Morgunblaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Agnar GrétarTryggvason
fæddist í Reykjavík
23. júní 1927. Hann
lést á Landspítal-
anum 9. nóvember
síðastliðinn. Hann
var sonur hjónanna
Tryggva Siggeirs-
sonar og Láru Guð-
laugsdóttur, Smiðju-
stíg 4 í Reykjavík.
Agnar átti eina syst-
ur, Helgu, f. 19. júlí
1920, d. 11. apríl
2003.
Agnar kvæntist 1949 Láru Þor-
steinsdóttur, f. 10. jan. 1929. Þau
eignuðust fjögur börn, þau eru: 1)
Sverrir, kvæntur Niven Shalaby,
hann á tvo syni frá fyrra hjóna-
bandi, a) Jóhannes, hann á eina
dóttur, Maríu, og b) Ómar. Einnig
á Sverrir tvö fósturbörn. 2) Edda
Helga, gift Jóni Magnússyni, þau
eiga tvær dætur, a) Kolbrúnu,
gifta Hlyni Hreinssyni og eiga þau
þrjá drengi, Jón
Inga, Hafstein og
Emil, og b) Helgu,
gifta Þorgeiri
Magnússyni og eiga
þau tvö börn, Magn-
ús Ingvar og Eddu
Helgu. 3) Tryggvi
Þór, kvæntur Erlu
Valtýsdóttur og
eiga þau tvær dæt-
ur, a) Elísabetu
Láru, á hún þrjú
börn, Brynju Sól,
Aþenu Mareyju og
Viktor Smára, og b)
Katrínu Guðrúnu. 4) Lára Guð-
rún, gift Kristjáni Sigurðssyni og
eiga þau þrjú börn, Sigurð Orra,
Láru og Agnesi Björgu.
Agnar fór mjög ungur á sjóinn,
fyrst á varðskipunum og hjá Eim-
skip. Lengst af vann Agnar hjá
Áburðarverksmiðju ríkisins í
Gufunesi.
Útför Agnars fór fram í kyrr-
þey að ósk hins látna.
Ég ætla hér að minnast föður míns
Agnars Grétars Tryggvasonar, í fá-
einum orðum. Pabbi var fæddur og
uppalinn í miðbæ Reykjavíkur og bjó
við Smiðjustíg 4 ásamt foreldrum sín-
um og systur, Helgu, þar til að hann
ungur fór á sjóinn. Pabbi kynntist
mömmu á Akureyri og giftu þau sig 3.
júlí 1949 og settust að í Reykjavík.
Þau bjuggu á Smiðjustíg 4, Lauga-
vegi 19 og síðar á Njálsgötu 59 þar
sem ég man fyrst eftir mér. Þar sem
ég er yngst í systkinahópnum man ég
bara eftir að pabbi hafi unnið í Áburð-
arverksmiðjunni þar sem hann starf-
aði í næstum 40 ár og fékk ég stund-
um að fara með honum þangað um
helgar ef á þurfti að halda. Á þeim
tíma var Áburðarverksmiðjan uppi í
sveit. Pabbi tók mikinn þátt í heim-
ilishaldinu og var ekki óvenjulegt að
vakna á laugardagsmorgnum við að
hann var að skúra gólfin eða taka til.
Uppvaskið var líka alltaf hans. Ófáar
ferðirnar voru farnar um helgar aust-
ur fyrir fjall, í Hveragerði að skoða
apana, á Selfoss eða Þingvallahring-
inn. Þá var öll fjölskyldan sett í litlu
Volkswagen-bjölluna og keyrt af stað.
Minn staður var fyrir aftan aftursæt-
ið. Pabbi og mamma ferðuðust mikið
til sólarlanda síðustu ár og fannst
þeim notalegt að stytta veturinn með
því móti. Eftir að pabbi hætti að vinna
fóru þau að fara í sund á morgnana og
varð það fastur punktur í þeirra lífi að
mæta kl. 7 á morgnana á virkum dög-
um í Sundhöllina. Síðastliðið sumar
hélt pabbi upp á 80 ára afmælið sitt og
gerði það með pomp og prakt og var
það mjög vel heppnað en þá var hann
orðinn veikur. Hann var lagður inn á
Landspítalann til að fara í rannsókn
um miðjan september, veiktist þar og
lést eftir 7 vikna legu. Pabbi hafði
mjög sterkar skoðanir á hlutunum og
lá ekki á þeim. Hann var einnig hrók-
ur alls fagnaðar ef eitthvað var um að
vera og hafði gaman af að skemmta
sér. Pabbi lést hinn 9. nóvember sl. og
var kvaddur í kyrrþey hinn 14. nóv-
ember eins og hann vildi hafa það. Ég
kveð hann með söknuði og þakklæti
fyrir allar góðar stundir og vona að
honum líði vel þar sem hann er núna.
Blessuð sé minning hans.
Lára Guðrún Agnarsdóttir.
