Réttur


Réttur - 01.02.1917, Page 43

Réttur - 01.02.1917, Page 43
Henry George og jafnaðarmenskan 45 magn hjá manninum, vitsmunaaflið, er ekki hægt að reka eða sjóða saman i eitt eins og líkamsaflið, efnamagnið. Tveir menn geta dregið eða hafið á loft helmingi meiri þunga en einn, og hundrað þúsund menn eru hundrað þúsund sinnum sterkari en einn maður, ef afli þeirra er vel stjórnað. En enginn getur þannig lagt saman vits- muni manna. Tveir menn sjá ekki helmingi lengra en einn, og hundrað þúsund menn geta ekki gert jafnmarg- ar heppilegar ráðstafanir. Ef það væri rétt þetta orðtæki, »því fleiri ráðunautar, því meira vit«, þá nær það aðeins til þess, að menn komast heldur hjá öfgum og vitleys- um, ef margir ræða málið. En þó missa menn þar oft af þeim hærri kostum, sem til þarf til þess að dæma mál rétt og taka í réttan tíma í strenginn. Aldrej hafa menn haldið því fram, að sigurinn væri vísari, ef yfir- hershöfðingjarnir væru margir; hitt heldur, að »einn lé- legur yfirhershöfðingi væri betri en tveir góðir«. Við fyrri samvinnuaðferðina, þar sem t. d. 10 menn toga í taug í sömu átt undir stjórn eins manns, verður líkamsafl 10 manna að notum undir andlegri stjórn eins manns; en við það missist andlegur kraftur hinna 10 manna, o: kemur ekki að notum. Árangurinn yrði ekk- ert meiri eða minni, þó þessir 10 menn væru alveg svift- ir andlegu rnagni sínu á meðan þeir eru að toga, og ynnu aðeins sem vélar. Vér gætum vel hugsað oss, að menn næðu slíku valdi yfir efniskröftum náttúrunnar, að skipstjóri þyrfti ekki annað en styðja á hnapp til þess að setja stýri, segl eða vélina af stað, svo að hann gæti stjórnað skipinu skipshafnarlaust og skipið yrði þannig eins og fugl á flugi. En ef tekið er tillit til hinnar sjálfstæðu samvinnu, sem eg hef minst á, þar sem stjórnin er að innan frá, þá verður framleiðslumagnið eigi aðeins samsafn af kröftum einstaklinganna, heldur og af vitsmunum þeirra. Ef eg mætti hafa »mannskraft« M sem nafn á líkamskrafti ein- staklingsins og »hugsunarkraft« H um andlegan kraft
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.