Réttur


Réttur - 01.04.1972, Side 66

Réttur - 01.04.1972, Side 66
ekki gleyma, hve gífurleg áhrif kalda stríðsins og ameríska áróðursins urðu í þeim efnum. Annað mikla verkefnið, sem nú beið flokksins, var að breyta afstöðu sinni, allri viðmiðun í verki, frá því að vera hetjuflokkur leynibaráttunnar, leið- togi fólksins í vissri tegund borgarastríðs, yfir í það að vera forystuflokkur fjöldans í hinni dag- legu stéttabaráttu, oft tilbreytingalitilli og þreyt- andi, þar sem sigur í miklum átökum verður aðeins tryggður með endalausu starfi hinna mörgu í önn- um hins daglega lífs. — Annarsvegar kemur þá oft til sú þreyta, sem Nordahl Grieg varar svo við í vissum kvæðum*) þreytan, þegar spennan slakn- ar eftir áreynsluna miklu, þá baráttu upp á líf og dauða, sem gerði meðalmenn hins daglega lífs að hetjum og ýmsa — jafnvel undarlega — for- ingja oft að dýrlingum þjóða.**) Og raunar er þar ekki aðeins um þreytu að ræða, heldur og beinlínis erfiðleika manngerðarinnar sjálfrar. Það sýnir sig bezt eftir byltingar, hvílikum sorgleikum það veldur, er manngerð sú, er byltingum stjórnar, tekur að víkja fyrir þeim skipuleggjendum sem kunna að stjórna uppbyggingu atvinnulífsins eins vel og hinir mögnun fólksins og valdatökunni, — en fæstir megna að vinna hvorutveggja. — Hins vegar reynir á flokkinn og ekki sist foringja hans að geta verið leiðtoginn á friðsamlegum tím- um, — í lægðinni milli hinna miklu og oft hetju- legu átaka — með öllu því samningamakki, með hættu afsláttar og jafnvel spillingar, sem af því getur leitt. Verkalýðurinn þarf jafnt að geta háð stéttabaráttu sína á slíkum tímum, við slikar aðstæður, — og megni kommúnistarnir ekki að laga sig að því forustuhlutverki, þá ná oft aðrir þeirri aðstöðu að geta leitt verkalýðinn og þá máske til ósigra og inn á villigötur. — Forustu- menn marxistísks flokks þurfa þá oft á þeim eigin- leikum að halda að geta jafnt verið fangar í dag sem ráðherrar á morgun. Stjórnlist góðs marx- istísks flokks er að kunna að berjast jafnt við hvorar kringumstæðurnar sem er og að fylkja fjölda alþýðunnar um sig. Hitt mikla vandamálið var afstaðan til Sovét- ríkjanna og það erfiða vandamál að finna á þvi rétta lausn. Og einmitt þar var steytt á mörgu skerinu. Fyrir stríð, þegar Sovétríkin voru eina land heimsins, þar sem sósíalistisk bylting hafði sigrað, var það eðlilegt að marxistiskir flokkar heims litu á það sem eitt af verkefnum sinum að efla samúð *) Ég á hér við tvö kvæði, sem Nordahl Grieg ákvað að ekki skyldu birtast fyrr en að stríði loknu. Annað er „Den menneskelige natur'1 ort á Þingvöllum í september 1942, — kaflinn: „Bli fremfor alt ikke trætte — som mennesker blir etter kriger — nár grumset og griskheten kommer i fölge med motlösheten, det varme rátnende dyndet lagret av hundrede slektledd hvor sinnet kan krype til hvile og han som vi drepte kan oppstá". Sami óttinn birtist hjá Nordahl Grieg I uppruna- lega kvæðinu um Viggo Hansteen, einkum þessum vísum: „Fra dodstimens bleke brorskap skal de gá inn I vár fred. Og de vil drives tilbake og vises sitt hvilested. 114 Kanskje det samme hjertet som kunne ha gitt sitt blod vil ikke tále i livet det som de falne forstod. Jorden skal ryddes for dode, blir rede til salg og kjöp. (Den slove tanken kan myrde sá godt som et bosselop.) Alt sem er lavt skal bli kalt for: den menneskelige natur. (Glemte er korslose graver, sveket er blodvát mur.) Menneskets stolte hjerte, som grenselost gir seg hen villig, hvis det blir kalt pá, á do for en ukjentven — menneskets stakkars hjerte som, fattig, ikke formár á bære sin egen storhet gjennom de lange ár — **) Slíkur var og er t. d. Peter Furubotn formaður Kommúnistaflokks Noregs á stríðsárunum, oft kall- aður Tito Noregs að loknu stríði.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.