Réttur - 01.02.1917, Page 6
8
Réttur
hann varð að þiggja ölmusu. — En þrátt fyrir baslið
ríkti hamingjan einvöld á heimili þeirra hjóna.
* ♦
*
Árið 1865 byrjaði Henry George að fást við ritstörf.
í frístundum sínum við prentunarstörfin ritaði liann ýms-
ar smágreinar, einkum í þeim tilgangi að öðlast leikni,
lipurð og fegurð í stýl og formi hugsananna. Fyrsta
ritgerð hans, sem vakti athygli, var »Um notkun tím-
ans«. — Greinar sínar sendi hann blöðunum til birting-
ar. — í annari ritgerð, sem kom út í nýju blaði, fagn-
ar hann því, að blaðið skuli fylgja niálstað verkalýðsins:
»Á þ'essum tímum, þegar blöð og tímarit skríða í duft-
inu fyrir auði og völdum, og mundu helzt vilja kremja fá-
tæklinginn sundur með þunga auðvaldsins.« Nú var honum
Ijóst orðið að hann var vel ritfær, og beitti öllu kappi
sínu til þess að þroska sjálfan sig á því sviði.
Pegar morð Abrahams Lincoins forseta (hann var
skotinn í leikhúsi) fréttist til San Fransisko, vakti það
mikla ókyrð í borginni og ólgu í sálum manna. H.
George ritaði um morðið fyrir eitt blaðið og segir með-
ai annars: »að atburðarins — morðs forsetans — verði
niinst meðau heimurinn standi, eins og píslarvotts frels-
isins og fulltrúa stórþjóðar-réttlætis, sem ritaði með blóði
sínu undir frelsisskrána og lausn þrælsbandanna. Engin
jjjóð önnur en lýðveldisþjóð numdi hafa fóstrað þann
son. Og undir því stjór(narformi munu þeir menn, sein
tíminn þarfnast, vaxa upp úr flokki alþýðunnar.*
- — H. George segir sjálfur, að skoðun sinni á
verndarstefnunni hafi hann breytt undir ræðu manns,
sem barðist fyrir verndartollinum; »áður en ræðunni var
lokið, var eg orðinn fríverzlunarmaður.« Verndartoll-
stefnan fjarlægir þjóðirnar hvora frá annari og gefur til-
efni til styrjaldar.
H. George var fast að því kominn um skeið að ger-
ast skáldsagnahöfundur. En félags- og skipulagsmálin