Morgunblaðið - 09.12.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 23
á Íslandi. Um það skal ég ekki
segja. Við á Kumbaravogi komum
að sjálfsögðu ekki að slíkum ákvörð-
unum barnaverndaryfirvalda á
neinn hátt. En fósturbörn okkar
fengu heimili að Kumbaravogi
vegna beiðni félagsmálayfirvalda og
að sjálfsögðu starfaði heimilið undir
eftirliti barnaverndaryfirvalda.
Traust og gott samstarf var við slík
yfirvöld, sérstaklega í Reykjavík og
réttum yfirvöldum líkaði stefnan og
framkvæmdin. Mjög var þrýst á
okkur forstöðuhjónin að taka fleiri
börn að okkur. Þjónustan þótti mik-
il framför og eftirspurn eftir vistun
mikil. Þegar elstu börnin fóru í
heimavistarskóla féllumst við á
nokkra fjölgun eftir því sem hin
krefjandi „föður- og móður“-
hlutverk leyfðu. Hafa ber í huga að
þeir samtímamenn sem best þekktu
reksturinn hefðu ekki sífellt þrýst á
okkur um að taka fleiri börn að okk-
ur nema vegna þess að starfið þótti
skila góðum árangri. Margir fag-
aðilar unnu með okkur og veittu
góða aðstoð og leiðbeiningar. Bæði
sálfræðingar og sérkennarar veittu
slíka aðstoð. Þessir sérhæfðu aðilar
leiðbeindu um uppeldi og fylgdust
vel með börnunum. Þá nutu börnin
skólagöngu í grunnskóla Stokks-
eyrar þar sem kennaramenntað fólk
stýrði kennslu.
Aðför að heimili okkar
Greinarhöfundur ræðir um að
gestkomandi maður hafi leitað á
einhver barnanna á Kumbaravogi.
Þegar grunur kom upp um athæfi
þessa manns á sínum tíma var hon-
um umsvifalaust vikið af heimilinu,
og bundinn endir á öll samskipti við
hann. Þetta staðfesta fósturbörnin
sem birtu yfirlýsinguna í helg-
arblaði DV þann 16.-18. mars sl. Í
ljósi þessa er sorglegt að grein-
arhöfundur skuli láta í það skína að
viðkomandi maður hafi fengið að
leika lausum hala á heimili okkar
svo árum skipti eftir að grunur
vaknaði. Þvert á móti var brugðist
við þessu umsvifalaust. Hafa ber í
huga að á þessum tíma var um
grunsemdir að ræða og því brugðist
við eins hart og við töldum mögu-
legt. Staðreyndin er sú að erfitt get-
ur reynst að sjá við slíkum mönnum
nú í dag en það var erfiðara fyrir
fjörutíu árum áður en kastljósi
fræðimanna og fjölmiðla var beint
að þessum mikilvæga málaflokki.
Við reyndum ávallt að tryggja ör-
yggi barna okkar og fósturbarna
eins og kostur var.
Hugsjón okkar með starfinu
Um hugsjón okkar Hönnu, sem lá
að baki ævistarfi okkar á Kumb-
aravogi, segir greinarhöfundur:
„Fósturforeldrarnir brugðust hug-
sjóninni − en fósturheimili af þess-
ari stærðargráðu, með þennan
barnafjölda, var dæmt til að mistak-
ast.“ Hér er mikið fullyrt án rök-
stuðnings. Engin tilraun er gerð til
að meta hve vel starf okkar tókst sé
miðað við hefðbundna mælikvarða
sem lagðir eru á störf uppeldisheim-
ila. Fjölmargir hafa hins vegar bent
á hve vel barnahópurinn sem ólst
upp á Kumbaravogi hefur spjarað
sig í lífinu. Þau hafa, eins og áður
sagði, flest hlotið iðn- eða háskóla-
menntun og haslað sér völl á fjöl-
mörgum sviðum þjóðlífsins. Þau
hafa líka langflest myndað sínar
eigin fjölskyldur og staðið sig vel í
því hlutverki. Jafnvel þeir sem
gagnrýnt hafa starf okkar hjónanna
hafa haft orð á þessu. „Þótt und-
arlegt megi virðast rættist ágæt-
lega úr okkur flestum sem vorum á
Kumbaravogi,“ segir til dæmis í
einu viðtali, þar sem dregin er upp
frekar neikvæð mynd af starfi okk-
ar og greinarhöfundur vitnar til.
Hugsjónin sem við höfðum ætíð
að leiðarljósi í starfi okkar var sú að
skapa börnum sem komu úr erf-
iðum fjölskylduaðstæðum eðlilegt
fjölskyldulíf þar sem móðir og faðir
voru ávallt til staðar og börnin
mynduðu systkinahóp. Forsagan að
baki ákvörðun okkar um stofnun
fjölskylduheimilis að Kumbaravogi
var sú að ég starfaði að fé-
lagsmálum árin 1963-1964 og fyrir
fangahjálpina Vernd á sama tíma-
bili. Þetta starf innti ég af hendi í
framhaldi af því að ég sótti nám-
skeið í félagsþjónustu í Danmörku
árin 1961-1963. Rannsóknir sýndu
mikla fylgni milli vistunarúrræða
sem voru ópersónuleg og stofn-
anakennd á þessum tíma og síðari
vandamála í einkalífi þ.m.t. afbrota.
Nokkrar stofnanir voru reknar á
þessum tíma sem megin-vistunar-
úrræði, t.d. Silungapollur. Allmargir
einstaklingar hafa lýst þeim mikla
mun sem var á því að dveljast á fjöl-
skylduheimili eins og við hjónin rák-
um og slíkum stofnunum.
