Réttur - 01.02.1917, Qupperneq 33
Sendibréf 35
eru aðeins gárar á yfirborðinu, sem engum dýpri straum-
breytingum geta valdið.
Það hefði nú verið allra þakka vert, ef þið, lærðu há-
skóiamennirnir, hefðuð riðið á vaðið og hafið hleypi-
dómalausár og leiðbeinandi umræður um þessi efni; en
það hafið þið nú ekki gert og gerið líklega ekki fyrst
um sinn. En hins vegar eruð þið á verði til að verja
þær kenningar eða »trúbrögð«, sem kent er í yðar
»biblíum«, lögfestum af skólunum.
Við leikmenn urðum því að hefja umræðurnar, og
okkur kemur alls ekki á óvart, að okkur sé lítilsvirðing
sýnd úr flokki lærðu mannanna, einkum af hálfu hinna
grunnfærustu og þröngsýnustu. Víðsýnir og hleypidóma-
lausir lærdómsmenn munu líta á málefnin með hógværð
og skilningi, eins og öll önnur fyrirbrigði félagslífsins. *
F*ér sneiðið hjá að segja nokkuð um samvinnustefn-
una eða hvert sé markmið hennar og aðferð; en um
hinar tvær stefnurnar, sem þér segið að ritið ætli að
berjast fyrir, segið þér, að þær hafi »safnað um sig harð-
snúnum flokkuni, er hafa það sameiginlegt, að þeir þykj-
ast hafa fundið alsherjarlyf við öllum stærstu meinum
þjóðfélagsins«; að þessir flokkar hafi »hvor sína biblíu
að byggja á trú sína«, og að höfundana að þessum
»biblíum« skoði áhangendur þeirra »litlu óskeikulli í kenn-
ingum þeirra en páfinn er skoðaður meðal katólskra
manna«.
F*etta er nú öll fræðslan, sem þér veitið iesendum yð-
ar um þessa »flokka«, og verður ekki annað sagt en
hún beri allgóðan vott um vísindamannslega nákvæmni
yðar, ráðvendni og samviskusemi! Og sjálfsagt ætlist
þér til, að þessi lýsing yðar og skýring verði heimfærð
til höfundanna í »Rétti«, því þér segið, að þessar »stefn-
ur«, sem þér kallið »sósíalistastefnu« og »Oeorgista-
* Sbr. ritfregn Mag. Boga Th. Melsted í blaði Qeorgista í Dan- .
mörku: „Den lige Vej".
3*