar. Lofgjörðartónlist, fyrirbænaþjónusta og
barnapössun.
HRÍSEYJARPRESTAKALL: Sunnudaga-
skóli kl. 11 í Stærra-Árskógskirkju. Að-
ventukvöld kl. 20 um kvöldið. Helgistund í
Hríseyjarkirkju kl. 18 í dag, laugardag,
kveikt verður á leiðalýsingunni í Kirkju-
garði Hríseyjar. Sunnudagaskóli kl. 11 á
morgun í kirkjunni.
KFUM og K: Sameinginleg samkoma á
Hjálpræðishernum kl. 20 í kvöld. Jólafund-
ur í yngri deild kl. 17 á mánudag.
MÖÐRUVELLIR: Aðventukvöld verður í
Glæsibæjarkirkju sunnudagskvöld 9. des-
ember kl. 20:30. Kirkjukór Möðruvalla-
klaustursprestakalls syngur aðventulög.
Börn syngja Lúsíu. Fermingarbörn lesa
helgileik. Jón Oddgeir Guðmundsson flytur
hátíðarræðu. Mikill almennur söngur.
Helgistund í umsjá sóknarprests.
FRAMKVÆMDAMIÐSTÖÐ Ak-
ureyrar hefur formlega tekið til
starfa, en hún varð til við samruna
gatnadeildar og umhverfisdeildar.
Starfsmenn deildanna sameinuðu
þær með táknrænum hætti er þeir
fluttu frá fyrri stöðvum sínum og
að hinni nýju Framkvæmdamiðstöð
sem er við Rangárvelli.
Húsakynni þar eru rúm, um
1900 fermetrar að stærð og
skiptast í skrifstofur, starfsmanna-
rými, lager, verkstæði, tækja- og
efnisgeymslur. Þar er einnig sér-
útbúin dýrageymsla. Útisvæðið er
um 5.000 fermetrar að stærð og þá
hafa starfsmenn miðstöðvarinnar
aðgang að mötuneyti nágranna
sinna hjá Norðurorku. Starfsað-
staða batnar þannig til mikilla
muna.
Alls starfa um 60 manns hjá
Framkvæmdamiðstöðinni, en fjöldi
starfsmanna er breytilegur eftir
árstíma, þannig bætast um 60–70
verkamenn við yfir sumarmánuðina
auk unglinga í unglingavinnunni.
Helstu verkefni Framkvæmda-
miðstöðvarinnar eru viðhald og
hirðing grænna svæða og garða
bæjarins, umsjón með unglinga-
vinnu, viðhald gatna og umferð-
armannvirkja, umsjón með búfjár-
haldi og gæludýraeftirliti, sorp-
hirða, snjómokstur, hálkueyðing og
gatnahreinsun, rekstur fráveitu-
kerfa, meindýraeyðing, jólaskreyt-
ingar og umsjón með leiksvæðum
bæjarins. Þá sér miðstöðin um
rekstur ræktunarstöðvar, lysti-
garðs, malbikunarstöðvar og mal-
arnáms.
Morgunblaðið/Kristján
Starfsmenn hjá gatna- og umhverfisdeild Akureyrarbæjar kvöddu sína
gömlu vinnustaði og komu saman á nýjum sameiginlegum vinnustað,
Framkvæmdamiðstöð Akureyrar, sem er við Rangárvelli.
Framkvæmdamið-
stöð tekin til starfa
JÓLAVERSLUN á Akureyri er
rétt að komast í gang og ekki er
annað að heyra á verslunarmönn-
um en að þeir séu nokkuð bjart-
sýnir á mikla verslun fyrir þessi
jól. Í dag, laugardag, hefst nýtt
kreditkortatímabil og það hefur
vafalaust nokkuð að segja.
