Morgunblaðið - 09.12.2007, Síða 61

Morgunblaðið - 09.12.2007, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 61 ✝ GuðmundurJónsson fæddist á Mjóabóli í Hauka- dal 27. apríl 1926. Hann lést á sjúkra- húsi Akraness 21. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru þau Jón Jón- asson frá Haugi í Miðfirði, f. á Óspaksstöðum í Staðarhreppi 26. nóvember 1887, d. 1. júlí 1944, og Jak- obína Guðný Ólafs- dóttir frá Vatni í Haukadal, f. á Bálkastöðum í Staðarhreppi 27. desember 1886, d. 6. ágúst 1974. Systkini Guðmundar eru: Jónas Kristinn, f. 1918, d. 1959, Ólafur Kristján, f. 1919, d. 1999, Hólm- fríður, f. 1920, d. 2006, Karl, f. 1923, d. 1987, Ingibjörg Aðal- heiður, f. 1927, og Jens Arinbjörn, f. 1929. Sambýliskona Guðmundar er Þórdís Oddsdóttir frá Sælingsdal, f. í Hvarfsdal 22. október 1924. Börn þeirra eru: 1) Drengur, f. 12. desember 1946, d. 14. mars 1947. 2) Jóna Guðný, f. 5. oktober 1948, maki Jón Guðmundur Jakobsson, þau eiga fjögur börn. 3) Valur Bergsveinn, f. 7. nóvember 1950. 4) Sóley Ólafía, f. 18. maí 1954, maki Þórarinn Sig- geirsson, þau eiga fimm börn. 5) Frið- jón Örn, f. 20. júlí 1955, maki Anna María Kristjáns- dóttir, þau eiga fimm börn. 6) Sól- rún Bára, f. 19. jan- úar 1957, maki Óð- inn Kristmundsson, þau eiga fjórar dæt- ur. 7) Oddur Krist- inn, f. 6. september 1966, maki Íris Björg Sigurðar- dóttir, þau eiga sex börn. 8) Jak- obína Valfríður, f. 8. október 1967, maki Andrés Reynir Hann- esson, þau eiga tvo syni. Barna- barnabörn Guðmundar og Þórdís- ar eru ellefu. Guðmundur og Þórdís kynntust í Hvammi í Hvammssveit árið 1945. Árið 1946 hófu þau búskap í Breiðabliki 1 við Sundlaugaveg í Reykjavík, þá vann Guðmundur við húsgagnagerð og síðar í fisk- mjölsverksmiðjunni á Kletti. Þau fluttu að Borgum á Skógarströnd vorið 1951 og bjuggu þar til ársins 1964. Þá fluttu þau að Ketilstöð- um í Hörðudal og bjuggu þar síð- an. Guðmundur var jarðsunginn frá Snóksdalskirkju 1. desember sl. Afi minn, Guðmundur Jónsson frá Ketilsstöðum er látinn. Við tvö vor- um miklir vinir. Ég var lambið hans. Þau amma hófu sinn búskap með tvær hendur tómar er þau keyptu jörðina Ketilsstaði og hófu búskap á jörð sem var nánast bara úthagar. Hann var ánægður með ævistarfið þó að stundum hafi verið basl og hann hafi í fyrstu unnið mikið ann- ars staðar. Amma sá þá um búið og börnin á meðan. Hann dáðist ætíð að henni fyrir dugnaðinn. Hann var góður bóndi. Þekkti kindurnar sínar og gerði vel við kýrnar, á meðan hann hélt þær. „Eða þar til búfræðing- arnir töldu hagkvæmara að búa bara með eina búgrein“ sagði hann ósátt- ur. Hann átti fáa hesta en góða. Ég ólst upp við það að ef ég kláraði verkin mín mætti ég sækja hest og fara á hestbak. Þannig hélt hann uppi ákveðnum aga, með tilslökunum þó. Hann treysti því að þeir sem í kringum hann voru væru traustsins verðir. Ég sé sjálfa mig fyrir mér sitja uppgefna á steini með útgrátið and- litið. Þá birtist hann skyndilega og segir: Komdu, lambið mitt. Hjálp- umst að við að ná hesti fyrir þig. Og svo stekk ég á bak með sólskinsbros því ég á besta afa í heimi. Hann vissi hvað þurfti til að framkvæma hlut- ina. Og hvenær kominn var tími til að rétta hjálparhönd. Hann skuldaði aldrei neinum neitt. Borgaði alltaf í topp. Mundu þessi orð; frú Fjólu- gata á Heimaey. Hann sagði mér að sér þætti leitt að ævistarfið yrði sennilega að engu. Myndi einhver taka við ef Valur son- ur þeirra bregður búi? Hvað yrði þá um áratuga starf við ræktun túna og fjárrækt? Hann var samt ánægður með hve vel fólkið hans hafði komið sér fyrir í lífinu. Hann lagði metnað í það að reyna að fá unga fólkið sitt til að fara sem lengst á skólagöngunni. „Verða eitthvað,“ sagði hann. „Til að þurfa ekki að þræla eins og ég.