Morgunblaðið - 15.10.2006, Page 54
54 SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
NOKKUR umræða hefur átt sér
stað í þjóðfélaginu um samgöngu-
mál undanfarin misseri og er ekki
að undra. Það sem hins vegar vekur
nokkra furðu er í
hvaða farvegi umræð-
an hefur farið. Í stað
þess að ræða brýna
þörf fyrir stórátak til
að bæta íslenska vegi
verður mönnum tíð-
rætt um nauðsyn þess
að taka upp strand-
flutninga að nýju. Gef-
ið er í skyn að það
muni verða til þess að
við losnum við af veg-
unum vöruflutn-
ingabílana sem virðast
vera sökudólgar alls
þess slæma í umferðinni á þjóð-
vegum landsins þessa dagana.
Nú nýlega hefur þing Neytenda-
samtakanna talið ástæðu til að
blanda sér í þessa umræðu. Í sam-
þykkt þeirra um stefnumótun í
neytendamálum frá 30. sept. sl. eru
fullyrðingar í þá veru að strand-
flutningar séu þjóðhagslega hag-
kvæmastir og því beri stjórnvöldum
með aðgerðum sínum að beina
vöruflutningum til og frá lands-
byggðinni yfir í strandflutninga.
Auk þess er bent á að strandflutn-
ingar séu umhverfisvænni kostur
en vöruflutningabílar og klykkt út
með því að fullyrða að vöruflutn-
ingabílar séu skattlagðir mun
minna en sem nemur kostnaði hins
opinbera við þá.
Í ljósi þessara fullyrðinga er vert
að benda á eftirfarandi: Í grein-
argerð sem unnin var af samgöngu-
ráðuneyti, Vegagerð og Sigl-
ingastofnun 2004 í tengslum við að
Mánafoss hætti áætlunarsiglingum
á ströndina var gert ráð fyrir að
losun gróðurhúsalofttegunda mundi
minnka við það eitt um 57%. Kom-
ist var að þessari niðurstöðu á þeim
forsendum að fyrir breytinguna
voru tvö kerfi í gangi sem bæði los-
uðu gróðurhúsalofttegundir út í
andrúmsloftið þ.e. bæði skipið og
landflutningakerfið en
eftir breytinguna var
bara annað kerfið eftir
og samanlögð áhrif
voru þau að gróður-
húsaáhrif minnkuðu í
stað þess að aukast.
Hvað varðar þá full-
yrðingu að vöruflutn-
ingabílar séu skatt-
lagðir mun minna en
sem nemur kostnaði
hins opinbera við þá
má benda á að í
skýrslu Hag-
fræðistofnunar frá því
í mars 2005 er komist að þeirri nið-
urstöðu að þungir flutningabílar
greiði um 13% meira til hins op-
inbera en nemur ytri kostnaði. Því
er óskiljanlegt hvernig Neytenda-
samtökin, sem einnig vitna í sömu
skýrslu komast að þeirri niðurstöðu
að „vöruflutningabílar séu skatt-
lagðir mun minna en sem nemur
kostnaði við þá“.
Þá má og spyrja – hver er ætlan
Neytendasamtakanna með slíkri
fullyrðingu? Er það vilji Neytenda-
samtakanna að hækka stórkostlega
álögur á landflutninga og yrði það
til hagsbóta fyrir neytendur í hin-
um dreifðu byggðum landsins? Eða
er það svo að Neytendasamtökin
standa einungis vörð um hagsmuni
neytenda á höfuðborgarsvæðinu?
Sú staðreynd að Neytendasamtökin
láti frá sér fara svo afgerandi póli-
tískar fullyrðingar eins og vitnað er
til hér að ofan um að ein atvinnu-
grein umfram aðra sé þeim svo
þóknanleg hlýtur að vekja spurn-
ingar um hvert hlutverk samtak-
anna sé.
Að síðustu er vert að benda á að
þegar Eimskip hætti strandflutn-
ingum árið 2002 hafði heildarmagn
þeirra flutninga staðið í stað á ár-
unum 1997 til 2002. Á sama tíma
hafði heildar inn- og útflutningur
aukist um 1 milljón tonna. Á þeim
árum sem liðin eru síðan hefur Kís-
iliðjan lagt upp laupana en vægi
hennar í heildarmagni strandflutn-
inga Mánafoss var u.þ.b. 20%.
Það er ljóst að þau fyrirtæki sem
sjá um vöruflutninga á vegum
landsins eru síður en svo á móti því
að strandflutningar verði teknir
upp. Ef einhver aðili finnur rekstr-
argrundvöll til þess að reka skip í
flutningum á ströndina er það hið
besta mál og ekki meira um það að
segja. Öðru máli gegnir ef hug-
myndir eru uppi um ríkisstyrki til
handa strandflutningum. Slíkar
hugmyndir eru dæmi um fortíð-
arhyggju og til þess eins fallnar að
slá ryki í augu almennings. Ástæða
þess að strandflutningum var hætt
var ekki sú að vondir karlar í flutn-
ingafyrirtækjunum hefðu ákveðið
að hrekkja landsmenn með auknum
vöruflutningum um vegi landsins
heldur sú að hagkvæmni þess að
reka tvö kerfi, annars vegar land-
flutninga og hins vegar strandflutn-
inga var engin. Strandflutningarnir
lögðust af vegna þess að eft-
irspurnin var of lítil.
