Morgunblaðið - 08.12.2001, Síða 44

Morgunblaðið - 08.12.2001, Síða 44
HEILSA 44 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Ég er nemandi í framhaldsskóla og er í próf- um. Í próflestrinum sit ég við öllum stundum og fæ gífurlegt samviskubit ef ég er ekki stöð- ugt að læra. Ég legg áherslu á að kunna námsefnið til hlítar fyrir prófin það veitir mér öryggi að kunna námsefnið aftur á bak og áfram. Að undanförnu finnst mér samt eins og það dugi ekki til. Ég hef lent í því að fara í próf fullviss um að kunna allt utanað og geta síðan ekkert á prófinu. Þegar ég kem inní prófið hellist yfir mig kvíðatilfinning, ég dofna allur upp, hugsunin verður þokukennd og mér líður eins og ég sé utangátta. Ég man varla símanúmerið heima hjá mér og nafnið mitt virðist jafnvel ókunnugt. Hvað þá að ég muni nokkuð af því sem ég hef lesið fyrir prófið. Er ég kominn með prófkvíða? Eru einhver ráð sem geta hjálpað mér? SVAR Eins og fram kemur í spurn-ingunni hér að framan þá get- ur prófkvíði verið mjög óþægilegt ástand sem setur nemandann algerlega út af laginu í prófi og kemur í veg fyrir að hann nái þeim árangri sem hann hefur unnið að við undirbúning prófsins. Hinn prófkvíðni skynjar próf sem ógnandi og bregst við í samræmi við það. Prófkvíði er lærð svörun við aðstæðum sem ógna einstaklingnum. Hin lærðu við- brögð koma fram í hegðun hans og hugsun og viðhalda ástandinu. Kvíðinn kemur fram í mjög sterkri líkamlegri svörun, s.s spennu, doða, auknum hjartslætti og svita og í hugs- unum sem endurspegla miklar áhyggjur af frammistöðu í prófinu og forspám um mis- tök á prófi og að standa sig illa í saman- burði við aðra. Nemandinn verður upptekinn af hlutum sem hafa í raun ekkert með prófið að gera og trufla frammistöðu hans. Ein- beitingarerfiðleikar og óróleiki einkenna hegðun nemandans og hann lokast jafnvel á prófinu með þeim afleiðingum að hann situr lengi aðgerðarlaus eða flýtir sér í gegnum prófið til að komast sem fyrst frá þessu óþægilega ástandi. Það er eðlilegt að finna til kvíða í að- stæðum sem ógna manni. Til þess að takast á við prófkvíða er hægt að hafa í huga eft- irfarandi atriði. 1. Reyndu að átta þig á því hvernig próf- kvíði þinn lærist. Hvernig svörun þín sem birtist í hegðun þinni getur viðhaldið honum. S.s. að vega og meta námsaðferðir þínar. Hvort sú aðferð að læra námsefnið allt utan- bókar og festast þá kannski í smáatriðum og komast þá síður yfir námsefnið geti frekar viðhaldið kvíða. Í stað þess að nota tiltekna námstækni þar sem aðalatriðin eru dregin út og upplýsingar flokkaðar og einfaldaðar þannig að auðvelt sé að muna þær. 2. Hvaða vitahringir eru í gangi sem við- halda kvíðanum? T.d í próflestrinum eins og áður var talið eða í þeim kröfum sem þú gerir til sjálfs þín. Ertu alltaf að búast við meiru en þú getur staðið undir. Gerir þú þá kröfu að gera betur en þú gerir. Það kann ekki góðri lukku að stýra og leiðir til stöð- ugra vonbrigða og óöryggis. 3. Prófkvíði er skilyrtur við ýmsar kring- umstæður sem tengjast prófum eða mati á frammistöðu. Reyndu að læra að þekkja þau áreiti sem kalla fram prófkvíðasvörun þína og leggðu áherslu á að breytingar á við- brögðum þínum s.s breyta námsvenjum, beita námstækni, próftækni og minnistækni. 4. Samþykktu kvíða þinn hann gengur yf- ir. Lengri próftími hjálpar stundum nem- endum sem lokast á prófi, þá getur nemand- inn smám saman lært að leyfa kvíða sínum að ganga yfir í stað þess að magna hann upp af ótta við að lokast og lenda í tíma- hraki. 5. Gefa sér tíma til að borða og lesa ekki alveg fram að svefntíma. Hvíld og minni vinna saman. Flestir eiga betur með úr- vinnslu úr námsefni ef að hvíld er hluti af námsvenjunum í stað stöðugs lesturs fram að svefntíma. 6. Slökun er góð hvíld eftir lestrarlotu og hjálpar við að takast á við kvíða. 7. Hvernig hefur þú lært að túlka próf sem ógnandi hvert er innihaldið í kvíðanum. Oft á tíðum hefur prófkvíði þróast smám saman og tengist þá gjarnan sjálfsmati þínu. Lágt sjálfsmat getur einkennt hinn próf- kvíðna. Stundum hefur prófkvíði komið í kjölfar erfiðleika í prófi s.s á samræmdu prófi eða stúdentsprófi við skólaskipti eða erfiðar kringumstæður. Slík dæmi sitja lengi í og geta fóðrað kvíðann. 