Elsku afi minn. Nú hefur þú kvatt
þennan heim og ert kominn á stað þar
sem þér líður betur. Ég á svo margar
góðar minningar um þig afi minn,
mjúka englahárið sem ég fékk alltaf
að strjúka þegar ég kom í heimsókn
til þín og var svo heppin að fá að
klippa aðeins viku áður en þú fórst á
spítalann og þegar þú kallaðir mig
prinsessuna þína, mér leið alltaf vel
hjá þér. Húmorinn þinn var einstakur
og alls ekki fyrir alla en ég skildi þig
afi, meira en þig grunaði.
Ég átti margar góðar minningar
frá Smiðjustígnum og fannst alltaf
gott að koma heim til þín og ömmu,
borðstofuborðið var miðdepillinn og
þar sátum við og gæddum okkur á
vöfflunum hennar ömmu og kexinu
góða og svo eftir smástund varstu
staðinn upp og byrjaður að taka af
borðinu til að geta vaskað upp.
Mér þykir svo vænt um að hafa get-
að verið hjá þér daginn áður en þú
fórst frá okkur og að geta horft í aug-
un þín og sagt þér hversu mikið ég
elska þig, þú horfðir á mig með ein-
beitingu en gast ekki sagt neitt, en ég
veit að þú heyrðir til mín afi minn.
Elsku amma Lára, innilegar sam-
úðarkveðjur frá mér og börnunum.
Elísabet Lára og börn.
Burt er genginn kær frændi og
góður vinur Agnar Grétar Tryggva-
son Við vorum bræðrasynir og öll
okkar barna- og unglingsár ólumst
við upp á sömu torfunni í miðbæ
Reykjavíkur sem afmarkaðist af
Laugavegi – Smiðjustíg og Hverfis-
götu.
Það var að vísu engin tilviljun því
að afi okkar, Siggeir Torfason, reisti
um aldamótin 1900 verslunar- og slát-
urhús að Laugavegi 13 þar sem hann
rak umfangsmikla sveitaverslun um
áratuga skeið. Þar var allt á sama
stað, verslun, sláturhús og heimili afa
og ömmu Helgu Vigfúsdóttur. Heim-
ili afa og ömmu var í okkar ungdæmi
samkomustaður fjölskyldunnar jafnt
við lítil sem stór tækifæri.
Minnisstæðar eru stórveislur á jól-
um þar sem gleðin ríkti og marg-
radda söngur hljómaði um húsið. Að
þeim látnum héldu slíkar jólaveislur
áfram hjá skyldfólki okkar um all-
langt skeið.
Ættir afa Siggeirs eru héðan úr
Reykjavík en hann var sonur Torfa
Þorgrímssonar prentara sem bjó
neðst á Skólavörðustíg. Agnar Grét-
ar, sem hér er kvaddur, var Reykvík-
ingur í föðurætt í fimmta ættlið.
Amma Helga var ættuð úr Suður-
Þingeyjarsýslu, dóttir Vigfúsar Krist-
jánssonar trésmiðs og Jakobínu Niel-
sen. Leiðir þeirra ömmu og afa okkar
lágu saman á menningar-og myndar-
heimilinu í Húsinu á Eyrarbakka þar
sem húsfreyja var Sylvía Thorgrims-
en móðursystir ömmu okkar, en þar
var þá fyrir afi okkar Siggeir, bók-
haldari við Lefoliiverslun.
Þau voru tvö systkinin Agnar og
Helga sem var sjö árum eldri. Mikið
ástríki var milli þeirra systkina, og
barna þeirra Agnars Grétars og
Láru, en bróðurbörnin voru auga-
steinar Helgu. Ekki skorti heldur á
væntumþykju barnanna og hlýhug til
Helgu, en þau bjuggu lengst af í sama
húsi við Smiðjustíg 4 í Reykjavík.
Agnar Grétar lagði fyrstu starfsár
sín fyrir sig sjómennsku. Fyrst á
skipum Landhelgisgæslunnar og síð-
ar Eimskipafélagsins í millilandasigl-
ingum. Hins vegar varð ævistarf hans
hjá Áburðarverksmiðju ríkisins. Það
var alveg sama hvar hann starfaði,
alls staðar reyndist hann vel og var
eftirsóttur á vinnustað. Í kringum
hann söfnuðust góðir félagar sem
hann ræktaði í hvívetna.
Nú er frændi minn allur og leiðir
okkar liggja ekki framar saman í
þessu lífi. Skoðanir hans voru stað-
fastar og réttsýnar. Sannleikur, heið-
arleiki og réttlætiskennd var honum í
blóð borið og greypt í staðfasta lífssýn
hans. Ekki þarf nema minnast á
hversu staðfesta hans var einlæg og
mikil þegar tal okkar barst að stjórn-
málum, og fáa hef ég þekkt sem höfðu
jafnbjargfasta trú á stefnu Sjálfstæð-
isflokksins og Agnar Grétar hafði.
