Réttur


Réttur - 01.02.1919, Side 44

Réttur - 01.02.1919, Side 44
46 Réttur. ættu að vera gerðir af nefnd manna, er ferðaðist um alt land, og auðvitað að vera í samræmi við staðhætti og bornir undir bæjarvöld. Pað setn frainvegis yrði bygt, yrði alt samkvæmt hinum nýju uppdráttuin. Nú eru flest hús úr tré. Viða eru mikil húsþrengsli í kauptúnum. Steinsteypuhúsin eru að verða algengari. Allar líkur eru til, að á hinum næstu árum, verði mjög mikið bygt — bæði endurbygt, og reist ný þorp og nýir bæjarhlutar. Timburhúsin eiga sér ekki ævarandi framtíð. Sennilegast að eftir 50 ár verði búið að endurbyggja bæina að mestu. t*að yrði þá tíminn, sem þarf til þess að koma fullu skipulagi á byggingarnar. En víða gæti það komið miklu fyr. Eitt aí því, sem mest hamlar efnalegu og andlegu sjálfstæði verkalýðs í borgum, er fyrirkomulag atvinnunnar. — Einu sinni sá eg þar til, sem skip var afgreitt. Tvær verslanir höfðu menn í vinnu og lágu verslunarhúsin saman. Önnur verslunin lét skipa fram saltfiski, og var hann fluttur í vögn- um, er menn drógu. Hin lét flytja kornvöru að verslunar- húsum, og voru sekkirnir bornir á mannabökum. Mennirnir, er sekkina báru, voru hinum samferða, er drógu fiskvagnana tóma til baka. Varla getur gleggra dæmi allrar vinnuskipunar en þetta. — Heimskuleg notkun inannafls, þar sem hestafl og hvert annað afl gæti orðið margfalt ódýrara. Og mannaflið hálfu meira en þurft hefði, með dáh'tilli samvinnu. En þetla er ekki sérstætt atvik, heldur dæmi þess sleifarlags, sem al- gengt er við ýmsa vinnu hérlendis, og verður jafnskaðlegt verkamanni sem vinnukaupanda. Hér þarf aðgerða við. Þetta er starfsvið, sem verkamannafélögin hafa vanrækt. Verkamannafélögin eru tvent í senn: Stéttasamtök um at- vinnu og pólitísk félög. Þetta er erlenda fyrirmyndin. En eg held að bæði markmiðin hefði betra af að vera aðgreind. Gerum ráð fyrir að flestir verkamenn fylgi félagsstefnu, sem rangnefnd hefir verið »jafnaðarstefna«. En fleiri geta verið félagssinnar en verkamenn. Félagssinnar úr öllum stéttum mynda sín flokks-samtök og kosningasambönd. Algerlega

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.