Morgunblaðið - 26.01.2003, Blaðsíða 52
DAGBÓK
52 SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Brúarfoss kemur í
dag. Ivan Shadr fer í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Bay Bulker kemur til
Straumsvíkur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Þorra-
blót verður föstudag-
inn 31. janúar, þorra-
hlaðborð. Guðrún
Jónsdóttir flytur
minni karla og Páll
Sigurðsson minni
kvenna. Félagar úr
Karlakór Reykjavíkur
syngja, Marinó
Björnsson leikur und-
ir fjöldasöng og dansi.
Húsið opnað kl. 17.30.
Bólstaðarhlíð 43.
Þorrablót verður
haldið fimmtudaginn
30. janúar kl. 17, sal-
urinn opnaður kl.
16.30. Feðgarnir Þor-
valdur Halldórsson og
Þorvaldur Þorvalds-
son syngja. Ragnar
Leví og félagar leika
fyrir dansi. Skráning
og greiðsla á skrif-
stofunni fyrir mið-
vikudaginn 29. jan-
úar.
Félag eldri borgara í
Mosfellsbæ, Kjal-
arnesi og Kjós. Pútt-
kennsla í íþróttahús-
inu á sunnudögum kl.
11.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Sunnudag-
ur: Dansleikur kl. 20.
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Námskeið í
postulínsmálun og
japönskum penna-
saumi byrjar 27. jan.
kl. 13. Opin vinnu-
stofa í leirvinnslu
byrjar 3. febrúar kl.
12.30. Félagsvist í
Garðabergi 31. janúar
kl. 13. Miðar á leik-
ritið „Með fullri
reisn“ verða afhentir
á skrifstofunni kl. 14–
15 þessa viku. Öll
önnur starfsemi sam-
kvæmt stundaskrá.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Fjölbreytt
vetrardagskrá í boði
alla virka daga kl.
9.30 til 16.30. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og
í síma 575 7720.
Gullsmári, Gullsmára
13. Hið árlega þorra-
blót verður haldið
laugardaginn 8. febr-
úar og hefst kl. 18.
Dagskrá: hátíðin sett:
Sigurbjörg Björgvins-
dóttir. Guðrún Gunn-
arsdóttir syngur, Val-
geir Skagfjörð leikur
undir, happdrætti.
Ólafur Ólafsson leikur
á harmónikku undir
dansi. Skráning í
síma 564 5260 og á
staðnum. Vasabrots-
útgáfa af göngu- og
hlaupaleiðum um
Kópavog verður af-
hent formlega í Gull-
smára þriðjudaginn
28. janúar kl. 14.30.
Guðrún Lilja mætir
með gítarinn, kaffi-
veitingar.
Hraunbær 105.
Föstudaginn 31. jan-
úar verður þorrablót.
Húsið opnað kl. 17.30.
Þorrahlaðborð hefst
kl. 18. Dagskrá: Alda
Ingibergsdóttir óp-
erusöngkona. Ingi-
björg Pálmadóttir
ræðumaður. Árni
Tryggvason gam-
anmál. Ólafur B.
Ólafsson stjórnar
fjöldasöng og dansi.
Unnur Arngríms-
dóttir veislustjóri.
Skráning í síma
587 2888 og á skrif-
stofu.
Hvassaleiti 56–58.
Hið árlega þorrablót
verður haldið föstu-
daginn 31. janúar og
hefst kl. 18.30. Borinn
fram hefðbundinn
þorramatur. Ræðu-
maður kvöldsins sr.
Hjálmar Jónsson og
síðan mun Þorvaldur
Halldórsson halda
uppi fjörinu. Skráning
í síma: 535 2720.
Norðurbrún 1. Þorra-
blót veru haldið föstu-
daginn 31. janúr kl.
18, kór Landsvirkj-
unar syngur, minni
karla og kvenna,
fjöldasöngur, happ-
drætti. Veislustjóri
Gunnar Þorláksson.
Upplýsingar í síma
568 6960.
Vesturgata 7. Þorra-
blót verður haldið
föstudaginn 7. febr-
úar skráning hafin,
nánar auglýst síðar.
Leikfimi byrjar
mánudaginn 3. febr-
úar, kennt verður á
mánudögum 10–11 og
fimmtudögum frá
kl.13–14. Skráning í s.
