Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 43
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 43
4
www.sigurdurkari.is
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi
Halldór Blöndal
„Það hefur vakið sérstaka eftirtekt mína
hversu Sigurður Kári er harðskeyttur
og öflugur málsvari Sjálfstæðisflokksins
og hversu vel undirbúinn og atorkusamur
hann er í öllum sínum störfum á Alþingi.“
„Sigurvissan sé ég hann, með sveip í hári.
Í fjórða sætið - Sigurður Kári.“
Þorsteinn Davíðsson
lögfræðingur
Jóna Gróa Sigurðardóttir
fyrrv. borgarfulltrúi
Séra Hjálmar Jónsson
dómkirkjuprestur
Borgar Þór Einarsson
formaður SUS
Kjartan Magnússon
borgarfulltrúi
Ásdís Halla Bragadóttir
forstjóri Byko
Páll Gíslason,
læknir
Sif Sigfúsdóttir
varaborgarfulltrúi
Gunnar Jóhann Birgisson
hæstaréttarlögmaður
Guðmundur H. Garðarsson
fyrrv. alþingismaður
Gísli Marteinn Baldursson
borgarfulltrúi
Vilhjálmur Egilsson
framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins
Elínbjörg Magnúsdóttir
fiskverkakona
Halldór Blöndal
fyrrv. forseti Alþingis
Hanna Birna Kristjánsdóttir
„Sigurður Kári skilur mikilvægi þess
að frelsi einstaklingsins sé í öndvegi allra
ákvarðana á vettvangi stjórnmálanna.
Það hefur hann sýnt í störfum sínum
á Alþingi og fyrir Sjálfstæðisflokkinn
og þess vegna styð ég hann heilshugar.“
Við styðjum Sigurð Kára Kristjánsson í 4. sæti
Hanna Birna
forseti borgarstjórnar
Jóhann J. Ólafsson,
stórkaupmaður
Þorkell Sigurlaugsson,
framkvæmdastjóri
þróunarsviðs HR
Jónas H. Haralz,
fyrrv. bankastjóri
Pétur Gautur Svavarsson
myndlistarmaður
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október.
Hef opnað stofu í
Læknastöðinni í Glæsibæ,
aðgerðir á sama stað
ORRI ÞÓR ORMARSSON
Sérgrein BARNASKURÐLÆKNINGAR,
ALMENNAR SKURÐLÆKNINGAR
Tímapantanir alla daga í síma 535 6800
Þ
ar sem ég er komin af
allra léttasta skeiði og
barnshafandi bauðst mér
á dögunum að láta
hnakkaþykktarmæla
barnið sem ég geng með. Vökvinn í
hnakkagrófinni er mældur með són-
arskoðunartæki og ef hann er óeðli-
lega mikill bendir það til að hugs-
anlega sé um einstakling með
Down-syndrome að ræða.
Þó er ekki hægt að skera úr um
það með fullri vissu.
En þá er hægt að láta taka sýni
úr legvatni eða fylgju til að komast
nær sannleikanum en að vísu er þá
örlítil hætta á fósturmissi.
En nútíminn býður upp á að því
er virðist endalausar leiðir til að
rannsaka börn í móðurkviði.
Þar sem við búum í Hollywood
þar sem vitfirrtar stjörnur eiga þess
kost að kaupa sér sónartæki og
fylgjast með afkvæmum sínum dag-
lega var ýmislegt við þessa lækn-
isskoðun sem kom mér undarlega
fyrir sjónir.
Ég hef ekki áður staðið frammi
fyrir þeim kosti að geta haft svo
mikið að segja um afdrif barnsins
sem ég geng með.
Áður en hnakki barnsins var
mældur var okkur hjónum boðið
upp á genetíska ráðgjöf.
Á móti okkur tók fram úr hófi
gleiðbrosandi kvenmaður sem virt-
ist líkari eitilhörðum sölumanni en
skólasystur Kára Stefánssonar.
Fraukan virtist barnung og því
brá mér heldur í brún þegar hún
sagði glaðbeitt að fyrir fimmtán ár-
um þegar hún hóf störf hjá fyr-
irtækinu hefði hún ekki getað boðið
upp á neitt af þessum dásamlegu
nýjungum sem hún var um það bil
að fara að leiða okkur í sanninn um.
Við vorum rétt búin að hitta kon-
una og mér var strax orðið í nöp við
hana. Þetta var stökkbreyttur and-
skoti, það fór ekki á milli mála.
Hvernig fór hún að því að líta svona
vel út?
Hún kynnti hverja rannsókn fyrir
sig líkt og um vörur í verslun væri
að ræða.
Síðan teiknaði hún niður á blað af
mikilli færni ættartré okkar beggja
þar sem við eftir bestu getu reynd-
um að rifja upp þær meinsemdir
sem hafa hrjáð fjölskyldumeðlimi
okkar í gegnum aldirnar og fram á
okkar daga.
Ég hef nú ekki legið í sjúrnölum
fjölskyldunnar, því gekk okkur
hjónum ekkert sérlega vel í þessu
minnisprófi enda af hraustu fólki
komin svona gegnumsneitt.
En þegar hingað var komið sögu
var ég gjörsamlega miður mín og
sannfærð um að eitthvað væri að.
Því hræðsluaðferðin hefur tilætluð
áhrif.
1. Yfirheyra fólk í lengd og breidd
um hugsanlega sjúkdóma sem leyn-
ast í ættum þeirra.
2. Bjóða síðan upp á rannsókn-
arleiðir til að sjá fyrir hina og þessa
galla þó með þeim formerkjum að
ekkert sé óbrigðult í þeim efnum.
3. Kynna leiðir til að borga slíkar
rannsóknir því ekki eru þær ókeyp-
is.
4. Í framhjáhlaupi nefna þann val-
kost að ef um einhvern hugsanlegan
genagalla sé að ræða, gefist manni
kostur á að láta eyða fóstrinu allt
fram að tuttugustu viku meðgöngu.
5. Að endingu spyrja elskulega
hvað manni hugnist að láta fram-
kvæma í dag. Ekki ólíkt því þegar
maður fer og lætur klippa sig.
Ég spurði yngri dóttur mína ein-
hverju sinni hvar hún hefði verið áð-
ur en hún fæddist.
Það stóð ekki á svörunum. Hún
sagðist hafa verið uppi í skýjunum
og fylgst með mér úr glugganum
hjá Guði. Að því búnu hefði hún val-
ið að ég yrði mamma hennar. Mér
lætur betur að hallast að þeirri sið-
fræði að börnin velji okkur en ekki
öfugt.
Óhreinu börnin hennar Evu
HUGSAÐ UPPHÁTT
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
steinunnolina@mbl.is
’Ég hef nú ekki legið ísjúrnölum fjölskyld-
unnar, því gekk okkur
hjónum ekkert sérlega
vel í þessu minnisprófi.‘
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík