Morgunblaðið - 09.12.2007, Side 76

Morgunblaðið - 09.12.2007, Side 76
76 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Ó Ó INGIBJÖRG heitir nýr hljóm- diskur frá systkinunum Ingibjörgu, Óskari og Ómari Guðjónsbörnum. Á honum flytja þau, ásamt þeim Tómasi R. Einarssyni kontrabassa- leikara og Matthíasi Hemstock trommuleikara, gömul og sígild ís- lensk sönglög á borð við „Fuglinn í fjörunni“ og „Þú eina hjartans ynd- ið mitt“, í nýjum og oftast djöss- uðum útgáfum. Á afar virðulegum, svarthvítum og gamaldags ljósmyndum sem prýða geisladisksbókina virðast þeir Ómar og Óskar vera tvíburar en svo er þó ekki. Ómar segir að þeir hafi „tekið mömmu á þetta“ í myndatökunni, fengið sér eins gler- augu, greitt sér eins og verið í eins fötum. Skyrta Ómars er reyndar aðeins krumpaðri en skyrta Óskars, enda Ómar rokkari og Óskar Mezzoforte-strákur, að sögn Óm- ars. „Frá því að ég fæddist – ég er fjórum árum yngri en Óskar – þá saumaði mamma alltaf á okkur eins föt,“ segir Ómar. Óskar er fjórum árum eldri og var víst orðinn aðeins pirraður á því, þegar hann komst á gelgjuskeiðið, að vera eins klæddur og litli bróðir. Ekki gátu þeir bræður vitað þá að móðurástin yrði þeim listrænn innblástur í myndatöku fyrir systk- inaplötuna. Ingibjörg er elst systk- inanna þriggja, 13 árum eldri en Ómar og sópransöngkona. Af að- eins annarri kynslóð, segir Ómar. Frumburðurinn, Kristín, er hjúkr- unarkona og kemur því ekki nálægt plötunni að öðru leyti en því að vera grúppía. Ingibjörg byrjaði „Ingibjörg byrjaði í músíkinni (fyrst í barnakór og hóf svo söng- nám síðar) og við erum öll starfandi músíkantar. Síðan fann Óskar sér saxófón og ég fann mig á gít- arnum,“ segir Ómar. Þeim systk- inum hafi alltaf verið ýtt saman í fjölskylduboðum, látin spila og syngja eitthvað fyrir ættingjana, söngleikjalag eftir Cole Porter eða eitthvað annað sem Ingibjörg kunni textann við. Þau systkin fengu upp úr því þá flugu í höfuðið að halda lands- byggðartónleika með gömlum ís- lenskum sönglögum, lögum eftir Sigvalda Kaldalóns, Atla Heimi og fleiri af sama kaliberi. „Við útsettum þetta fyrir djass- kvintett í rauninni; kvartett plús söngkonu. Í raun gera allir þetta með sínu nefi, ég er ekkert að stel- ast til þess að vera klassískur gít- arleikari, enda kann ég það ekki, og Ingibjörg er ekkert að stelast til þess að vera djasssöngkona,“ segir Ómar. Tónleikarnir voru mjög vel heppnaðir, að mati systkinanna, og þau skemmtu sér gríðarvel. Við- tökur áheyrenda hafi gert þeim ljóst að þetta virkaði vel og þau hafi upp úr því ráðist í plötugerð, fengið Matthías og Tómas í lið með sér og útsett með sínu nefi eða nefjum. Æðisgengnar melódíur Hvernig voru lögin valin? „Ætli við höfum ekki samtals verið búin að prófa 15-16 lög,“ svar- ar Ómar. Lögin 12 sem urðu fyrir valinu voru valin með það í huga hvað yrði auðvelt fyrir sveitina að vinna með. „Við fundum eitthvað í þeim, æðisgengnar melódíur. Síðan eru þrjú lög eftir okkur bræður,“ segir Ómar, lög sem þeim fannst passa í lagasafnið. Ljósmyndirnar í plötubæklingnum tók Gunnar Svan- berg Skúlason af Ómari, Óskari og Ingibjörgu í gömlu og virðulegu húsi í Þingholtunum. „Okkur fannst henta lögunum að gera þetta svart- hvítt og virðulegt.“ Útgáfutónleikar Ó Ó Ingibjargar verða haldnir í kvöld, 9. desember, í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, kl. 20. Miðasala fer fram í húsinu og á vef Salarins og er miðaverð 2.000 kr. Ýtt saman í fjöl- skylduboðum Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Systkini Ingibjörg, Óskar og Ómar Guðjónsbörn í svarthvítu. Vefsíða Salarins www.salurinn.is Ljósmynd/Gunnar Svanberg Skúlason / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA eeee KVIKMYNDIR.IS SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í KRINGLUNNI eeeee - LIB, TOPP5.IS eeee - S.V, MBL WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á SAMBÍÓIN - EINA SÝND Í ÁLFABAKKA 600 kr. Miðaverð SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI AMERICAN GANGSTER kl. 5:30 - 8:30 B.i.16.ára AMERICAN GANGSTER kl. 2 - 5:30 - 8:30 B.i.16.ára LÚXUS VIP 30 DAYS OF NIGHT kl. 10:30 B.i.16.ára ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 LEYFÐ STARDUST kl. 1:20 B.i.10.ára JÓLAMYNDIN Í ÁR NÝ ÍSLENSK ÆVINTÝRAMYND EFTIR ARA KRISTINSSON SEM GERÐI M.A. STIKKFRÍ. KALLI ER SENDUR Á AFSKEKKTAN SVEITA- BÆ TIL AÐ EYÐA JÓLUNUM MEÐ PABBA SÍNUM ÞAR SEM HANN VILLIST, LENDIR Í SNJÓBYL OG HITTIR FYRIR BÆÐI ÍSBJÖRN OG DULARFULLAR VERUR OFL! JÓLAMYNDIN 2007 SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB BEE MOVIE m/ensku tali kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 2D - 4D - 6D LEYFÐ DUGGHOLUFÓLIÐ kl. 2 - 4 - 6 - 8 B.i. 7.ára BEOWULF kl. 8D - 10:30D B.i.12.ára 3D-DIGITAL SYDNEY WHITE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 12D - 1:30D - 3:30D - 6D LEYFÐ DIGITAL BEE MOVIE m/ensku tali kl. 8D - 10:10D LEYFÐ DIGITAL BEOWULF kl. 5:30 3D - 8 3D - 10:30 3D B.i. 12 ára 3D-DIGITAL AMERICAN GANGSTER kl. 6 - 9 B.i. 16 ára ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:50 LEYFÐ ATH. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.