Réttur


Réttur - 01.02.1919, Page 42

Réttur - 01.02.1919, Page 42
44 Réttur. Þessi eru aðalaíriðin við hina nýju bæjaskipun, sem auð- vitað verður ærið misjöfn eftir staðháttum. Bendir flest á að hún hafi marga heilsufræðislega kosti, og geti orðið fuit svo ódýr og sú ruslakistu óskipun, sem nú ríkir, jafnvel í sjálfum höfuðstaðnum. En hún virðist einnig hafa mikla menningarlega yfirburði. Smáu húsin styðja að sjálfs-íbúð. Leiguhúsin stóru, þar sem allskonar fólki er hrúgað saman og leigjendur koma og fara oft á ári, mundu hverfa. En mikið er í það varið, að bæja- menn eigi íbúð sína, fyrir sjálfstæði þeirra og þroska; eink- um ef liúsinu fylgir svolítill skrúðgarður og hlutdeild í rækt- uðu nytjalandi. f*að getur veitt nokkuð af þeirri rótfestu, fastlyndi og átthagatrygð, sem oft vantar í þorpum. Það er nokkurs virði að þykja vænt um húsið sitt. Átthagaást er móðir ættjarðarástar. Hvorutveggja byggist meir en margan grunar á trygðinni og innileikanum, sem bundinn er við æsku- heimkynnið og híbýlin. Pá hefir skrúðgarðurinn menningargildi. Einhvers virði er það, ef börnin væru látin annast trén og blómin, svo að þeim þætti vænt um garðinn. Fegurðin göfgar, og umhyggj- an fyrir litlu jurtabörnunum. Ef að börnin hjálpa til við garðræktina að húsabaki, eiga sér þar leikvelli, og aðra stærri utanbæjar, úti í frjálsri náttúrunni, um tún og skógarlundi, þá mundu þau njóta náttúrugleði, sem er jafnheilnæm ogstræta- gleðin getur verið óheilnæm. Sjálft skipalagið á byggingu bæjarins er mentandi! Óreglan og fegurðarleysið í skipulagi og byggingum sjóþorpanna okkar er sálardrep. Svo má ljótu venjast að gott þyki. En slíkt er að venja sig á andlegt eitur. — Sagt er að íslendingar séu flestum mönnum fjölhæfari og fljótir að átta sig á nýjum verksviðum. Alþýða manna hér, mun hafa víðari sjóndeildarhring og minna starfbundinn, en víða gerist erlendis. Munu þessir eiginleikar inest að þakka margbreyttum störfuin og erfiðum viðfangsefnum, sem bún- aðurinn hef:r lagt fyrir hug og hönd, þar sem flestir mæltu taka undir með St. G. St.: »Lönguni var eg læknir minn,« o. s. frv.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.