Morgunblaðið - 15.10.2006, Side 88
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 288. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: auglysingar@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Hæg N- eða
breytileg átt en svo
allhvöss NA-átt
vestanlands með
rigningu eða slyddu. Annars
úrkomulítið, skúrir eða él n-
og a-lands með kvöldinu. » 8
Heitast Kaldast
10°C 0°C
REYKJAVÍKURBORG hyggst ekki beita
þvingunum eða skattlagningu til að tak-
marka nagladekkjanotkun í borginni, held-
ur beita jákvæðum
áróðri í því skyni.
Að sögn Gísla
Marteins Bald-
urssonar, borg-
arfulltrúa og for-
manns umhverfis-
sviðs Reykjavíkur-
borgar, á að vekja
bíleigendur til um-
hugsunar um áhrif
nagladekkjanotk-
unar svo draga megi
úr svifryksmengun í
borginni.
Að sögn Gísla Mar-
teins hefur borgin beitt mótvægisaðgerðum
gegn svifryksmenguninni með götuhreinsun
en auk þess verður gripið til þess í vetur að
úða þar til gerðum bindiefnum á göturnar
en það hefur gefist vel í Svíþjóð að sögn
Gísla. | 2
Götur verða úðaðar
með bindiefni í vetur
Mengun Nagladekk
spæna upp malbikið og
valda mengun.
ÞRÍR menn á óbreyttum Pajero-jeppa lentu
í hættu þegar þeir lögðu í Markarfljót um
ellefuleytið í gærmorgun. Straumurinn
hreif jeppann með sér með þeim afleið-
ingum að hann valt, en mennirnir náðu að
komast upp á hlið hans og hringja á Neyð-
arlínuna.
Markarfljótið skipti um farveg fyrr í
haust og sker nú leiðina inn á Emstrur og
voru mennirnir staddir um 3 km innan við
Fljótsdal þegar óhappið varð. Flugbjörg-
unarsveitin á Hellu og Björgunarsveitin
Dagrenning á Hvolsvelli voru kallaðar út
og voru björgunarmenn komnir á staðinn
skömmu síðar. Tókst að bjarga mönnunum
úr ánni með því að aka stórum sérútbúnum
bíl að slysstaðnum. Unnið var að því um há-
degi í gær að ná bifreið mannanna úr ánni.
Mjög hvasst var á landinu í gærmorgun
og á Selfossi fuku fjögur trampólín í rok-
inu. Eitt lenti á bifreið sem skemmdist tals-
vert.
Þrír heilir á húfi eftir
bílveltu í Markarfljóti
AÐGERÐIR ríkisstjórnarinnar til að lækka
matvælaverð hafa þau áhrif að tekjur með-
alkúabús lækka um u.þ.b. 300 þúsund krónur
á næsta ári, segir Þórólfur Sveinsson, for-
maður Landssambands kúabænda. „Þetta
eru tekjur sem bændur vildu vissulega að
skiluðu sér í þeirra vasa, en þetta drepur ekki
greinina. Við höfum meiri áhyggjur af þeirri
óvissu sem er framundan,“ segir Þórólfur.
Hann bendir á að á undanförnum árum
hafi kúabændur endurnýjað fjós og búnað í
stórum stíl. Þetta hafi leitt til verulegrar
skuldasöfnunar og talið sé að heildarskuldir
kúabænda séu um 25 milljarðar.
„Það er því ljóst að fjölmörg kúabú eru
þannig stödd eftir mikla uppbyggingu að þau
þola ekki tekjuskerðingu og framtíð mjólk-
urframleiðslu á Íslandi er í verulegri hættu ef
þessi bú hætta starfsemi,“ segir Þórólfur. | 6
Morgunblaðið/Þorkell
Fjós Margir kúabændur hafa lagt í kostn-
aðarsama uppbyggingu undanfarið.
Fjölmörg kúabú þola
ekki tekjuskerðingu
ÍSLANDSMÓT Bjarnarins í íshokkíi fyrir
fjórða flokk stendur nú yfir í Skautahöll
Reykjavíkur, en á tímabilinu eru haldin þrjú
slík mót. Liðin eru þrjú, frá Birninum,
Skautafélagi Reykjavíkur og Skautafélagi
Akureyrar, og leikur hvert lið tvo leiki við
hvort hinna tveggja. Jafnan eru fimm leik-
menn auk markvarðar inni á ísnum hjá hvoru
liði, en leikmannaskiptingar eru mjög örar í
íshokkíi og enn örari í þessum aldurshópi.
Eru því að jafnaði 15 manns í liði auk mark-
varða. Súsanna Gunnarsdóttir, móðir tvegga
leikmanna í Birninum, segir íþróttina vera
mjög að sækja í sig veðrið hjá drengjum, en
heldur mættu stúlkurnar vera fleiri. Þrátt
fyrir það orð sem fer af íshokkíi um skap-
stærð leikmanna og slagsmál á ísnum segir
Súsanna að slík tilvik séu mjög sjaldgæf og að
íshokkí sé síst hættulegra en knattspyrna og
handbolti og slys séu fátíðari en í hinum
íþróttunum tveimur.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Leikgleðin nýtur sín á ísnum
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
NÝJAR leiðir eru nú farnar við
mönnun verslana á Íslandi og
stjórnendur verslana farnir að
huga að samskonar leiðum og
byggingariðnaðurinn í starfs-
mannamálum, þ.e. að ráða til sín
starfsmenn frá útlöndum og hýsa
þá. Er þetta líklega í fyrsta skipti
sem verslunarrekendur grípa til
þessa ráðs, að sögn framkvæmda-
stjóra Samtaka verslunar og
þjónustu (SVÞ).
Hildur Björgvinsdóttir, starfs-
mannastjóri Hagkaupa, staðfestir
að fyrirtækið búi sig undir að
flytja inn erlent starfsfólk.
Þá hafa verslanir einnig brugð-
ið á það ráð að auglýsa hér á
landi á fleiri tungumálum en ís-
lensku, t.d. pólsku og ensku, en
slíkt hefur ekki skilað tilætluðum
árangri.
Nokkru betra
en í september
Viðvarandi mannekla hefur
verið í verslunarstörfum undan-
farin misseri og ekki sér fyrir
endann á henni. Er ástandið
verra nú í haust en áður hefur
þekkst, þótt það hafi batnað tölu-
vert frá því sem var í september.
Sérstaklega er starfsmannavelta
mikil og segir Sigurður Jónsson,
framkvæmdastjóri SVÞ stjórn-
endur verslana tala um að varla
taki því að halda undirbúnings-
námskeið fyrir nýja starfsmenn:
„Þeir eru farnir út um bakdyrnar
áður en námskeiðinu lýkur.“
„Mér heyrist að ástandið sé
verra en verið hefur áður,“ segir
Sigurður. „Það er óhætt að segja
að gegnumstreymið sé meira í
matvöruversluninni en sérvöru-
versluninni,“ segir Sigurður og að
lágvöruverðsverslanir hafi orðið
sérstaklega hart úti hvað mönnun
varðar.
Þá segir Sigurður það færast í
vöxt að útlendingar séu ráðnir til
starfa á veitingahúsum. „Menn
hafa talið mjög ákveðið hingað til
að íslenskukunnátta sé forsenda
fyrir vinnu í verslun, en það er
greinilegt að það er ekki lengur
álitið svo heilagt að ekki sé hægt
að komast af með öðrum hætti.“
Undirbúa innflutning
á vinnuafli
Hildur Björgvinsdóttir, starfs-
mannastjóri Hagkaupa, segir
starfsmannaveltuna í ár meiri en
í fyrra. „Ætli þetta séu ekki
þensluáhrifin sem valda, það eru
fleiri um bitana.“
Hildur segir að auglýsingar á
pólsku og ensku hafi verið settar
upp í Alþjóðahúsi. „En erlendir
ríkisborgarar hafa alveg næga
vinnu hér,“ segir Hildur. Árangur
af auglýsingunum hafi því ekki
verið mikill.
Því hefur fyrirtækið brugðið á
það ráð að fá ráðningarmiðlun til
að auglýsa eftir fólki úti í Evrópu
til starfa í Hagkaupum á Íslandi.
„Við höfum ekki komist hjá því að
skoða þetta,“ segir Hildur. Aflað
hefur verið upplýsinga um hús-
næði, íslenskukennslu og fleira
sem fylgi ráðningu slíkra starfs-
manna. „Það er mikil ábyrgð sem
fylgir því að ráða fólk sem talar
erlent tungumál, við erum í þjón-
ustugeiranum. Það þarf að und-
irbúa þetta mjög vel og við erum
að gera það.“
Hildur tekur fram að ekki sé
von á holskeflu útlendinga til
starfa í verslunum. Farið verði
hægar í sakirnar en raunin hafi
orðið t.d. í byggingariðnaði.
Hildur segir óhjákvæmilegt að
skoða þennan möguleika í fullri
alvöru. „Helmingur af okkar
starfsfólki er skólafólk og okkur
vantar fólk í fullt starf, þannig að
við verðum að horfast í augu við
það.“
Ætla að flytja inn vinnu-
afl til verslunarstarfa
Mannekla í verslun og þjónustu meiri en áður, segir framkvæmdastjóri SVÞ
Í HNOTSKURN
»Ráðningarmiðlun semHagkaup skiptir við hef-
ur í mörg ár útvegað útlend-
inga til starfa hér á landi,
bæði til sveitastarfa og fisk-
vinnslu.
»Hagkaupum hafa þegarborist umsóknir frá
Frakklandi, Belgíu, Þýska-
landi og fleiri Evrópulönd-
um.