Morgunblaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 54
54 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is VIKUNA 30. nóvember til 7. desem- ber stóð yfir góðgerðarvika hjá ung- lingum í Gufunesbæ í Grafarvogi. Ætlunin er að láta gott af sér leiða í byrjun jólamánaðarins og styrkja ýmis málefni t.d. Sjónarhól, Mæðra- styrksnefnd og Umhyggju svo að eitthvað sé nefnt. Föstudaginn 30. nóvember byrj- aði vikan á hip-hop balli í fé- lagsmiðstöðinni Sigyn í Rimaskóla þar sem rappararnir Danni A, Gunni Jr, Dabbi T og Jói Dagur tóku nokk- ur lög. Þangað mættu rúmlega 50 manns og söfnuðust um rúmlega 15.000 kr. sem runnu til Umhyggju — félags til styrktar langveikum börnum. Mánudag og þriðjudag safnaði fé- lagsmiðstöðin Borgyn í Borgaskóla fötum til styrktar Rauða krossinum og Mæðrastyrksnefnd og Fjörgyn í Foldaskóla safnaði spólum, dvd- myndum, leiktækjum, spilum og fleira sem rann svo til Barnaspítala Hringsins. Félagsmiðstöðin Engyn í Engja- skóla hélt rokkball fyrir 1.-4. bekk á þriðjudaginn og á fimmtudaginn hélt einnig rokkball fyrir 5.-7.bekk og all- ur ágóðinn af ballinu rann til Blátt áfram. Fimmtudaginn 6. desember fóru flestar félagsmiðstöðvar í Graf- arvogi í Smáralind og tóku þátt í Pakkajólum Bylgjunnar. Krakk- arnir voru mjög spenntir fyrir að fara með gjafir undir jólatréð sem er til styrktar Mæðrastyrksnefnd. Svo verður gefinn út jólageisla- diskur þar sem sönghæfileikaríkir krakkar syngja jólalög. Vikan endar svo á „Góðgerðaball- inu“ í félagsmiðstöðinni Nagyn í Húsaskóla þar sem Addi úr Svita- bandinu verður Dj og krakkar af jólageisladiskinum hita upp og taka lagið sitt af diskinum, allur ágóðinn af ballinu rennur til Sjónarhóls. Góðgerðarvikan gekk mjög vel í fyrra hjá unglingunum í Gufunesbæ og áætlunin er að gera góðgerð- arvikuna að árlegum viðburði. Í fyrra söfnuðust yfir 350.000 kr. til ýmissa góðgerðarmálefna, gjafir sem Mæðrastyrksnefnd sá um að dreifa til bágstaddra og fullt af föt- um einnig. BÁRA SIF MAGNÚSDÓTTIR, 10. bekkur – formaður í nem- endaráði Nagynjar í Húsaskóla ÚLFAR VIKTOR BJÖRNSSON, 9. bekkur – fulltrúi í nemendaráði Nagynjar í Húsaskóla DILJÁ MATTHÍASARDÓTTIR, 8. bekkur – fulltrúi í nemendaráði Nagynjar í Húsaskóla Góðgerðarvika unglinga í Grafarvogi Frá fulltrúum í nemendaráði Nagynjar TIL SÖLU/LEIGU Erum með til sölu eða leigu tæplega 6.000 fermetra iðnaðar og skrifstofuhúsnæði við Tunguháls í Reykjavík, eignin verður tilbúinn haust 2008, en möguleiki er á að taka við hluta eignarinnar fljótlega. Eignin selst eða leigist einungis í einu lagi ekki í hlutum. Allar frekari upplýsingar gefur Skúli Þór í síma 585 0104 eða 848 0275 M bl 9 38 15 0 Baldvin Ómar Magnússon Löggiltur fasteignasali SMIÐSHÖFÐI 11 - ATVINNUHÚSNÆÐI www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 30 ár M bl .9 46 17 5 1176,3 fm atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum á góðum stað í Ártúnshöfðanum í Reykjavík. NÁNARI LÝSING: NEÐRI HÆÐ: Aðkoma að neðri hæðinni er frá Stórhöfða. Neðri hæðin er 552 fm og er skipt upp í 5 bil öll með góðum innkeyrsluhurðum. Lofthæð neðri hæðar er ca. 3,3 m og er hvert bil ca. 110 fm. EFRI HÆÐ: Aðkoman að efri hæðinni er frá Smiðshöfðanum. Efri hæðin er 552 fm auk millilofts sem er skráð 72,3 fm. efri hæðinni er skipt upp í tvö bil með stórum innkeyrsluhurðum. Lofthæðin er ca 5,5 m og er eignini