Morgunblaðið - 09.12.2007, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 09.12.2007, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 27 Ö ndvert við næstum alla sem koma í fjölmiðla- viðtöl þessa dagana þá gæti ég seint haldið því fram með sannfæringu að ég væri mikið „jólabarn“, eins og það er jafnan kallað. Það helgast ekki af því að ég eigi slæmar minn- ingar um jól í æsku minni. Öðru nær. En einhvern veginn veldur koma þeirra mér ekki þeim óskaplega fiðr- ingi og sælu, sem greina má í yfirlýs- ingum alvörujólabarna. Undanfarna daga hef ég verið að velta fyrir mér hverju þetta sæti. Það fyrsta sem kemur upp í hugann af minningum frá aðfangadögum bernskunnar er að við fórum í mat til ömmu og afa á Smáragötu. Áður en við ókum þangað þurfti að fara í bað og klæða sig upp á og opna jóla- pakka heimilisins, því af einhverjum ástæðum tókum við þá ekki með okkur í fjölskylduboðið á Smáragöt- unni. Í minningunni þurfti að hafa hrað- ar hendur til að ná þessu áður en brottfarartíminn rann upp. Það voru allmargir pakkar undir trénu og ekki man ég annað en innihald þeirra hafi jafnan kveikt heilmikla gleði. Hins vegar var lítill tími til að njóta þess því við vorum á leiðinni burt. Hjá ömmu og afa var góður matur og ís og niðursoðnir ávextir á eftir. Þar var frændfólkið mætt og þar á meðal krakkar á svipuðu reki. Amma átti jólasveinagrímu og bún- ing og hún eða einhver annar setti þetta upp þegar borðhaldinu var lok- ið eftir að því er virtist átján klukku- stundir. Þá tóku pakkarnir að streyma að boðsgestunum, einn af öðrum og ég fékk auðvitað minn skammt og allt var þetta hið notalegasta. Skrjáf í skræpóttum pappír, kímið tíst og stöku hlátrasköll. Er á leið kvöldið settist mamma við gamla ameríska píanóið og fullorðna fólkið söng nokkra sálma með seinni kaffiboll- anum. Ég man að fallega skæra röddin hennar Gunnu frænku heyrðist greinilega í Heims um ból alla leið þangað sem við krakkarnir vorum búin að hreiðra um okkur, í Norður- herberginu eða í gömlu súðarher- bergjunum á háaloftinu. Þar nutu sín nú glansandi bílar og skrautklæddar dúkkur auk bóka og annarra gulla, en sparifötin okkar örlítið farin að velkjast eftir margar skreppur undir borð og stóla, inn í skápa og bak við hillur í feluleik eða öðrum mikilvægum erindagjörðum. Loks var ekið heimleiðis um óvenjukyrrar götur með blikandi stjörnur bæði á himni og snævi þak- inni jörð og síðan lagst til svefns undir ilmandi hreinni sæng, helst með úrval úr jólagjafaflórunni með sér. Það gat að vísu verið strembið. Eina nóttina svaf ég með tekkbrún skíði við hliðina á mér í rúminu og vaknaði flæktur í bindingarnar um morguninn og með trébragð í munn- inum. Þegar ég rifja þetta upp skil ég svo sem enn síður en áður hvers vegna mér dytti aldrei í hug að kalla mig „jólabarn“. Ég verð bara að sætta mig það. Ég óska okkur öllum gleðilegra jóla. Jólabarn eða ekki jólabarn – þarna er efinn HUGSAÐ UPPHÁTT Sveinbjörn I. Baldvinsson www.oryggi.is Hringdu í 570 2400 og fáðu öryggi í áskrift! T B W A \R E Y K JA V ÍK \ S ÍA Þrír mánuðir ókeypis. Prófaðu núna! • Heimaöryggi felur í sér innbrotsvörn, næturgæslu, brunaviðvörun og vatnsviðvörun • Engin krafa er gerð um framhaldsviðskipti, gríptu því tækifærið núna! • Tilboðið gildir til 24. desember • Í boði á þeim þéttbýlisstöðum landsins þar sem Öryggismiðstöðin hefur þjónustuaðila og sinnir útkallsþjónustu Þú vilt ekki hvaða jólasvein sem er inn um gluggann hjá þér! JÓLATILBOÐ á Heimaöryggi Hver vakta r þitt heimil i? Opið í dag kl. 13-18 Laugavegi 53 • Sími 552 3737 Opið virka daga 10-18
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.