“ En hann kunni vel á bók, átti margar bækur og var víðlesinn. Hann vann mikið að félags- og stjórnsýslumálum fyrir sveitina sína. Var vel liðinn. Og gegndi mik- ilvægum störfum í sveitapólitík. En hann var orðinn þreyttur. Greindist fyrir nokkrum árum með Parkinsonsveiki og honum hrakaði hratt. Var kominn í hjólastól, þó hugurinn væri óbilaður. Var farinn að kvarta við mig yfir því að geta ekki gert hlutina sjálfur. Fannst óþægilegt að þiggja svona mikla hjálp, þó hann væri óendan- lega þakklátur öllu því fólki sem að umönnun hans kom. Fannst gaman að segja frá öllum „stelpunum“ sem stjönuðu við hann. En þannig er þetta með menn eins og hann sem alltaf hafa verið í framvarðarsveit í lífinu, þeir geta ekki sætt sig við það að vera ósjálfbjarga. Afi hringdi í mig skömmu fyrir andlátið og sagði; „Sæunn mín, nú vil ég bara fá að fara bráðum. Það hlýtur að fara að styttast í þessu hjá mér. Mér finnst eins og ég sé genginn í barndóm aft- ur.“ Og já, það er til máltæki sem segir: Tvisvar verður gamall maður barn. Elsku amma mín. Ég samhryggist þér innilega. Ég veit þú saknar hans. Hvíldu í friði, afi minn – þú þarft ekki lengur að bíða. Hafðu þökk fyr- ir alla okkar samfylgd og vináttu. Þín að eilífu, Sæunn á Lágafelli. Afi var eitt af skærustu ljósunum í lífi mínu. Mér þótti svo gaman að láta hann brosa eða hlæja því að eft- ir að hann veiktist brosti hann ekki oft. Ég man eftir því þegar ég var yngri sat ég á hnénu á honum og kreisti á honum fingurna til að sýna honum hvað ég væri sterk. Og hann þóttist alltaf finna til. Við sátum oft saman inni í herberginu hans og hlustuðum á tónlist. Hann var alltaf að kenna mér eitthvað nýtt. Mér fannst svo þægilegt að sitja hjá hon- um og hlusta á hann tala um það hvernig allt var gert þegar hann var lítill. Að sjá afa minn við kistulagn- inguna var eins og að sjá engil. Það helltust yfir mig allar þessar minn- ingar um afa, ég mundi eftir tóbaks- lyktinni af honum. Afi minn, þó að þú sért farinn á betri stað þykir mér alltaf vænt um þig. Láttu þér líða vel í himnaríki og taktu á móti mér þegar ég kem. Ég elska þig. Steinunn Brynja Óðinsdóttir. Elsku besti afi minn, nú ertu far- inn frá mér okkur, til allra þeirra sem farnir eru í faðm langömmu og langafa, til systkina þinna og ömmu minnar, systur þinnar, sem dó í mars 2006. Ég sakna þín svo sárt, þú fórst svo snöggt, ég var ekki, og er ekki tilbú- in og raunar er maður aldrei tilbúin fyrir fráfall þeirra sem eru manni svona kærir. Þú varst mér svo góður alla tíð er ég, litla lambið þitt eins og þú kallaðir mig, fékk að njóta þess að vera í sveitinni hjá afa og ömmu fyrstu ár bernsku minnar í leik með móðursystkinum mínum, það varst þú sem hélst undir mér er flogið var með mig fárveika, með sprunginn botnlanga, suður til Reykjavíkur, Þó ég hafi aðeins verið þriggja ára er þetta ljúf minning í mínum huga og sýnir bara hvað þér var annt um mig, að rjúka úr miðjum heyskap til að koma mér undir læknishendur. Alla tíð hefur þú, elsku afi, sýnt mér ást og umhyggju og syni mín- um, nafna