Morgunblaðið - 15.10.2006, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 23
voru og þar hafði ég séð hana leika
við börnin úti í sandkassa en síðan
hafði ég auðvitað séð hana í gervi
skrímslisins Silvíu Nætur og vissi
því hvaða hæfileikum hún bjó yfir.
Eftir að hafa boðið henni í prufu
var ljóst að henni var treystandi
fyrir hlutverkinu. Þetta var al-
gjörlega hárrétt val. Ég er feikilega
ánægður með frammistöðu hennar í
myndinni og sömuleiðis fannst Arn-
aldi góð hugmynd að Ágústa léki
Evu Lind.“
Eitt mikilvægt verkefni beið þó
Baltasars og Ágústu áður en byrjað
var á myndinni. „Við þurftum að má
út Silvíu Nótt og það tókst,“ segir
Baltasar.
Leiklist hefur lengi verið eitt
aðaláhugamál Ágústu og því fannst
henni hún hafa himin höndum tekið
þegar Baltasar bauð henni hlut-
verkið. „Ég hef aldrei leikið persónu
í líkingu við Evu Lind en ég treysti
bara á að Baltasar léti mig vita ef
ég stæði mig ekki. Ég ákvað að
gera Evu Lind ekki að dæmigerð-
um fíkniefnaneytanda, heldur hafa
hana svolítið óræða. Hún sýnir því
ekki mikil svipbrigði, enda er hún
svo týnd að hún veit ekki alveg hver
hún er.“
Gastu sótt í eigin reynslu?
„Já, já, hafa ekki allir einhvern
tímann verið svolítið týndir og átt
erfitt með að fóta sig? Ég talaði líka
við vinkonu mína sem hefur svipaða
reynslu að baki og Eva Lind. Það
hjálpaði mér mikið. Í bókinni er
aldrei tekið fram hvaða fíkniefni
Eva Lind notar, heldur er bara sagt
að hún sé í neyslu og að hún geti
ekki hætt. Hún reynir að kenna for-
eldrum sínum og skilnaði þeirra um
hvernig komið er fyrir henni, en það
er auðvitað ekki rétt hjá henni. Eva
Lind er bara veik. Hún hefur bara
enn ekki gert sér grein fyrir því.“
Atriðin þar sem Eva Lind birtist
í myndinni eru þónokkur talsins og
sum reyndu verulega á Ágústu. Í
einu þeirra þurfti hún standa á
nærfötunum einum fata úti um
miðja nótt. „Það var kalt,“ segir
Ágústa brosandi, „en ég er ýmsu
vön. Ég var mjög stressuð áður en
tökur hófust og ég man að fyrsta
daginn fannst mér andrúmsloftið á
tökustaðnum svo rólegt. Ég hafði
skilað mínu í tveimur atriðum en
enginn sagði mér hvernig ég hefði
staðið mig. Mig fór því strax að
gruna að þetta hefði verið svo
hrikalega slæmt að enginn þyrði að
segja neitt við mig. Ég fékk svo
slæman móral yfir að vera að
skemma myndina að ég ákvað að
gefa mig á tal við Baltasar og láta
hann vita að ef ég stæði mig ekki
mætti hann alveg segja það. Þá hló
hann og sagðist ekkert vera hrædd-
ur við að segja fólki hug sinn og að
þetta hefði verið alveg ágætt hjá
mér.“
Aðdáendur bóka Arnaldar höfðu
skiljanlega mikinn áhuga á því
hverjum yrði falið hlutverk Erlends
og loks féll það í skaut Ingvari E.
Sigurðssyni. Hvernig var að leika á
móti jafn reyndum leikara?
„Það var merkilega eðlilegt. Ingv-
ar er auðvitað frábær leikari auk
þess sem hann gefur mikið af sér
en það hjálpaði mér ekki síst. Það
er svo mikilvægt að ég trúi því sem
mótleikarinn minn segir. Þegar það
gerist næ ég að gleyma mér og lifa
mig betur inn í augnablikið. Þá
verða líka galdrar.“
Baltasar finnst mjög ánægjulegt
hvað Ingvar og Ágústa náðu vel
saman. „Það getur verið erfitt fyrir
leikara að leika á móti ólærðu fólki
og vondur mótleikur getur sett þá
út af laginu en Ingvar var mjög
ánægður með að vinna með
Ágústu,“ segir Baltasar.