Ég kynntist í þessum störfum
einnig erfiðum aðstæðum fjöl-
skyldna. Að fenginni þeirri reynslu
taldi ég brýnt að bæta þjónustu fyrir
börn í slíkum aðstæðum. Ég komst
að þeirri niðurstöðu að stofnun fjöl-
skylduheimilis væri mikilvæg og í
raun afar brýn breyting á þjónustu
fyrir þessi börn. Það þarf ekki dokt-
orspróf til að skilja þessa fjölskyldu-
hugsjón og áhrifamátt hennar. Hún
nýtur ólíkt meira fylgis í dag en þeg-
ar við lögðum hana til grundvallar
starfi okkar fyrir rúmum fjörutíu ár-
um.
Hvernig rættist úr hugsjón okkar?
Ég tel að staðreyndirnar tali sínu
máli og staðfesti árangur okkar. Ég
hef átt mjög góð tengsl við langflest
af fósturbörnum mínum, og þau hafa
alla tíð sýnt mér mikla ræktarsemi og
ég hef fengið að taka þátt í gleði
þeirra og sorgum. Við höfum átt góð-
ar stundir saman á jólum og hátíð-
arstundum, mér hefur verið boðið í
afmæli og útskriftarveislur fóstur-
barna minna, í fermingarveislur
þeirra eigin barna og þannig mætti
lengi telja.
Hanna lést um aldur fram aðeins
61 árs í mars 1992 og voru eftirmæli
eftir hana af hálfu þeirra mörgu
sem best þekktu til okkar á afar já-
kvæðan veg. Hún var einstök mann-
eskja, fórnfús og umhyggjusöm.
Allt heimilishaldið á Kumbaravogi
mótaðist af henni.
Stoltur af fósturbörnunum
Mér hefur sárnað mjög óréttmæt
gagnrýni á fjölskylduheimili okkar
að Kumbaravogi. Kumbaravogur
var opið heimili sem laut eftirliti
barnaverndaryfirvalda. Foreldrar
voru hvattir til að heimsækja börnin
fyrsta sunnudag hvers mánaðar og
vel var tekið á móti öðrum ætt-
ingjum eins og greinarhöfundur
bendir á. Fósturbörn okkar stund-
uðu nám við barnaskóla Stokkseyrar
ásamt öðrum börnum úr þorpinu,
lærðu með þeim til sunds á Selfossi
og unnu sum utan heimilis, t.d. í
Hraðfrystihúsi Stokkseyrar eftir að
þau komust á unglingsárin. Fóst-
urbörnin voru, eins og jafnaldrar
þeirra á þeim tíma og nú, áhugasöm
um slíka sumarvinnu til þess að afla
eigin peninga. Okkar börn voru
mörg meðal dugmestu einstakling-
anna og gátu keypt sér hesta, mót-
orhjól, og bíla þegar þau komust á
þann aldur. Allt var þetta til að auka
samskipti þeirra við önnur börn og
unglinga.
Ég var og er stoltur af fósturbörn-
unum sem eru dugmikið fólk og hafa
reynst hinir mætustu þjóðfélags-
þegnar. Þau gildi sem þau lærðu m.a.
hjá okkur voru þeim vonandi gott
veganesti út í lífið.
» Viðhorf okkar til náms og mennt-
unar hefur skilað sér í því að flest
hafa börnin okkar lokið háskóla og/
eða sérhæfðu iðnnámi.
Höfundur er fyrrverandi
forstöðumaður Kumbaravogs.
Skráningargjald fyrir vormisseri 2008 er kr. 22.500
(fyrir skólaárið 2007-2008 kr. 45.000)
Umsóknarfrestur
er 2. janúar 2008
Stjórnun innan heilbrigðisþjónustunnar er ný námsleið í diplómu- og meistaranámi í heilbrigðisvísindum
við Háskólann á Akureyri. Að námsleiðinni standa heilbrigðisdeild og viðskipta- og raunvísindadeild.
Möguleiki er á að ljúka 15 eða 30 eininga diplómunámi og 60 eininga meistaranámi í heilbrigðisvísindum á
sviði stjórnunar innan heilbrigðisþjónustunnar.
Markmið námsins er að þeir sem brautskrást verði gagnrýnir greinendur, ígrundandi fagmenn,
breytingarliðar og víðsýnir og skapandi leiðtogar. Í öllum námskeiðum verður lögð áhersla á mikilvægi
rannsókna. Námskeið verða m.a.:
Kennt verður að jafnaði í fjórum lotum á misseri, einn og hálfur dagur í senn. Þess á milli fara samskipti
fram í gegnum netið. Námið hefst á vorönn 2008 með námskeiðinu stjórnun, rekstur og ígrundun. Lotur
verða sem hér segir:
Umsækjendur þurfa að hafa lokið B.S. námi við viðurkennda háskóla að jafnaði með fyrstu einkunn. Einnig
verður litið til starfsreynslu við val á nemendum inn í námið.
Umsóknareyðublað og handbók um námið er að finna á heimasíðu HA, www.unak.is, einnig veita Sigríður
Halldórsdóttir prófessor í heilbrigðisdeild, sigridur@unak.is; og Lára Garðarsdóttir, skrifstofustjóri
heilbrigðisdeildar, larag@unak.is, s: 460 8036, frekari upplýsingar.
Stjórnun, rekstur og ígrundun
Alþjóðleg mannauðs- og þekkingarstjórnun
Heilbrigði og heilbrigðisþjónustan
Forysta og árangur
1. lota: 16. – 17. janúar
2. lota: 20. – 21. febrúar
3. lota: 10. – 11. mars
4. lota: 23. – 24. apríl
STJÓRNUN INNAN HEILBRIGÐISÞJÓNUSTUNNAR