Ragnar Sverrisson kaupmaður í
JMJ og formaður Kaupmanna-
félags Akureyrar rekur verslanir
bæði í miðbænum og á Gler-
ártorgi og hann sagði að jóla-
verslunin væri ekki komin í fullan
gang. Hins vegar hafi verið tölu-
vert að gera um helgar og mikið
af utanbæjarfólki á ferðinni og
hann gerir ráð fyrir að jólaversl-
unin komist í fullan gang um
þessa helgi. Ragnar sagðist gera
ráð fyrir svipaðri jólaverslun og
undanfarin ár og ekki minni.
Pálmi Stefánsson kaupmaður í
Tónabúðinni í verslunarmiðstöð-
inni Sunnuhlíð sagði að eiginleg
jólaverslun færi ekki af stað fyrr
en eftir 10. desember, það segði
sér reynsla síðustu 35 ára. Pálmi
sagðist bjartsýnn á góða jólaversl-
un, þótt víða væri sultarhljóð og
þá aðallega í fjölmiðlum og hann
taldi menn kannski gera heldur
mikið úr því ástandi.
Orri Stefánsson hjá versluninni
Toppmenn og Sport í Skipagötu
sagði að jólaverslunin væri að
komast í gang og hann gerði ráð
fyrir að töluvert gæti verið um að
vera um helgina. Það réðist þó
m.a. af veðri og færð. Orri var líkt
og aðrir bjartsýnn á góða verslun
en vissulega væri mikið eftir enn.
Jólaversl-
un að kom-
ast í fullan
gang
Morgunblaðið/Kristján
Jólaverslun er að komast í fullan gang en margir eru þó þegar farnir að
líta í kringum sig eftir einhverju spennandi.
STJÓRN handknattleiksdeildar
KA hefur ákveðið að una niður-
stöðu Héraðsdóms Norðurlands
eystra í máli félagsins gegn dönsk-
um leikmanni, Bo Stage, sem lék
með félaginu fyrir um tveimur ár-
um og verður dóminum því ekki
áfrýjað til Hæstaréttar.
Árni Þór Freysteinsson formað-
ur handknattleiksdeildar KA sagði
að það hefði verið mat manna að
una niðurstöðunni. Eins og fram
hefur komið var KA dæmt til að
greiða danska leikmanninum laun
fyrir febrúar í fyrra, sem hann
taldi sig eiga inni og gerði kröfu
um. Mánaðarlaun Danans voru
31.000 danskar krónur, um 400.000
íslenskar krónur á núvirði en að
auki var félagið dæmt til að greiða
dráttarvexti frá mars í fyrra og
180.000 krónur í málskostnað. Áð-
urnefnd upphæð í dómi héraðs-
dóms var lækkuð um 18.000 ís-
lenskar krónur þar sem
leikmaðurinn hefði ekki skilað
úlpu sem hann fékk að láni á
samningstímanum.
Laun í hærri kantinum
Laun danska leikmannsins verða
að teljast í hærri kantinum í ís-
lenskum handknattleik og í raun
boltaíþróttum hérlendis yfirleitt.
Aðspurður hvort launatölur í lík-
ingu við þetta væru enn í gangi
hjá KA sagði Árni Þór að það væri
langur vegur frá. Hann sagði að
um trúnaðarupplýsingar væri að
ræða „en það eru engar tölur í lík-
ingu við þetta í gangi – ekki hjá
einum einasta leikmanni. Enda er
fjárhagsstaðan hjá okkur mjög
erfið eins og hjá öðrum.“
KA unir niður-
stöðu héraðsdóms
Fyrirlestur
um skap-
andi starf
ARNA Valsdóttir lektor við
kennaradeild Háskólans á Ak-
ureyri flytur fyrirlestur í stofu
L-203 í húsakynnum skólans
við Sólborg á mánudag, 10. des-
ember kl. 16. Fyrirlesturinn
ber yfirskriftina: Reggio
Emilia, Skapandi starf sem
leiðir til náms.
Hugmyndafræði Reggio
Emilia er kennd við samnefnda
borg á Ítalíu, en það eru leik-
urinn, skapandi hugsun og
starf markvisst notuð sem leið
til náms.