skipt upp í tvö bil og er milliloft í báðum. ALLAR UPPLÝSIGNAR GEFUR SVEINBJÖRN Í SÍMA 892-2916 EÐA Á SKRIFSTOFU GIMLI SÍMI 570-4800. Gylfaflöt 16 - 18 Glæsilegt og vandað um 1950 fm skrifstofu og þjónustuhúsnæði í byggingu við Gylfalöt 16 - 18 (hornlóð). Húsið er steypt á tveimur hæðum. Að framan eru gluggahliðar en innkeyrsluhurðir bakatil. Húsið er einangrað að utan með 100 mm steinull og klæddir liggjandi bárujárni og granít steinplötum. Þak er steinsteypt, einangrað með 200mmm polystýerene einangrunarplasti. Ofan á einangrun er vatnsþéttur dúkur og möl þar ofaná. Húsið skilast því fullbúið að utan, einangrað og lóð malbikuð og hellulögð. Hiti kominn í allt húsið og rafmagn. Lyfta komin. Húsið er tilbúið til afhendingar. Hægt að fá húsið fullinnréttað. Verð 340 milljónir. Húsið er frábærlega staðsett og í alfaraleið fyrir þá sem leið munu eiga um Grafarvog, Gufunes, Geldinganes, Kjalarnes, Kjósina og Mosfellsbæ. Staðsett rétt við þar sem Hallsvegur og Sundabraut koma. Upplýsingar veitir : Þórhallur, sími 896-8232. Mb l. -9 46 62 8 FJALLALIND 141 201 KÓPAVOGI Sölusýning í dag milli kl 14 og 15 Domus kynnir: Glæsilegt 235,1 fm. 7 herbergja einbýlishús með innbyggðum bílskúr á besta stað í Lindahverfinu í Kópavogi. Húsið er á tveimur hæðum og er allt hið vandaðasta. Möguleiki er á að nota hluta af neðrihæð sem aukaíbúð með sérinngangi. Parket og flísar á gólfum, eikarinnréttingar frá Brúnás. Svalir útfrá stofu á efrihæð. Glæsilegt útsýni. Stutt í skóla, leikskóla svo og alla almenna þjónustu. Verð 74,9 millj Halldór Jensson Viðskiptastjóri halldor@domus.is s. 840 2100/440 6014 ÉG BÝ erlendis um þessar stundir. Við flutningana upplifði ég vægt menningarsjokk. Það er svo margt öðruvísi hér en ég á að venjast. Prestar ríkiskirkjunnar og aðrir fylgismenn hennar virðast líka vera að ganga í gegnum menningarsjokk þessa dagana. Veröldin sem þeir héldu að þeir þekktu er ekki til og líklega var hún aldrei til. Þjóðkirkjan er í stöðu sem hún hefur ekki áður verið í. Allt í einu þarf hún að taka tillit til þess að það eru ekki allir Íslendingar sem að- hyllast kristni. Það hafa væntanlega alltaf verið til Íslendingar sem ekki voru kristnir án þess að það kæmi á yfirborðið. Það að hafa eitthvert val í trúmálum er tiltölulega nýtt fyr- irbæri á Íslandi. Í nýlegri könnun sem var gerð fyrir ríkiskirkjuna, guðfræðideild og kirkjugarðana sagðist einungis um helmingur vera kristinnar trúar. Fyrir skömmu kom fram að um það bil fjórðungur barna er ekki skírður í ríkiskirkjunni. Foreldrar þessara barna hafa væntanlega tek- ið upplýsta ákvörðun. Af hverju ættu börnin þeirra að verða fyrir trúboði í skólum? Ríkiskirkjan veit af þessum stóra hópi sem er að sleppa og vill væntanlega ná til hans. Það er verið að reyna að taka ákvörðunarvaldið frá foreldrunum. Þess vegna er verið að draga línu. Trúboð á ekki heima í skólum og skólar eiga ekki að laga starf sitt að þörfum trúfélaga. Þetta er kjarni málsins. Foreldrar sem vilja fara með börn sín til prests mega það áfram. Skólinn á að vera hlutlaus og sinna öllum jafnt. Þetta er eina leiðin til að skapa sátt um skólastarf. Sanngirni og tillitssemi er allt sem þarf. ÓLI GNEISTI SÓLEYJARSON, Grýtubakka 18, Reykjavík. Menningarsjokk tillitsseminnar Frá Óla Gneista Sóleyjarsyni smáauglýsingar mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.