Réttur


Réttur - 01.04.1972, Page 46

Réttur - 01.04.1972, Page 46
menntaskóla er skrifuð af þröngsýni og ein- æði, sem er höfundi Atta radda úr pípulögn ekki samboðin. Við getum hlegið að þessu öllu saman eftir á sem fyrrverandi þátttak- endur, kennarar og áhorfendur, en það breyt- ir því ekki, að þetta stundum þreytandi fólk er þó einmitt leitandi sálir. Það er til dæmis ekkert undarlegt eða óheilbrigt við það, að strákur í menntaskóla kunni aðeins fjórar ljóðlínur eftir Ezra Pound, en telji það ósjálfrátt siðferðilega skyldu sína að reyna að gera skólasystkini sín þátttak- endur í þessari hamingju. Þetta er rétt eins og þegar maður uppgötvar, að Beethoven og Mozart séu eitthvað annað en sinfóníugarg og vill ólmur leiða aðra úr myrkrinu. Eða þegar maður hefur loksins skilið sum hin ein- földu grundvallaratriði marxismans, svo sem eins og það, að allur borgaralegur réttur sé í rauninni stéttarlegur óréttur. Þá er annað fólk litið vorkunnlátum augum. I sem stytztu máli sagt, þá er menningarsnobbið framfara- viðleitni, hversu hvimleitt sem ýmsum kann að þykja það, og í því er einatt fólgin meiri einlægni en hjásetumönnum er Ijóst. Svo er líka til annarskonar snobb, niðurávið, sem er engu geðslegra en hitt. sem hér er haft að skotspæni. Hvaðan kemur höfundi t.d. sú vitneskja, að hinir ungu menningarbjargvættir telji sjálfum sér trú um, að þeir hafi lesið allan Ezra Pound, en ekki aðeins þessar þrátt- nefndu fjórar línur? Slíkur eiginleiki er helzt til sem hugarfóstur andstæðinga þeirra eða öfundarmanna. En hitt er skelfing venjulegur hlutur, að þeim sem ekkert vita finnist hinir, sem örlítið vita, tala af talsverðu yfirlæti, og veldur þetta oft grátlegum misskilningi. Það er sömuleiðis grunnfærnislegt að telja stuttleika Rimbauds og Jóhanns Jónssonar helztu ástæðuna fyrir vinsældum þeirra. Fyrir utan hjól tízkunnar koma hér líka til athug- unar þau eldgömlu fyrirbrigði, sem kallast magn og gæði. Og að öllu öðru jöfnu hlýtur stutt bók að teljast fullkomnara verk en löng. Undir lok kapítulans kemur svo þessi grát- broslega viðurkenning: „Þeir voru flestir ó- mótaðir." Nema hvað? Hver getur búizt við öðru en að krakkar í menntaskóla séu ómót- aðir. Hvenær eru menn eiginlega orðnir mót- aðir? Það er áreiðanlega nokkuð háskalegt stig, þegar maður fer að telja sig orðinn full- mótaðan og sjálfsagt ekki sízt fyrir rithöfund. Það er mikið talað um kynslóðabil nú á dögum. Líklega er þetta bil þó hvorki meira né minná en verið hefur og fer minna eftir líkamlegri en andlegri elli. Hið raunverulega kynslóðabil á sjálfsagt meira skylt við spurn- ingar og svör Jónasar Hallgrímssonar: Hvað er skammlífi? Skortur lífsnautnar. Hvað er langlífi? Lífsnautnin frjóva. Þar sem Vésteini virðist ganga gott til gagnvart mannkyninu, ætti hann að virkja geðvonzku sína til þarfari hluta en gera skimpi að þroskaviðleitni ungra menningar- vita. Þótt úr þeim hópi spretti margskonar kvistir, þá eru einmitt þess á meðal mörg okkar beztu börn. Það er einmitt þetta fólk, sem nú virðist ætla að verða spilltri yfirstétt hvað hættulegast í menntaskólum og háskól- um víða um heim. Vilji menn af einlægni ráðast gegn meinsemdum þjóðfélagsins, verð- ur að gera greinarmun á illkynjuðum æxlum og meinlausum graftarbólum, sem oft eru ekki annað en eðlileg þroskamerki á ungling- um. Annars verður úr öllu saman smásálar- legt og afturhaldslegt skítkast móti vindi, sem veldur leiðindakaunum á annars þroskavæn- legum höfundi. 94

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.