Réttur


Réttur - 01.02.1919, Síða 39

Réttur - 01.02.1919, Síða 39
Rœktun og sjálfstœði. 41 innar, liggja í hinu nýja fyrirtæki. Og lánsskilyrðin ættu að vera svo ströng, og eftirlit hans svo gott, að fyrirtækin þyrftu varla að velta um. Þannig hygg eg að ræktunar-bankinn ætti sjálfur að annast hin stærri lán, sem eru til jarðræktarfyrirtækja, sem velta á mörgum þúsundum króna. En útibúin ættu að vera hvoru- tveggja í senn, sparisjóðir bænda og lánveitendur í smærri stíl, t. d. til smá endurbóta á jörðunum, verkfærakaupa, húsa- bygginga og margs annars. Lán úlibúanna mættu vera sjálf- skuldarábyrgðarlán til skemmri tíma; en Ián bankans sjálfs, stærri fasteignarveðlán, til langs tíma. Mundi, að minni hyggju, þetta verða tryggasta leiðin til þess að afla jarðræktinni veltu- fjár, sem kæmi að notum, og yrði sæmilega vel trygt. En eg skal játa, að mjög brestur mig þekkingu í bankamálum, og kunna aðrir að sjá agnúa á þessu máli. — A undanförnum árum hefir allmiklu fé verið varið úr landssjóði til búnaðarmála; en því hefir eigi öllu verið hyggi- lega úthlutað. Alt of lítil rækt lögð við að auka innlenda búnaðarþekkingu. Landið á, gegnum búnaðarskólana og Bún- aðarfél. íslands, að afla reynslu um, hvað sé heppilegast að gera Iandbúnaðinum til þrifa; og stofna þannig til innlendrar búfræði. Reyna allar ræktunaraðferðir, sem eiga við staðhætti landsins, og helstu landbúnaðarvinnuvélar. Slíkar tilraunir til breytinga á búnaðarháttum, geta valdið einstaklingum ofmik- illar áhættu, þó þær séu almenningi nauðsynlegar. Þegar landið hefir, með fjárveitingum og tilraunastarfsemi, skapað innlenda búfræði, á það, með búnaðar-námskeiðum, flugritum og umferðabúfræðingum að kenna bændunum að húa, veita ráðleggingar um ræktunarfyrirtækin, og gera nýj- ungar í búnaði almenningi kunnar. Landið þarf einnig að stofna til stærri ræklunarfyrirtækja, styrkja þau í byrjun og útvega lán til þeirra. Rað ætti að styrkja nýbýlismenn, sem byrja með tvær hendur tómar á ræktarlausri jörð, eftir tillögum búnaðar-ráðanauta. Styrkja Þ^rf alla þá starfsemi, sem miðar að auknu landnámi, en á í vök að verjast í byrjun. Aftur á móti virðist, að almenni

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.