Réttur


Réttur - 01.04.1972, Side 22

Réttur - 01.04.1972, Side 22
Ingimann Ólafsson stofnuð, en 9. júní 1933 er hann á fundi í deildinni og segir frá Novuslagnum á Akureyri, — og Jó- hannes Stefánsson, sem líka var þá við nám í Menntaskólanum á Akureyri og gekk inn 19. Jan. 1936 en hóf samstarf við okkur 1933. FYRSTU BARÁTTUMÁLIN: ÚTBREIÐSLA VERKALÝÐSBLAÐSINS Eins og gefur að skilja var okkur mjög í mun að kynna sjónarmið Kommúnistaflokksins og vinna stefnu hans fylgi. Almenningur hafði mjög óljósar og rangar hugmyndir um flokkinn, enda ekki sparað að ófrægja hann og afflytja á allar lundir. Þegar á stofnfundinum var það mark sett, að útvega Verklýðsþlaðinu 10 nýja áskrifendur, selja 25 eintök af blaðinu i lausasölu og safna 20 krón- um i blaðsjóð fyrir 1. marz. Hvergi sézt hvort þessu marki varð náð, en ég hygg að svo hafi verið. KOSNINGARÉTTUR STYRKÞEGA Árið 1932 varðaði þeginn sveitarstyrkur enn missi kosningaréttar. Atvinnuleysi var mikið, eins og öll kreppuárin, og neyddust mjög margir til þess að þiggja sveitarstyrk og voru ekki á kjör- skrá. Á öðrum fundi deildarinnar, sem haldinn var 1. febrúar 1932, var samþykkt að hefja baráttu fyrir því, að nöfnum þeirra, sem sviptir höfðu verið kosningarétti vegna þegins sveitarstyrks, yrði þætt á kjörskrána. Man ég að við félagarnir gengum milli þessa fólks og söfnuðum undirskriftum þess undir kröfu til bæjarstjórnar um að það yrði tekið á kjörskrá. Bar þetta góðan árangur. Undir kröf- una skrifuðu 34 styrkþegar, og bæjarstjórn sam- þykkti að telja allan fátækrastyrk veittan 1931 óendurkræfan, enda stafaði hann af því mikla at- vinnuleysi, sem fylgdi kreppunni og lá eins og mara á þjóðfélaginu. Eftir þetta mun maður aldrei hafa verið sviptur kosningarétti I Neskaupstað vegna þegins sveitarstyrks, og nokkrum árum síð- ar var fellt niður úr lögum það rangláta ákvæði, sem þessi réttindasvipting byggðist á. ATVINNULEYSIS- BARÁTTAN Annars var atvinnuleysisbaráttan og starfið I verklýðsfélaginu þungamiðjan I starfi kommúnista- deildarinnar. Að frumkvæði reildarinnar voru haldn- ir nokkrir atvinnuleysingjafundir og ég man eftir atvinnuleysingjafundum, sem Einar Sveinn beitti sér persónulega fyrir. Sérstaklega man ég eftir einum slíkum fundi, sem haldinn var í bæjarþingsalnum á Sómastöðum. Einar Sveinn kom tímanlega og um

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.