Réttur - 01.04.1972, Page 75
INNLEND agB
VÍÐSJÁ i
RÁÐSTEFNA
í febrúar kom hingað sendinefnd ungra
jafnaðarmanna í Noregi. I framhaldi af
komu þeirra hingað var ákveðið að efna til
ráðstefnu ungra sósíalista og annarra vinstri
manna á Norðurlöndum á Islandi í sumar.
Undirbúningur að ráðstefnunni er hafinn og
er gert ráð fyrir að hún verði haldin í sept-
ember.
SYKING I ÁLVERINU
í marzmánuði birtust í Þjóðviljanum við-
töl við verkamenn sem höfðu að öllum lík-
indum orðið fyrir sýkingu vegna aðstæðna í
álverksmiðjunni í Straumsvík. I framhaldi af
þessum blaðaskrifum gekk formaður Hlífar
á fund iðnaðarráðherra og krafðist þess að
hollustuhættir í álverinu yrði teknir til endur-
skoðunar. Iðnaðarráðherra skipaði þegar
nefnd til þess að kanna þessi mál og vinnur
hún nú að áthugun sinni.
ÞVERBRAUTARMÁLIÐ
Mánudaginn 27. marz afhenti sendiherra
Bandaríkjanna hér á landi tilkynningu þess
efnis að Bandaríkjastjórn vildi nú án skilyrða
leggja fram fé til lengingar þverbrautarinnar
á Keflavíkurflugvelli.
I frétt frá utanríkisráðherra um þetta mál
segir meðal annars, að ákvörðun um „að
fallast á ofangreindar framkvœmdir bygght
á þeirri sko'ðun ríkisstjórnar Bandaríkjanna,
að lenging þverbrautarinnar og bcett aðstaða
fyrir flugvélar varnarliðsins sé hagsmunamál
bceði hvað snertir flugöryggi og varnarmátt
Atlanzhafsbandalagsins". Þjóðviljinn tók þeg-
ar afstöðu gegn tilboði Bandaríkjastjórnar,
og birt var í blaðinu viðtal við iðnaðarráð-
herra þar sem hann lýsti andstöðu Alþýðu-
bandalágsins til þess að tilboð Bandaríkja-
stjórnar yrði tekið.
Er málið var tekið fyrir í ríkisstjórninni
greiddu ráðherrar Alþýðubandalagsins at-
kvæði á móti en ráðherrar Framsóknar og
frjálslyndra greiddu atkvæði með því að til-
boðinu yrði tekið. Við j>etta tækifæri gerðu
ráðherrar Alþýðubandalagsins svofellda bók-
un:
„A fundi ríkisstjórnarinnar í morgun létu
ráðherrar Alþýðubandalagsins bóka eftirfar-
andi:
„Ráðherrar Alþýðubandalagsins, Lúðvík
Jósepsson og Magnús Kjartansson, lýsa sig
andvíga því, að tilboði Bandaríkjastjórnar um
fjárframlög til framkvæmda á Keflavíkur-
flugvelli verði tekið, með svofelldri bókun:
1. Við teljum að stefna beri að því að gera
Keflavíkurflugvöll að mikilvægum lend-
ingarstað fyrir almennt farþegaflug yfir
Norður-Atlanzhaf og að miða beri allar
framkvæmdir á vellinum við það mark-
mið. Því hlutverki mun völlurinn ekki
123