Réttur


Réttur - 01.02.1919, Page 67

Réttur - 01.02.1919, Page 67
Neistar. 69 »Fölskum róm«, segir skáldið. Er það leyfilegt að álykta sem svo, að það telji ekki skortinn á mönnunum — starfsmönnun- um, eins mikinn og alment klingir. Pað gefur aftur bendingu um það, að fleira muni máske boðlegt, en talið er á okkar dögum, og er óneitanlega freistingarefni, að reyna til að færa þessum ályktunum stað. Við heyrum daglega svo til orða tekið, og kveðum sjálf svo á. að þessi og hitin sé ekki »hæfur« — ekki hæfur til þess, sem hann á að gera eða gerir. Petta segjum við ekki ætíð af þekkingu, heldur máske öllu fremur af ótta við hina stóru og glæsilegu nútíðarmenningu, annað tveggja til að fegra sjálfa okkur, með gulllituðu mistri menningar og visku, sem þá kemur fram í »krítik« — eða þá af einlægni og sannfær- ingu, sem, án þess við vitum, á oft og tíðum sömu ræturn- ar sem sé: óttann við menninguna. Eg þarf ekki að nefna nein dæmi, því við þekkjum þetta öll. Af sömu rótum er hitt einnig runnið, þegar við segjum um það, sem fram er borið, hvort heldur það er efnislegt eða andlegt, framborið af okkur sjálfum eða öðrum, að það sé »ekki boðlegt«. Óttinn við menninguna knýr þetta fram. Pessi menningar-ótti kitlar og knýr okkur til þess að láta okkur fátt um finnast. — Pað er menningarlegra en að verða hrifinn af smámunum. Pessi ótti við menninguna kemur okkur jafnvel til þess, að dæma hluti, sem við höfum ekki snefil af þekkingu á, og kemur okkur þrásinnis til þess, að koma 'alt öðruvísi til dyra, en við erum í raun og veru. Við höfum alls ekki látið okkur hugkvæmast, að menningin — hin sanna menn- >ng — ætti sér neinar rætur í okkur sjálfum. Nei, við höldutn að menningin sé utanað komandi: Gullfugl úr bláloftinu, sem ekki eigi heimilisfang hjá okkur, en sem þó sé afarmikilsvert að hafa séð fljúga, heyrt syngja, eða, ef til vill, jafvel snert kambinn á. Fví meira sem við þykjumst hafa kynst honum, °g því meiri sögur, sem við höfum um hann heyrt, því minna finst okkur um hitt fólkið, og því harðar dæmum við orð þess og gerðir, og því þykkri dúðum vefjuin við okkar insta eðli, áður en við göngunt til dyra.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.