8. Endurskoðaðu hvaða hugmyndir þú hefur um próf og sjálfan þig sem náms- mann. Getur verið að þær séu byggðar á mjög takmarkaðri reynslu eins og að hafa gengið illa í einhverjum prófum. 9. Temdu þér uppbyggjandi sjálfstal, teldi í þig kjark í stað þess að rífa sjálfan þig nið- ur. Hvað segðir þú við vin sem þyrfti á hvatningu að halda? 10. Enduskoðaðu viðhorf þín til sjálfs þín sem nemanda reyndu að tileinka þér raun- hæf viðmið. Hvernig nemandi er ég? Líttu á námsferil þinn og athugaðu hvernig árangur þinn hefur verið þegar þú hefur ekki fundið til prófkvíða. Endurskoðaðu hugmyndir þínar um af- leiðingar mistaka þinna s.s. að ná ekki góðri einkunn eða falla á prófi. Oft á tíðum gerum við meira úr þeim afleiðingum en efni standa til. Viðhorf fólks til þín eða greind þín byggist ekki á einkunnum þínum í dönsku eða stærðfræði. Frammistaða þín í prófum mælir eingöngu kunnáttu þína í námsgreininni í þetta skipti. Einnig má benda á að í flestum skólum eru starfandi námsráðgjafar sem geta greint og veitt ráðgjöf við prófkvíða eða vísað nem- endum á viðeigandi sérfræðinga ef að það á við. Námsráðgjafar geta einnig verið milli- gönguaðilar um ýmis úrræði sem geta hjálp- að prófkvíðnum nemendum s.s. lengri próf- tíma og að þreyta próf við rólegar prófaðstæður. Hvað er prófkvíði? eftir Auði R. Gunnarsdóttur Viðhorf fólks til þín eða greind þín byggist ekki á einkunnum þínum í dönsku eða stærðfræði. Frammi- staða þín í prófum mælir eingöngu kunnáttu þína í námsgreininni í þetta skipti. ........................................................... persona@persona.is Höfundur er sérfræðingur í klíniskri sálfræði. Fag- og deildarstjóri í Námsráðgjöf Háskóla Íslands. Lesendur Morg- unblaðsins geta komið spurn- ingum varðandi sálfræði-, fé- lagsleg og vinnu- tengd málefni til sérfræðinga á vegum persona.is. Senda skal tölvupóst á persona@per- sona.is og verður svarið jafn- framt birt á persona.is. „ÞEGAR byrjar að snjóa og kuldinn sverfur að er betra að gæta sín.“ Þessi viðvörun kemur frá samtökum bandarískra hnykkjara (American Chiropractic Association, ACA). „Vetraríþróttir eins og skauta,- skíða-, eða sleðaíþróttir geta skapað heilsufarslegan vanda fyrir þá sem þær stunda og eru ekki í nógu góðu líkamlegu ástandi,“ segir talsmaður samtakanna. „Menn geta fengið þján- ingafulla krampa, ofreynt sig eða slit- ið liðböndin. Slys af þessu tagi geta jafnvel orðið þegar verið er að moka snjó, ef átakið er ekki rétt eða ef klofað er yfir skafla á klaufalegan hátt, ef dottið er á gangstétt eða ef fólk klæðist ekki réttum fatnaði sem hindrar eðlilegar hreyfingar,“ segir í þessari umfjöllun frá PRNewswire. Segir ennfremur að sú einfalda at- höfn að vera á göngu án þess að klæð- ast nógu hlýjum fatnaði geti orsakað það að gamall krankleiki í liðum geti orðið mjög sársaukafullur. Búi fólk sig fyrir útiveru að vetri á skynsam- legan máta og hlúi sérstaklega að þeim hlutum líkamans sem eru veik- astir fyrir geti það komið í veg fyrir meiðsli og kostnaðarsamar heim- sóknir til læknis, segir ennfremur í fréttinni. „Það er mjög nauðsynlegt að hita vel upp áður en menn fara að æfa,“ segir Derek Parra, sem vann gull- verðlaun í 1.500 metra skautahlaupi á nýafstöðnu móti í Hollandi en mótið er liður í heimsmeistarakeppninni. „Ef menn eru tímabundnir þá er í rauninni betra að stytta æfingatím- ann í stað þess að sleppa góðri upp- hitun og fara strax í æfingarnar,“ segir hann. „Ef upphituninni er sleppt eru miklar líkur á að meiðslum. Parra, sem er helsta von Banda- ríkjamanna til að vinna gullverðlaun í skautahlaupi á komandi vetrarólymp- íuleikunum í Salt Lake City, bætir við og segir: „Hægt er að gera góðar upphitunaræfingar í 15–20 mínútur og trúið mér, æfingarnar á eftir verða mun ánægjulegri og öruggari.“ Reuters Hraðskautahlauparinn Derrek Parra, sem er hér á miðju myndarinnar, leggur áherslu á að menn hiti vel upp áður en þeir fara að iðka vetraríþróttirnar. Hér fagnar hann sigri í 1.500 metra hraðskauta- hlaupi í Haag í nóvember síðastliðnum ásamt félögum sínum, þeim Martin Hersman og Christian Breuer. Hitið vel upp fyrir vetraríþróttirnar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.