Agnar var einstaklega hreinskipt-
inn og talaði tæpitungulaust. Hann
var gæddur ríkulegu skopskyni, var
afar skemmtilegur og glöggur að sjá
hið spaugilega í kringum sig, þó aldrei
á annarra kostnað. Hann var árinu
yngri en ég, og við höfum verið sam-
ferða allt okkar líf, alltaf vitað hvor af
öðrum. Allt skilur það eftir sig ljúfar
og góðar minningar um þennan látna
frænda minn og vin.
Mesta gæfa Agnars í lífinu var
hans trausta og góða eiginkona, Lára
Þorsteinsdóttir. Þau eignuðust fjögur
mannvænleg börn, öll til fyrirmyndar
og mynda ásamt tengdabörnum og
barnabörnunum samhenta og góða
fjölskyldu. Hann naut sín vel á 80 ára
afmæli sínu á Jónsmessunni síðast-
liðið sumar, með fjölskyldu sína alla í
kringum sig sem lagði sig fram um að
gera honum daginn sem eftirminni-
legastan. Þar lagðist allt á eitt og sólin
skein sínu fegursta og afmælisbarnið
naut sín til fulls. Þess er gott að minn-
ast.
Nú að leiðarlokum, þegar Agnar
Grétar frændi minn er kvaddur,
þökkum við samfylgdina og vinátt-
una. Við Sigríður og börnin okkar
sendum Láru og fjölskyldunni allri
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Agnars Grét-
ars Tryggvasonar.
Hjalti Geir Kristjánsson.
Fallinn er frá góður vinur minn,
Agnar Tryggvason.
Kynntumst við 1967 þegar ég byrj-
aði að vinna í Áburðarverksmiðjunni í
Gufunesi. Með okkur tókst ágætis
vinskapur sem hefur haldist alla tíð
síðan.
Eftir að Agnar lét af störfum kom
ég oft til þeirra Láru í Álakvíslina og
þáði kaffi og veitingar yfir góðu
spjalli.
Ég kveð þennan vin minn með
söknuði og sendi Láru og fjölskyldu
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Agnars
Tryggvasonar.
Grétar Júlíusson.
Agnar Grétar
Tryggvason
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
STEINUNN MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Oddsflöt
í Grunnavík,
sem andaðist mánudaginn 26. nóvember, verður
jarðsungin frá Garðakirkju á Álftanesi þriðjudaginn
11. desember kl. 13.00.
Kristbjörn H. Eydal,
Friðþór Kr. Eydal, Elín Hrefna Kristjánsdóttir,
Guðmundur Kr. Eydal, Sigríður Hróðmarsdóttir,
Halldór Páll Kr. Eydal,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SÓLVEIG JÓNASDÓTTIR
frá Húsavík,
Gullsmára 7,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju mánudaginn
10. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hinnar látnu er bent á Orgelsjóð Húsavíkurkirkju
í versluninni Esar á Húsavík, s. 464 1313.
Sigurður Haraldsson,
Bryndís Torfadóttir,
Þórunn Hulda Sigurðardóttir, Bjarni Bogason,
Ásdís Sigurðardóttir, Bjarni Ómar Reynisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
áður Háaleitisbraut 20,
sem lést 26. nóvember síðastliðinn, verður
jarðsungin frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn
11. desember kl. 15:00.
Hinrik Einarsson, Helga H. Magnúsdóttir,
Grétar Einarsson, Guðný Stefánsdóttir,
Eygló Einarsdóttir, Haukur Reynisson
Bára Einarsdóttir, Gunnar Bjarnason
Erlendur Steinar Einarsson,
Haraldur Einarsson, Gerður Kristjánsdóttir,
Jóhanna Einarsdóttir, Ársæll Ársælsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Yndislega mamma okkar, tengdamamma, amma
og langamma,
SVAVA HJALTADÓTTIR,
Borgarholtsbraut 33,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju miðviku-
daginn 12. desember og hefst athöfnin kl. 13:00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Barnauppeldissjóð Thorvaldsensfélagsins, sími
551 3509 / 898 5584.
Elsa Tryggvadóttir,
Áslaug Tryggvadóttir, Nebojsa Hadzic,
Haraldur Tryggvason, Sigrún Eiríksdóttir,
Svava Tryggvadóttir, Vilhelm Guðbjartsson,
Sigríður Tryggvadóttir, Héðinn Sveinbjörnsson,
Svava Ástudóttir, Kieran Houghton
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
FILIPPÍA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Flateyri,
sem andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, föstudaginn
30. nóvember, verður jarðsungin frá Kópavogs-
kirkju mánudaginn 10. desember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabba-
meinsfélag Íslands.
Ásbjörg Ívarsdóttir, Jón Sigurðsson,
Agnes Einarsdóttir,
Kristján Einarsson, Soffía Ingimarsdóttir,
Jóhannes Einarsson, Jóhanna Jakobsdóttir,
Reynir Einarsson, Ólöf Stefánsdóttir,
Hannes Oddsson,
barnabörn og barnabarnabörn.