Skemmtilegasta atriðið fannst
Ágústu þegar hún og fleiri elduðu
saman kjötsúpuna sem Eva Lind
gefur pabba sínum að borða. „Allir
hjálpuðust að við eldamennskuna og
fólk átti það til að fá sér dreitil
beint úr pottinum. Það var mikil
nostalgíustemning yfir þeim degi
enda ár og aldir síðan ég hafði
borðað kjötsúpu og drukkið mjólk
með í ullarsokkum og allt. Það var
æðislegt.“
Leikferillinn hófst í Kópavogi
Þegar ég spyr Ágústu hvort
henni hafi boðist fleiri hlutverk í
kvikmyndum svarar hún leyndar-
dómsfull: „Jafnvel, en kannski ég
eigi eftir að gefa mig meira að tón-
list á næstunni. Það er best að ein-
beita sér bara að einu í einu. Það er
ein stefna tekin í dag og önnur á
morgun. Við skulum bara sjá til.
Það er svo ótrúlega margt sem mig
langar til að gera en hvað það verð-
ur veit nú enginn – ekki einu sinni
ég.“
Mýrin hefur selst í bílförmum á
Íslandi og víðar um heim reyndar.
Hvers vegna ætti allt þetta fólk að
vilja sjá Mýrina þegar allir vita fyr-
ir löngu hver framdi morðið?
„Það er allt önnur upplifun að sjá
kvikmynd en að lesa bók,“ svarar
Ágústa. „Handritið er heldur ekkert
alveg eins og bókin og kannski hef-
ur endinum líka verið breytt.
Kannski er Eva Lind orðin morð-
inginn, kannski fer Baltasar á kost-
um sem unglingaveikur gotari í
kirkjugarðinum í andaglasi á einu
leiðanna og kannski opnast himn-
arnir og niður hrynja ókeypis
plasmasjónvörp, hver veit? Þetta er
fokkingbíó!“
Skemmtilegasta kvikmyndin sem
Ágústa hefur séð er bandaríska
gamanmyndin Night at the Rox-
bury en uppáhaldsleikarinn hennar,
Will Ferrell, fer þar með annað að-
alhlutverka. Síðan er hún líka aðdá-
andi spænska kvikmyndaleikstjór-
ans Pedros Almodovar. „Annars er
ég hrifin af alls konar myndum,“
tekur hún fram. „Ég gleymi þeim
reyndar alltaf mjög fljótt.“
Leikferill Ágústu Evu, sem nú er
24 ára, hófst fyrir um það bil fjórum
árum þegar vinur hennar fékk hana
með sér á æfingu hjá Leikfélagi
Kópavogs. Þar fannst Ágústu svo
skemmtilegt að hún var þar með
annan fótinn í um þrjú ár. Þegar
hún kom þangað fyrst stóð fyrir
dyrum að æfa leikrit unnið upp úr
Grimmsævintýrum í leikstjórn
Ágústu Skúladóttur. Þar lék Ágústa
Eva nokkur hlutverk, þ.á m. Grétu í
ævintýrinu um Hans og Grétu og
lötu stúlkuna í samnefndri sögu.
Leikfélag Kópavogs sýndi Grimms-
ævintýrin á leiklistarhátíð í Litháen
og Svíþjóð en á síðarnefnda staðn-
um sá Ágústa rússneska sýningu
sem opnaði augu hennar fyrir því
hvað leikhúsið getur boðið upp á.
„Leikflokkurinn hafði sjálfur samið
verkið sem var án orða. Þess í stað
komu leikararnir sögunni til skila
meðal annars með látbragði,
skuggamyndum og tónlist. Þessi
sýning hitti mig beint í hjartastað.“
Vegur Grimmsævintýranna var
allnokkur því Þjóðleikhúsið valdi
sýninguna athyglisverðustu áhuga-
mannasýninguna það árið og því
fékk Leikfélag Kópavogs tækifæri
til að sýna hana á Stóra sviðinu.
Samt hefur Ágústu aldrei langað til
að sækja um inngöngu í leiklist-
ardeild Listaháskólans. „Ég hef
hreinlega ekki haft tíma til þess en
ég hef farið á fjölda leiklistar-
námskeiða þar sem ég lærði mjög
» Því fleiri bækur sem
ég les eftir Arnald
því meira finn ég
sameiginlegt með
okkur Evu Lind.