Réttur - 01.02.1919, Síða 26
28
Rétiur.
Persíu í hagsmunasvæði, með aðstoð fjármagnsins. Pannig
mætti lengur telja; og það væri eigi að síður satt, að sjálf-
stæðið þarf að koma að innan frá.
En það er eigi nóg, að fjármagnið sé til í landinu og
þekkingin, í höndum og höfði fárra manna. Alt valdið er
nú lagt í almenningshendur. Og almenningur þarf að verða
svo efnum búinn og mentur, að hann geti sjálfstœður heit-
ið; sé fær að dæma um þjóðmálin, og verði ekki að at-
kvæðapeðum þeirra hananna, er hæst gaia og gullnastar
hafa fjaðrirnar.
Sjálfstæð þjóð þarf að vera samsett af sjálfstæðum og
samheldnung einstaklingum, ef hún á að mynda til langframa
sjálfstæða og sérkennilega heild og »sjálfstætt ríki«. Pess-
vegna þurfa nú að verða tímamót í viðreisnarsögu þjóðar-
innar. Hún hefit* nú í marga mannsaldra barist fyrir sjálf-
stjórn sinni. Nú er hún fengin. Pá hlýtur baráttan að snú-
ast að því, að gera þjóðina færa um að stjórna sér sjálf.
Skólarnir eru nauðsynlegt menningarmeðal, ef ala skal upp
vitra þjóð og fróða, hrausta drengi og dugandi. En ekki
eru þeir undirstaðan, né aðalatriðið í uppeldismálunum. Áhrif
skólanna, hve góðir sem þeir eru, eru hverfandi fyrir áhrif-
um heimilanna, fyr og síðar á mannsæfinni. Á góðum heim-
ilum vex börnunum menningarþróttur, sem venjulega er
trúrra veganesti, en flest annað. En Iélegt heimili, menning-
arlaust, ósiðað, sundurleitt og áhrifalaust, elur upp kynslóð,
sem skólarnir geta ekkert við ráðið. Að börnin alist upp á
góðum heimilum, er aðalskilyrðið fyrir því, að þau verði
góðir borgarar.
íslendingar hafa verið landbúnaðarþjóð. En þetta er að
breytast. Fleiri og fleiri lumdraðshlutar þjóðarinnar verða
að kaupstaðarbúum og sjóþorpalýð. En í þessu liggur, að
mínu áliti, stórhætta fyrir þjóðernið og þjóðaruppeldið. Góð
sveitaheimili hafa langbest uppeldisskilyrði. Pað er alment
viðurkent af flestum uppeldisfræðingum. Borgirnar eyðileggja
heimilisáhrifin, heimilin eru þar eigi jafnsamúðarmiklar og