Réttur


Réttur - 01.04.1974, Side 14

Réttur - 01.04.1974, Side 14
að halda heimleiðis frá Leipz g til Berlín eftir að hafa m.a. fengið að koma inn á flokksþing þýska kommúnistaflokksins, sem haldið var í Leipzig. Við biðum eft:r lest á járnbrautarstöðinni og gáfum okkur á tal við verkamann, er sat þar við borð sem við og drakk sinn bjór. Hann tók að skilgreina efnahagsástandið í Þýska- landi á þessum tima markfallsins mikla og hverjir stjórnuðu því fyrlrbrigði og græddu á þvi. Þessi verkamaður ræddi málið með slikum rökum og af slikri þekkingu að auðheyrt var að hann var þrællesinn i hagfræði marxismans og skólaður i þeim ágætu verklýðsskólum, sem þýska verkalýðshreyfingin hélt þá uppi. Við kvöddum hann með virktum og virðingu, er lest okkar kom, og sögðum: „Við erum líka komm- únistar". Það er hin brýnasta nauðsyn að sem flestir verkamenn í sósíalísku verkýðshreyfingunni kunni góð skil á marxistískum fræðum: þekki það þjóð- félag, sem þeir þurfa að berjast gegn, og viti hverskonar mannfélag þeir ætla að skapa sér og sínum. Hinir andlegu yfirburðir verkalýðsins yfir auðmannastéttina eru honum jafn nauðsynlegir og styrkleikur hans og vald gagnvart henn'. Þessvegna er skólun sósíalistiskrar verklýðs- hreyfingar á félögum sínum hin brýnasta nauðsyn. Það var frá upphafi mikill Ijóður á ráði Alþýðu- flokksins hvernig hann vanrækti þessa skyldu hverrar róttækrar verklýðshreyfingar. Það féll i skaut vinstri arms hreyf.'ngarinnar að gefa út það litið, sem út kom af fræðiritum sósialismans á því skeiði: Kommúnistaávarpið (1924), Þróun jafnað- arstefnunnar (1928) og fleira. Þannig hélt það og áfram eftir að Kommúnistaflokkurlnn var stofnaður og sýndi mikinn dugnað í útgáfu bóka og bæklinga. Eina virkilega viðleitnin af hálfu Alþýðuflokksins eftir 1930 var það, sem „Bókmenntafélag jafnaðar- manna" gerði. Hið andlega ósjálfstæði Alþýðu- tloKksins var líka er fram í sótti i samræmi við þennan skort á útbreiðslu sósíalískrar þekkingar og hefur nú endað með því að vissir foringjar og nokkur hluti flokksins eru raunverulega orðnir hvort- tveggja í senn: samdauna Ihaldinu pólitískt og háð- ir því hvað blaðakost snertir. Hinsvegar gerbreyttlst öll aðstaða sósíalistiskrar verklýðshreyfingar hvað bókaútgáfu snertir við til- komu Máls og menningar og bókaútgáfunnar Heims- kringlu fyrir frumkvæði kommúnista og þá fyrst og fremst Kristinn E. Andrésson. Áður (1926) hafði Réttur orðið timarit marxista. Svo það var unnið markvisst að því að auka þekkingu hinna vinnandi stétta á þjóðfélagsmálunum almennt og marxisman- anum sérstaklega, eigi aðeins með slíkri útgáfu bóka og tímarita, heldur og blaðaútgáfu, einkum eftir að Þjóðvilj nn varð dagblað 1936. Hinsvegar hefur starfsemi Alþýðusambands Islands á þessum vettvangi verið alltof litil og léleg, þegar frá eru skilin fyrstu árin eftir 1942, þegar „Vinnan" kom út sem glæsilegur boðberi fyrir hugsjón og hags- muni allra vinnandi stétta. Það er stundum eins og hinn brennandi áhugi á boðskap verklýðshreyfingar- innar hafi kólnað og orðið úti í hinu kalda stríði og meðvitund n um frelsismarkmið hreyfingarnnar dofnað að sama skapi og sjóðir verklýðsstéttarinn- ar urðu digrari — og er það illa farið. „Vinnan" sem nú kemur út á vegum A.S.I. er aðeins svipur hjá sjón miðað við það, sem var fyrir 30 árum. Betur má þvi ef duga skal. I þessum efnum þarf verklýðshreyfingin að stiga stór skref fram á við á næstunni. Einmitt með áróðri sinum hefur aftur- haldið skapað sér sterka aðstöðu, sem verklýð- urinn þarf að hnekkja, til þess að geta orðið for- ustan i þjóðfélaginu. Á öllum þessum sviðum bíða því sósíalistisks verklýðsflokks hin veigamestu og vandasömustu verkefni, en lausn þeirra er algert skilyrði fyrir forustu og varanlegu valdi hans í þjóðfélaginu. Verklýðshreyfingin í þeirri merkingu, sem orðið er notað hér í „Rétti" sem hreyfing alla þeirra, er á launavinnu lifa, hvort sem þeir í daglegu tali eru kallaðir verkamenn, iðnaðarmenn eða langskóla- gengnir „launþegar," — verklýðsheyfingin hefur breytst frá þeim tímum, er hún var að mestu hreyfing bláfátækra ófaglærðra daglaunamanna. Sú breyting skapar mikil vandamál. Þótt ekki sé um að ræða hagsmunamótsetningar mllli ófaglærðra verkamanna, faglærðra iðnaðarmanna eða lang- skólamenntaðra sérfræðinga á ýmsum sviðum, þá eru hagsmunir þeirra og einkum hagsmunasjónar- mið oft mjög mismunandi. Sjálfstjórn alls þessa „verkalýðs" er prófsteinn á þroska hans og hæfi- le ka til að stjórna. Það reynir á öll þessi launa- vinnuöfl að koma sér saman, — hugsum aðeins til ASl og BSRB og nú BHM, í því sambandi. Síð- ustu kjarasamningar sýna hve brýn þörf er á að öll þessi stétt hugsi af alvöru og breyti af réttlæti. Til þess að geta stjórnað þjóðfélaginu, verður öll launavinnustéttin að sýna að hún geti stjórnað sjálfri sér — og öll stéttabaráttan er sá harði skóli, 86

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.