þínum sem saknar langafa síns og hlakkaði svo til að fá suður, því hann fann hvað þér þótti innilega vænt um hann. Þú sem ætlaðir að vera í Hafn- arfirðinum núna en fórst í staðinn á annan fallegan stað. Var mér það kærkomið að geta sinnt þér og að- stoðað við böðun og snúninga þau tvö ár sem þú bjóst hjá móður minni, elstu dóttur þinni. Elsku afi, Guð mun þig geyma yfir okkur muntu sveima en eitt vil ég þó að þú vitir nú minn allra besti afi, það varst þú. Guð geymi þig. Þín elskandi dótturdóttir og lang- afastrákur, Þórdís og Guðmundur Róbert. Guðmundur Jónsson Minn elsku afi er farinn yfir til æðri heima. Ég ávallt hann í heiðri ber og mun honum ekki gleyma. Oft kenndi hann mér vísur af ýmsu tagi og kynni. Nú geymi ég þær vísur innst í minni mínu. Sjöfn Þórarinsdóttir. HINSTA KVEÐJA Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919 ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna veikinda og andláts ástkærs sonar okkar, bróður og barnabarns, TÓMASAR INGA INGVARSSONAR, Miðtúni 19, Hornafirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Barnaspítala Hringsins, deild 22E, og Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Heiður Sigurðardóttir, Ingvar Ágústsson, Óskar Þór Ingvarsson, Auðbjörn Atli Ingvarsson, Auðbjörg Þorsteinsdóttir, Sigurður Guðjónsson, Erna Þorkelsdóttir, Ágúst Guðmundsson. ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát okkar elskulega föður, tengda- föður, afa og langafa, GUNNARS RÍKHARÐS GUNNARSSONAR, bílamálara og bifreiðasmiðs, Litlagerði 8, Reykjavík. Starfsfólki Sóltúns, Reykjavík, eru færðar innilegar þakkir fyrir alúð og góða umönnun. Sérstakar þakkir færum við Pálínu, Þorbjörgu og Jóni Jóhannssyni djákna. Katrín Gunnarsdóttir, Haynie F. Trotter, Björg Gunnarsdóttir, Sigurður Gylfi Sigfússon, afa- og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir til ykkar allra kæru vina og velunnara, sem sýndu samhug, hlýju og virðingu við andlát ástkærs eiginmanns míns, föður og stjúpföður, GUÐMUNDAR JÓNSSONAR söngvara. Sérstakar þakkir eru færðar Söngskólanum í Reykjavík, Karlakór Reykjavíkur og ekki síst Droplaugarstöðum fyrir alúð og virðingu á síðustu ævidögum hans. Elín Sólveig Benediktsdóttir, Ástríður Guðmundsdóttir, Þorvarður Jón Guðmundsson, Halldóra Guðmundsdóttir, Guðlaugur Kristinn Óttarsson, Sólveig Jóhannesdóttir og fjölskyldur. ✝ Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem heiðruðu minningu ástkærs föður okkar, tengda- föður og afa, SIGURÐAR KR. ÁRNASONAR skipstjóra, Hrafnistu, Hafnarfirði. Sigurður Páll Sigurðsson, Þórhallur Sigurðsson, Ene Cordt Andersen, Salka, Selma, Steinar, Árni Þór Sigurðsson, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, Sigurður Kári, Arnbjörg Soffía, Ragnar Auðun, Steinar Sigurðsson, Helga Sigurjónsdóttir, Þorbjörg Anna, Kristjana Björk, Sigurjón Árni, Friðrik Sigurðsson, Margrét Hlíf Eydal, Hrefna, Sindri Már, Brynjar Þór. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa, ARNAR GUIDO BERNHÖFT, Hlynsölum 5, Kópavogi. Svava Jóhanna Pétursdóttir, Sigurður Örn Bernhöft, Katrín Gunnarsdóttir og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför PÉTURS BJÖRNSSONAR, Mávanesi 6, Garðabæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks Holtsbúðar, Garðabæ. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Hrefna Magnúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.