Réttur - 01.04.1972, Qupperneq 61
árunum og sætti þar illri meðferð, sem iék
heilsu hans illa. Meðal þeirra bóka, er hann
skrifaði eftir strið má nefna: „Krigen köpt
paa Afbetaling" 1946, „Mr. Churchills 2’
Front'* 1947, „De baltiske Folks Friheds-
kamp" 1948, „Pengemagt og Ruslandspoli-
tik“ I—II 1953 og „Krigens Kremmere", er
skrifuð var um likt leyti.
Hann varð þingmaður fyrir Kommúnista-
flokkinn og siðar fyrir S.F. (Socialistisk
Folkeparti) og svo fyrir Vinstri sósíalista-
flokkinn um tíma. Sérstaklega einbeitti hann
sér að utanrikismálum og húsnæðismálum.
Var m.a. fulltrúi S.F. á þingi Sameinuðu
þjóðanna.
ÚT ÚR EINANGRUNINNI
Það voru oft mikil umbrot í danska Kommúnista-
flokknum á þessum árum, en öll voru þau innan
mjög þröngs hóps. Urðu þá ýmsir klofningar í
flokknum og lentu sumir leiðtogar hans, svo sem
Ernst Christiansen yfir til sósíaldemókrata og gerð-
ust síðar um tíma forustumenn þar. Bauð Komm-
únistaflokkurinn fram til þings á þessum tíma en
fékk aðeins hverfandi litið fylgi, 1929 t. d. 3656
atkvæði eða 0,2% atkvæðanna.
Gerbreyting á þessu varð fyrst eftir að Aksel
Larsen hafði tekið við formennsku flokksins 1929
og tók að fylkja flokknum saman til einarðrar
baráttu til að ná fjöldafylgi. Möguleikarnir til þess
uxu gífurlega eftir að heimskreppan var skollin á
og atvinnuleysið og vaxandi örbirgð sýndu af-
leiðingar kapitalismans í allri sinni hryggðarmynd.
Sýndi Aksel I þessari baráttu alla þá miklu áróðurs-
hæfileika sína, sem áttu eftir að einkenna hann allt
hans lif og gera hann að fremsta ræðumanni og
áróðursmanni Danmerkur. Sérstaklega varð fræg
viðureign hans við lögregluna 1932, er hann til
að geta talað til atvinnulausra verkamanna, komst
út í bát á skurði einum í miðri Höfn og hélt þaðan
raeður til fólksins, er safnaðist saman á bökkum
skurðsins.
Við þingkosningarnar 16. nóv. 1932 fékk svo
Kommúnistaflokkurinn i fyrsta sinn kosna þing-
menn, þá Aksel Larsen og Arne Munch-Petersen.
Fékk flokkurinn þá 17162 atkvæði eða 1,1% at-
kvæða. (1939 fékk flokkurinn 30.893 atkv. eða
Martin Nielsen
2,4%. Kommúnistaflokkur Islands fékk 1933 7,5%
atkvæða, 1937 8,5%). I þeirri baráttu, sem í hönd
fór, gegn auðvaldsskipulaginu sjálfu, sem blasti
nú við í sinni hrottalegustu mynd: heimskreppunni
og fasismanum, afsprengi þess, — safnaðist smá-
saman og skólaðist i átökunum það mannval, sem
síðar átti eftir að gera garðinn frægan. Sósíal-
demókratarnir héldu að vísu algerri forustu í verka-
lýðssamtökunum, en í einstökum verklýðsfélögum
og vinnustöðvum létu kommúnistarnir mjög til sín
taka og framar öllu þó í baráttu atvinnuleysingj-
anna. Hugsjón sósialismans og boðskapurinn um
breiða samfylkingu gegn fasismanum hreif marga
menntamenn til þeirra, ekki sízt skáldin. Martin
Andersen-Nexö setti sinn svip á flokkinn og þeir
Hans Kirk og Hans Scherfig, báðir með beztu rit-
höfundum Danmerkur, beittu sínum skörpu penn-
um í þjónustu hins góða málefnis bæði þá og siðar.
Og Herluf Bidstrup hóf á þessum árum að styðja
flokkinn og blað hans með sínum listrænu háð-
myndum.
Sambönd okkar íslenzkra kommúnista við danska
109