Réttur - 01.02.1919, Qupperneq 22
24
Réttur.
líka að fá nýtt hugarþel, nýtt hjartalag, nýjan skilning á því,
hvernig vér eigum allir að lifa saman og nýja sannfæringu
um gildi hvers einasta manns,« segir Rauschenbusch á einum
stað. Sönn jafnaðarstefna verður að finna þetta og skilja,
ef hún á að geta orðið þeim hjartans mál, sem henni fylgja.
Einn besti jafnaðarmaður þessa lands komst þannig að orði
um jafnaðarhreyfinguna:
»Keisarar Rýskalands og Rússlands og aðrir stjórnendur
stórveldanna, væru ekki hræddir og skylfu ekki eins og smá-
greinar í stórviðri — fyrir fátækum iðnaðarmönnum, dag-
launamönnum og öðrum smælingjum — ef þetta væru að-
eins Iausingjar, sem hlaupið hefðu saman snöggvast til hagn-
aðar sér í svipinn, en væru siðspiltir menn og mentunarlitlir,
tilbúnir til að tortryggja og svíkja hvor annan á morgun. —
— — Nei — — en kynslóð, sem vinnur á daginn og ver
öllum kvöldum sínum og litlu frístundum til þess að menta
sig, og sínum litlu fátæklingsaurum til menningar sér og
félags nauðsynja, og ennfremur elur börn sín upp í því, að
vera sér og félaginu trú og réttlát við alla. — Slíka menn
óttast æðri stéttir og stjórnarvöld ríkjanna. Rví að þeir vinna
í lið með sér alla bestu og réttlátustu menn þjóðanna, og
þeir munu erfa ríkið og völdin.«
Á því hefir þótt brydda hjá æstnm verkamannaforingjum,
að þeir líta á hinar svonefndu æðri stéttir sem eintómar
blóðsugur eða ómaga á verkalýðnum. Ressar öfgar má ekki
gefa sjálfri hugsjóninni að sök. Þær munu að jafnaði sprotn-
ar af því, að stefnan hefir eigi sjaldan orðið að verjast högg-
um þaðan, sem frekar hefði mátt vænta hlífðar. Barátta og
mótspyrna gegn sanngjörnum kröfum, hlýtur að fylla menn
gremju og draga úr satnúð þeirra með þeim, sem þeir eiga
í höggi við. En þar sem mikil brögð verða að þessu hjá
jafnaðarmannafélögum, þá getur ekki hjá því farið, að menn-
ingargildi þeirra rýrni og árangurinn verði lítill. En þá er
skylda hvers manns, að reyna að hafa álirif til bóta, í stað
þess að hella olíu í eldinn. Ef hægt er að gera verkmanna-
hreyfinguna dálítið dýpri, innilegri, andlegri og kærleiksríkqri