562 7077.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar, aðalfundurinn
verður þriðjudaginn
4. febrúar kl. 20 í
safnaðarheimilinu.
Venjuleg aðalfund-
arstörf, upplestur, fé-
lagsvist, fánakynning.
Safnaðarfélag Graf-
arvogskirkju, aðal-
fundurinn verður
haldinn í Grafarvogs-
kirkju mánudaginn 3.
febrúar kl. 20.Venju-
leg aðalfundarstörf,
lagabreyting. Séra
Anna Sigríður Páls-
dóttir prestur flytur
erindið „Hvað þýðir
að vera meðvirkur?“
Kaffiveitingar.
Öldungaráð Hauka
Fundur verður á Ás-
völlum nk. miðviku-
dag, 29. jan., kl. 20.
ITC-deildin Harpa
verður með kynning-
arfund þriðjudag 28
jan. kl. 20 í Borg-
artúni 20. Uppl. í
síma 896 3963. Særún.
Í dag er sunnudagur 26. janúar,
26. dagur ársins 2003. Orð dags-
ins: Trúin er fullvissa um það,
sem menn vona, sannfæring um
þá hluti, sem eigi er auðið að sjá.
(Hebr. 11, 1.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
LÁRÉTT
1 fanga, 8 naut, 9 ávöxt-
ur, 10 gljúfur, 11 ham-
ingja, 13 svarar, 15
tappagat, 18 undrandi,
21 bókstafur, 22 ill-
kvittni, 23 hin, 24 barn að
aldri.
LÓÐRÉTT
2 andróður, 3 raka, 4
pinna, 5 málms, 6 þvotta-
snúra, 7 skordýr, 12
raddblæ, 14 alls ekki, 15
sáldra, 16 skelfiskur, 17
hægur, 18 alda, 19 sólar,
20 peninga.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hægur, 4 felds, 7 óþörf, 8 orkan, 9 sót, 11 sótt,
13 haga, 14 áræði, 15 bull, 17 nekt, 20 rit, 22 fagri, 23
andar, 24 syrpa, 25 lerki.
Lóðrétt: 1 hjóms, 2 gröft, 3 refs, 4 flot, 5 lykta, 6 senda,
10 ótæti, 12 tál, 13 hin, 15 buffs, 16 lógar, 18 endir, 19
torfi, 20 riða, 21 tagl.
fyrr en kl. 11. Lokað er um
kvöldmatarleyti sem er
alltof snemmt. Fyrir venju-
legt fólk sem vinnur dag-
vinnu verður sífellt erfiðara
að nýta þjónustuna sökum
vinnutíma. Þetta er slæmt
mál og hæpið að tala um
aukna þjónustu þegar um
er að ræða svona mikilvægt
atriði.
Bókaormur.
Ósátt við Garra
JAKOBÍNA hafði samband
við Velvakanda og var ósátt
við það sem Garri skrifaði í
DV hinn 21. janúar sl.
Henni fannst Garri vera að
hæðast að forsetahjónun-
um. Mega forsetahjónin
ekki bara fá að vera í friði?
Á einhver útsaum?
ÉG hef svo gaman af út-
saumi og þess háttar. Eru
ekki einhverjir sem eiga
munstur sem þeir ekki nota
lengur. Þá á ég aðallega við
krossaumsmunstur sem
eru talin út. Gætuð þið
hugsað ykkur að láta þau af
hendi til mín. Eins ef ein-
hver hefur gefist upp á sín-
um útsaumi þá skal ég
gjarnan þiggja hann. Ég
heiti Árdís og svara í síma
865 9702, ég á heima á
Bogabraut 9, 545 Skaga-
strönd ef einhver hefur
áhuga á að senda mér
munstur.
Tapað/fundið
Eyrnalokkur tapaðist
LAFANDI gulleyrnalokk-
ur með rúbínsteini tapaðist
á gamlársdag. Hann gæti
hafa tapast í Grafarvogs-
kirkjugarði eða á bensín-
stöð BP við Hafnarfjarðar-
veg. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband við Valgerði í
síma 565-2072 eða við Ingu í
síma 567-1462.
