Réttur


Réttur - 01.02.1919, Síða 31

Réttur - 01.02.1919, Síða 31
Rœktun og sjálfstœði. 33 telja, að það væri mjög óhentugt, að nokkur búandi hefði ræktað land eitt, til allra nytja, meðan að til eru slík kynstur af óræktuðu beitilandi, þar sem fénaðurinn getur gengið sjálf- ala mikinn hluta ársins. Efalaust er hagfeldast, að rækta fyrst þau svæðin, sem best leggja til beitarskilyrði. Beitin á hin- um takinarkalausu haglenduin í heiðum, hraunum og fjöllum, er það, sem gelur gert hvern ræktaðan blett svo arðsaman hér á Iandi. þessvegna hygg eg, að grasbýlin geti aldrei hagkvæm orðið, nema í þéttbýlishverfum og landþrengslum við sjó. Annar annmarki grasbýlanna er það, að ræktuð jörð gef- ur hér ekki arð þegar í byrjun. Grasbýlisbóndinn jaarf að leggja fram í upphafi mikinn kostnað við byggingar, girð- ingar og jarðiækt, en fær ekkert í aðra hönd fyr en eftir tvö —þrjú ár. Petta eru svo örðug kjör, að enginn maður, efnalaus, getur reist slíkt býli, nema hann styðjist við aðra atvinnu; og þeir sem eitthvert bein hafa í hendi, mundu frekar velja aðra kosti. Pá mundi og áburðarleysi verða örðugur þröskuldur á vegi grasbýlanna. En setjum nú svo, að grasbýli væru möguleg og kæmu til og frá um sveitirn- ar — innan um hinar stærri jarðir. Við fengjum þá hing- að stétt, sem væri efnaminni en bændur alment, og hlyti að verða þeim,háð á ýinsan hátt. Eg álíí það alls ekki þjóð- holt — heldur beinlínis hættulegt, að skapa hér nokkurskonar sveita-öreiga (proletarista). Meginstyikur íslensku sveitamenningariimar hefir einmitt verið jöfnuður á kjörum manna, sem liefir gert að verkum, að allir liafa getað borið höfuð hátt. Ef að er gáð víðs- vegar um sveitirnar, mun það sjást, að alþýðumenningin er frjóust, þar sem efnahagurinn og jarðirnar eru með mestum jöfnuði. Pó eg sé smábýlunum mótfallinn ahnent, álít eg þó, að þau eigi sitt hlutverk í ræktun landsins. Sjómennirnir, sem dreifðir eru um strendurnar, og eigi búa í mjög stórum þorp- um, ættu að eiga grasbýli, þó þeir stundi fiskiveiðar sem 3

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.