Réttur - 01.02.1917, Blaðsíða 4
6 Réttur
Merkur maður, sem kyntist H. George um þetta leyti,
segir um liann:
»H. George var ákaflega skýr og skynsamur ungling-
ur; jafnan í viðræðum og stælum við aðra. Oft leitaði
hann til mín, þegar hann þurfti að fá fullyrðingar sínar
viðurkendar, hvort heldur var um söguleg efni eða póli-
tík að ræða.« þannig jókst honum ýmiskonar fróðleikur
og leikni í að bera fram hugsanir sínar skipulega. Eitt
sinn skifti liann snarplega orðum við yfirmann prent-
smiðjunnar, og fór eftir það tafarlaust úr vinnunni.
— Til gamans og greiningar set eg hér brot úr lýs-
ingu H. Georges af sjálfum sér, þegar hann var 18 ára.
Kveðst hann vera: »Einlægur, alúðlegur, huglátssamur
°g ffyggur í ást og viðbúð. Vinfastur og jafnan reiðu-
búinn að bera í bætifláka fyrir þá, en verð þó stundum
ósáttur við þá. Kýs vinina úr flokki hæverskra og ment-
aðra áhugamanna. Forðast heimskingja. Sólginn í að
feróast. Útþráin óþrotleg og löngunin til þess að kynn-
ast heiminum. Fljótur að reiðast, en erfi eigi lengi við
neinn, nema að misboðið sé ákaflega og móðgunin end-
urtekin. — Hugsa djarft og frumlega um ýms efni, en
eigi rökfast, né í fullu samhengi. — Vel fær um að mæta
erfiðleikum, sigrast á tálmunum, þola þrautir, gjalda á-
reitni, standa fast við skoðanirnar og verja réttindin til
hins ýtrasta. — Leita peninga sem meðals en eigi mark-
miðs. — Venjulega dulur á tilfinningum, hugsunum og
áformum. Gæti lengi skapsmuna, þó að í brjósti brenni,
en þrútni það og opnist, blossa þeir af kappi. Fremur
seinn til, en fylgi málum fram af miklu afli, þegar þau
hafa einu sinni snert og vakið áhugann.
Hefi algert vald á tilfinningunum í háska og mann-
raunum og fulla athugun til þess að framkvæma tafar-
laust það, sem við á. — — þó að eg sé ennþá ungur,
trúi eg fastlega á mátt minn og eiginleika, til þess að
standast hvað sem að höndgm ber, En það á nú fram-
tíðin að sýna,<