Svartur plastpoki
tapaðist
Í AÐALBANKA Búnaðar-
bankans hvarf svartur
plastpoki merktur Wool-
worth föstudaginn 19. jan-
úar sl. Í pokanum var speg-
ill sem nýbúið var að kaupa.
Vinsamlegast hafið sam-
band í síma 552-8339 eða
695-5954.
Reiðhjól í óskilum
LÍTIÐ rautt kvenhjól með
svörtu stýri er í óskilum að
Dunhaga 19. Eigandi getur
haft samband í síma 551-
7527.
Þorrablót og
mannamót
ER einhver sem á söng-
skrár frá þorrablótum eða
mannamótum hvar sem er
af landinu, sem hann vildi
láta af hendi til mín? Nafn
mitt er Aðalgeir Egilsson
og ég er í síma 464-1957.
Dýrahald
Donu vantar heimili
DONU vantar heimili í tvo
mánuði. Hún er þriggja ára
læða. Vinsamlegast hafið
samband við Hjört í síma
511-0965.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar GautiÁ leið úr skólanum og daginn tekið að lengja …
Um þjónustu
bókasafna
TVÆR konur frá Borgar-
bókasafni voru í viðtali á
Rás 2 fyrir nokkru síðan og
töluðu um sífellt víðtækara
hlutverk bókasafna og
aukna þjónustu. Má vera
satt og rétt. Bókasöfnin
skila sínu hlutverki að
flestu leyti mjög vel, úrval
bóka nokkuð gott þó fleiri
eintök af vinsælum bókum
væru vel þegin varðandi
framboð. Afturför hefur þó
orðið á einu sviði bóka-
safna.
Opnunartíminn verður
sífellt styttri. Einu sinni var
opnað snemma á morgnana
og lokað um níu eða tíuleyt-
ið á kvöldið. Nú er ekki opn-
að fyrr en í fyrsta lagi tíu á
morgnana og stundum ekki
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur ekki komist hjáþví að fylgjast með „strákunum
okkar“ etja kappi við jafningja sína á
heimsmeistaramótinu í handknatt-
leik, sem stendur yfir í Portúgal. Það
er þó varla hægt að ræða um jafn-
ingja – furðulegt, þegar um er að
ræða keppni þeirra bestu í íþrótt-
inni. Strákarnir unnu Ástrala örugg-
lega og settu heimsmet með því að
skora 55 mörk! Lokatölur 55:15.
Einn leikmaður Ástralíu var ekki
ánægður og skellti skuldinni á mark-
verðina – að þeir hafi ekkert varið.
Já, þeir hengja bakara fyrir smið
líka í Ástralíu.
Víkverji sá að Ástralar höfðu kom-
ist á HM með því að leggja Cook-
eyjar að velli með 28 marka mun,
35:7, og Vanuatu með 37 marka mun,
51:14! Ef Ástralar kunna lítið fyrir
sér í göldrum handknattleiksins,
hvernig handknattleik leika þá eyj-
arskeggjar á Vanuatu? Á þessum
tölum má sjá að það er 77 marka
munur á Íslandi og Vanuatu.
x x x
ÞJÁLFARI Ástrala sagði að þaðværi mikil reynsla fyrir sína
menn að taka þátt í HM og þeir
myndu halda uppbyggingu sinni
áfram, en ættu langt í land. Græn-
lendingar hafa heldur ekki riðið feit-
um hesti frá HM, en þeir eru ánægð-
ir og ræða um landkynningu.
Víkverji telur að það sé hæpin
landkynning að taka þátt í keppni og
tapa með miklum mun.
Englendingar fengu „skemmti-
lega landkynningu“ um árið þegar
Eddie „The Eagle“ Edwards tók
þátt í keppni í skíðastökki á Ólymp-
íuleikunum í Calgary í Kanada 1988
– varð að aðhlátursefni um allan
heim, þegar hann hreinlega „datt“
fram af 90 m palli – fór um þrjátíu
metra, en sigurvegarinn 118,5 m.
x x x
VÍKVERJI var mjög hrifinn afframkomu Dagnýjar Jónsdóttur,
formanns Sambands ungra fram-
sóknarmanna, sem verður í þriðja
sæti á framboðslista Framsókn-
arflokksins í Norðausturkjördæmi í
alþingiskosningunum, í Kastljósi á
dögunum, þar sem hún skákaði
kunnum skemmtikröftum eins og
Ómari Ragnarssyni og Arnari Jóns-
syni, sem sátu við hlið hennar.