SVÞ – Samtök verslunar og þjón-
ustu eru hagsmunasamtök fyr-
irtækja í vöruflutningaþjónustu.
Þau hafa átt góð og hreinskiptin
skoðanaskipti við stjórnvöld um
þessi mál og vonast til að stór-
felldar endurbætur verði á næstu
árum gerðar á stofnbrautum vega-
kerfisins þannig að öryggi og hag-
kvæmni allrar umferðar á landi
verði ásættanleg.
Hvað gengur Neytenda-
samtökunum til?
Signý Sigurðardóttir skrifar
um ummæli Neytendasamtak-
anna um vöruflutningaþjónustu »Er það vilji Neyt-endasamtakanna að
hækka stórkostlega
álögur á landflutninga?
Signý Sigurðardóttir
Höfundur er forstöðumaður flutn-
ingasviðs SVÞ – Samtaka verslunar
og þjónustu.flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
226 fm tvílyft einbýlishús með glæsilegu óhindruðu útsýni í
Suðurhlíðum Kópavogs. Eignin skiptist í forstofu, sjón-
varpshol, rúmgott eldhús með góðum borðkrók
og þvottaherbergi innaf, stór stofa með miklum
gluggum og útsýni, 4 herbergi (áður 5) og ný-
lega endurnýjað baðherbergi auk gestasnyrt-
ingar. Útgengi á suðursvalir úr hjónaherbergi.
Göngufæri í skóla og leikskóla. Suðursvalir.
Húsið stendur á 1.268 fm skjólmikilli lóð
með stórum sólpalli, miklir möguleikar.
Verðtilboð.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Digranesvegur
Einbýlishús á útsýnisstað í Suðurhlíðum Kópavogs
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Opið hús milli kl. 14 og 16 í dag
Asparlundur 15 - raðhús
Mjög skemmtilegt 168,1 fm raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á
þessum eftirsótta stað í Garðabæ. Eignin er mjög björt þar sem stórir gluggar
gefa mikla birtu í öllum vistarverum. Óvenjustór og skemmtileg ca 50 fm stofa
og borðstofa með mikilli lofthæð að hluta og útgangi á verönd til suðurs. Bað-
herbergi nýlega endurnýjað með baðkari, sturtuklefa og innréttingu. Þrjú parket-
lögð svefnherbergi með skápum en húsið býður upp á að bæta við 4. svefn-
herberginu. Þvottahús inn af forstofu. Bílskúr er með hita og rafmagni. Eign
sem vert er að skoða. Verð 39,9 millj.
Unnur og Bjarni taka vel á móti gestum milli kl. 14-16 í dag.
Teikningar á staðnum.
Opið hús milli kl. 14 og 16 í dag
Fjallalind 38 - Endaraðhús
Mjög fallegt 172,7 fm endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Parket
og flísar á gólfum. Stofa og borðstofa eru mjög skemmtilegar með gólfsíðum
gluggum og útgöngum á verönd með skjólveggjum og í garð. Hellulagt plan og
aðkoma með hitalögn. Hér er um að ræða endaraðhús með fallegum arkitektúr.
Verð 47,5 millj.
Þormar tekur vel á móti gestum í dag milli kl. 14 og 16.
Teikningar á staðnum.
Opið hús milli kl. 14 og 16 í dag
Víðihvammur 14 - Sérhæð
Mjög skemmtileg og björt 108,9 fm 4ra herbergja neðri sérhæð á þessum frá-
bæra stað í suðurhlíðum Kópavogs. Eignin skiptist í forstofu, 2 stofur, 2 rúmgóð
svefnherbergi, hol, baðherbergi með glugga og eldhús. Í sameign er sérþvotta-
hús og geymsla. Fallegt parket og flísar á gólfum. Stórir gluggar sem gefa góð
birtu. Frá stofu er gengið út á suðursvalir. Eigninni fylgir bílskúrsréttur. Verð 25,9
millj.
Grétar og Nanna taka vel á móti gestum í dag milli kl. 14 og 16.
Sérinngangur. Teikningar á staðnum.
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Opið hús milli kl. 14 og 15 í dag
Miðtún 86 - Hæð
Um er að ræða bjarta og fallega 122 fm hæð ásamt 32,8 fm bílskúrí góðu
þríbýlishúsi á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík. Hæðin skiptist í stóra og
bjarta stofu með fallegum útbyggðum glugga sem setur mikinn svip á eignina,
þrjú svefnherbergi, eldhús og fallegt baðherbergi með opnanlegum glugga.
Auðvelt er að stækka stofuna enn meira á kostnað svefnherbergis. Bílskúr er
með rafmagni og hita. Hellulagt bílastæði fyrir framan bílskúr með hitalögn.
Garður er fallegur í rækt. Verð 32,9 millj.Vakin er athygli á því að í sama húsi er
til sölu falleg 3ja herbergja 61 fm ris íbúð og gæti því hentað fyrir samhenta
fjölskyldu að kaupa báðar eignirnar sem þó er ekki skilyrði fyrir sölu.
Sölumenn taka vel á móti gestum frá kl. 14-15 í dag.
Teikningar á staðnum.
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800 • GSM 895 8321
www.husavik.net
Reynir Björnsson, lögg. fasteignasali
Laugavegi 170, 2. hæð.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.