Morgunblaðið - 08.12.2001, Qupperneq 65
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 65
BINDINDISDAG fjölskyldunnar
ber í ár upp á 8. desember og hann er
hollt að nota til umhugsunar um mik-
ilvægi fjölskyldunnar í samfélaginu
og þá um leið hversu brýnt er að
áfengi eða önnur vímuefni varpi ekki
skugga á fjölskyldulífið. Þar eiga for-
eldrarnir stærstan hlut og þýðingar-
mestan, þeirra fordæmi getur skipt
sköpum, þeirra leiðsögn er dýrmæt-
ari barninu en flest annað. Ekki sízt á
þetta við nú á aðventu, í aðdraganda
helgra jóla, hátíðar barnanna, sem
um leið á að vera hátíð barnsins í okk-
ur sjálfum. Aldrei er skelfilegra en
einmitt þá ef dimmum skuggum er
varpað á þessa daga eftirvæntingar
og vongleði með neyzlu áfengis eða
annarra vímuefna, ógæfuvaldi svo
alltof margra. Allra sízt skyldu sjálf
jólin vanhelguð með slíkri neyzlu,
hryggilegast alls ef heimilin eru van-
virt með slíkri hegðan.
Vel er við hæfi að gefa þessu góðan
gaum og helga einn dag á aðventu
hugsuninni um það hversu fólk get-
ur gjört jólin enn gjöfulli en þau svo
annars eru með því að úthýsa vímu-
efnunum algjörlega svo í aðdraganda
jóla sem á jólunum sjálfum og auðvit-
að allra helzt alla daga ársins.
Bindindissamtökin IOGT í góðri
samvinnu við marga ágæta aðila vilja
með sérstakri bindindistileinkunn
þennan dag vekja athygli á þeirri vá
sem alltof víða herjar á og hrífur brott
með sér hamingju lífsins, allt yfir í líf-
ið sjálft. Við höfum eins og á liðnu ári
skírskotað alveg sérstaklega til
jólahátíðarinnar með hinu sanna kjör-
orði: Gleðileg jól án áfengis.
Auðvitað vildum við sjá alla daga
ársins án vanhelgunar vímuefna-
neyzlu og ef fólk hugar að þessum
málum einlægum huga þá munu þeir
fáir sem ekki viðurkenna nauðsyn
hollra lífshátta, alltaf og ævinlega, en
einn mikilvægasti hornsteinn slíkra
heilbrigðra gilda er einmitt fólginn í
afneitun vímunnar.
Við viljum einmitt nota þennan dag
til að undirstrika þessi
einföldu sannindi, við
sendum ákall til for-
eldra umfram allt að
þau gefi börnunum
gleðilega og vímuefna-
lausa hátíð, að slík
óheillaneyzla skyggi
hvergi á einlægan fögn-
uð þeirra yfir hátíð há-
tíðanna.
Um leið heitum við á
allt hugsandi fólk að
berjast sem bezt gegn
vímunnar vá, alls stað-
ar, alltaf. Það er svo
ótalmargt í húfi og ekki
sízt eigum við þar að
hugsa til hinna ungu og
ómótuðu, að hið gjörvulega unga fólk,
sem þessi þjóð svo sannarlega á, verði
ekki fórnarlömb vímuefnaneyzlunn-
ar, þar sem öll heill
þeirra og hamingja er í
veði.
Stöldrum við, tökum
höndum saman gegn
þeirri mannlegu eyði-
leggingu sem vímuefnin
skapa. Gleymum því
aldrei að þar er for-
dæmið svo dýrmætt til
eftirbreytni allrar. Og
umfram allt biðjum við
alla að gefa nú heit, gefa
þetta einfalda en þýð-
ingarmikla loforð:
Gleðileg jól án áfengis,
án allra vímuefna. Og
öllu skiptir auðvitað að
við sé staðið.
Jól án áfengis og
annarra vímuefna
Helgi
Seljan
Höfundur er formaður
Bindindissamtakanna IOGT.
Bindindi
Gleðileg jól án áfengis,
segir Helgi Seljan,
án allra vímuefna.
ella tularensis). Við svarta-dauða
eru gefin sýklalyf og við tularemiu
er til bóluefni en sýklalyf virka
einnig vel. Bóluefni er til við bótúl-
ín-eitri.
Aðrar veirutegundir sem koma til
greina sem sýklavopn eru veirur
sem valda blæðandi hitasótt svo
sem ebola og Marburg. Við þessum
veirum eru fá úrræði í forvörn og
meðferð.
Bann við sýklavopnum
Samningar um stöðvun á fram-
leiðslu sýklavopna voru undirritaðir
1972 en þrátt fyrir það hafa þau
skotið upp kollinum síðustu ár. Árið
1990 gerðu Sameinuðu þjóðirnar
upptæk sýklavopn í Írak. Þar á
meðal var fjöldi flugskeyta með 600
km drægni. Tvö þeirra innihéldu
miltisbrandsgró og 13 voru með
bótúlín-eitri. Einnig voru gerðar
upptækar 100 sprengjur sem vógu
180 kg hver. Þar af voru 50 sprengj-
ur sem innihéldu miltisbrandsgró.
Ekki er talið að Írakar hafi beitt
slíkum vopnum í Persaflóastríðinu.
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, hefur hvatt til að hert
verði verulega á samningnum um
sýklavopn frá 1972. Sagði hann að
hugsanlega ætti að gera það refsi-
vert að hafa slík vopn undir höndum
og að hætta væri á að ógnin gæti
enn aukist. Hann leggur til að Sam-
einuðu þjóðunum verði gert fært að
hafa eftirlit með sýklavopnafram-
leiðslu um heim allan og ákveðnar
verði refsingar við brotum á samn-
ingnum frá 1972. Tillögurnar verða
væntanlega lagðar fyrir á fundi í
Genf 19. nóvember 2001.
Höfundur er lyfjafræðingur.
Mörkinni 3, sími 588 0640G
læ
si
le
ga
r
gj
af
av
ör
ur
Tannstönglabox
kr. 2.470
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14.