Réttur - 01.02.1917, Blaðsíða 81
Neistar
83
að hald^. En hitt skyldi í lengstu lög forðast, að reyna
til að koma fram áhrifum í eimskipafélagsstjórninni með
samtökum við stjórnarkosningar, eða »agitation«. F*að
leiðir þjóðina aðeins út á sama kviksyndið og landsmál-
in og valdapólitikin hafa gert.
IV.
Pólitísk þjóðarmynd.
Margir telja það aðalhlutverk blaða og tímarita, að
vera stöðugt á hælunum á stjórnendum og starfsmönn-
um þjóðarinnar. Pefa uppi alt, sem mögulegt er að finna
til foráttu, geta sér til um hvatir þeirra; og leiða þá svo
alsnakta, óhreina og ataða fram fyrir lýðinn, benda á
þá og segja: »Sjáið manninn.«
Víst er um það, að af innihaldi flestra blaða vorra
verður ekki betur séð, en að ritstjórarnir telji þetta að-
alhlutverk sitt og helgustu skyldu sem þjóna og jafn-
framt lærifeðra alþýðunnar, telja það einskonar prestsverk
í hennar þjónustu. — Og sömuleiðis verður eigi betur
séð, en að alþýða manna taki þetta fram yfir flesta aðra
starfsemi blaðanna, og telji það bæði þarft og ánægju-
legt. — Pjóðblöðin sanna þetta svo átakanlega. Tilvera
sumra þeirra og starf, byggist eingöngu á þessum eld-
húsverkum í garð þeirrar landsstjórnar, sem í stóli situr
í það sinn. Á öllum síðum þeirra er máluð eina og
sama hugsunin og ásökunin, aðeins með lítið eitt
misjafnlega vönduðum orðum og ósvífnum búningi. Og
þessi bardagaaðferð sigrar oft og vinnur sér fylgi meiri-
hluta þjóðarinnar. — Svona er þá dómgreind hennar
háttað. Slíkra dæma þarf eigi langt að leita í sögu þjóð-
arinnar. — En þeir, sem ná sæti á háhesti þjóðarinnar,
6*