Dagný upplýsti að hún væri félagi
í drykkjumannafélagi í heimabyggð
sinni og það þótt hún bragði ekki
áfengi – og hafi aldrei gert. Hún
gegnir afar þýðingarmiklu starfi í fé-
laginu sem birgðavörður og sagði að
hún réði ferðinni – sæi um kostinn og
kæmi honum út þegar við ætti, en
lokaði birgðageymslu þegar fulllangt
væri gengið.
Víkverji er þeirrar skoðunar að
Dagný eigi bjarta framtíð fyrir sér
og ef Framsóknarflokkurinn verður
áfram í ríkisstjórn, eigi Dagný að
vera birgðavörður í hinum ýmsu
málaflokkum. Ekki veitir af.
AP
Frá HM í Portúgal.
FORYSTUMENN Vinstri
grænna hafa verið dug-
legir að benda á að
stjórnmál snúist um hug-
myndir en ekki for-
ystumenn. Telja þeir of
miklum tíma eytt í um-
ræður um menn og of
litlum tíma í málefni.
Þessi gagnrýni beinist
ekki síst að Samfylking-
unni og gjörningum sem
þar hafa átt sér stað
undanfarnar vikur. Í
Morgunblaðinu á föstu-
daginn skrifar Katrín
Jakobsdóttir, formaður
Ungra vinstri grænna:
„Ný tegund stjórnmála
virðist hafa skotið upp
kollinum undanfarin ár.
Nú er ekki lengur í tísku
að trúa á málstað og
fara í framhaldi út í
stjórnmál til að vinna
þeim málstað fylgi. Nú-
tímalegir stjórn-
málamenn gefa fyrst
kost á sér til ákveðinna
embætta og finna sér
svo málstað. Þetta sást
best á Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur þegar
tilkynnt var að hún yrði
forsætisráðherraefni
Samfylkingarinnar.“
Spurningin sem brennur
nú á öllum er hver mál-
staður Ingibjargar Sól-
rúnar sé. Það er raunar
dálítið merkilegt að
þessi spurning komi upp
þar sem Ingibjörg Sól-
rún hefur verið lengi í
pólitík og allir ættu að
þekkja fyrir hvað hún
stendur. Stefnumál for-
sætisráðherraefnis Sam-
fylkingarinnar virðast
hins vegar ekki fyllilega
skýr, nema hvað hún
hefur marglýst því yfir
að hún vilji ekki stuðla
að framgangi Sjálfstæð-
isflokksins í stjórn-
arráðinu. Af hálfu for-
sætisráðherraefnis
stærsta stjórnarand-
stöðuflokksins telst
þetta tæplega til nýmæla
og kemur ekki heldur
sérstaklega á óvart.
Ingibjörg Sólrún hef-
ur lýst því yfir að hún
vilji innleiða nýja tegund
af pólitík, svokölluð
samræðustjórnmál.
Áhugamenn um stjórn-
mál hafa ekki haft það
fyllilega á hreinu hvað
þetta þýðir, en svarið
fékkst hugsanlega í
sjónvarpsþætti nýlega.
Einn af talsmönnum
Samfylkingarinnar lýsti
því yfir í Kastljósþætti
13. janúar sl. að stefna
Samfylkingarinnar væri
ekki klár. Það þyrfti
nefnilega að segja það
sem fólkið vildi heyra og
frambjóðendum, þar á
meðal Ingibjörgu Sól-
rúnu, hefði verið sett
fyrir hlustunarverkefni
að fordæmi Hafnfirð-
inga. „Þar fóru menn út
á vinnustaðina og voru
með hlustunarverkefni
til að hlusta á fólkið
sjálft og skoðanir, vega
svo og meta og setja svo
fram okkar stefnu í
málaflokkum sem
brenna mest á fólkinu.“
Samkvæmt þessu kem-
ur ekki á óvart að Sam-
fylkingin vilji frekar
tala um menn en mál-
efni. Hlustunarverkefni
geta verið svo tímafrek.
STAKSTEINAR
Hlustunarverkefni
Samfylkingarinnar