Morgunblaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 26
|sunnudagur|9. 12. 2007| mbl.is
A
llir sem koma hingað fá
heitt súkkulaði og kök-
ur, svona var þetta í
sveitinni og svona er
þetta hér,“ segir Hólm-
fríður Finnbogadóttir sem ræður
ríkjum í Selinu hjá Skógræktarfélagi
Hafnarfjarðar við Kaldárselsveg, en
þar eru seld nýhöggvin jólatré gest-
um og gangandi um helgar fyrir jólin
og svo koma leikskólabörn úr bæn-
um til að velja jólatré fyrir leikskól-
ann sinn í miðjum vikum.
Ég sit einmitt núna hjá Hólmfríði,
Reyni Jóhannssyni manni hennar og
barnabarnabarni þeirra, henni Láru
Þöll Búadóttur, ásamt Árna Þórólfs-
syni, hinum fastráðna starfsmanni
skógræktarfélagsins og bíð þess að
rúta með leikskólabörnum frá leik-
skólanum Víðivöllum við Miðvang
renni í hlað. Á meðan horfi ég á
þrestina tína upp í sig smámola sem
skógræktarfólkið hefur gefið þeim.
„Það eru óvenjulega margir þrest-
ir núna, ég hugsa að þeir hafi verpt
seint í vor vegna þurrka og þetta séu
ungar sem hafi sleppt því að fljúga til
útlanda,“ segir Árni.
„Við þurfum að vera dugleg að
gefa þeim,“ segir Hólmfríður og tek-
ur í sama bili fram poka með kjöti.
Ég rek upp stór augu, varla lifa
þrestirnir á kjöti?
„Þetta er fyrir tvo hrafna sem við
gefum alltaf hér, ég fæ kjötafskurð
hjá Fjarðarkaupum handa þeim,“
segir hún til útskýringar og snarast
út með hrafnafóðrið. Það er vafa-
laust ekki unnið fyrir gýg; „Guð
launar fyrir hrafninn,“ segir einhver
staðar.
En nú heyrist vélarhljóð og rútan
kemur og það er hvorki meira né
minna en sjálfur Stúfur jólasveinn
sem henni stýrir. Börnin þyrpast út
ásamt fóstrum sínum. Þær halda
góðum skikk á krökkunum sem eru
falleg eins og vorblóm í vetrarnepj-
unni og horfa vonglöð í átt að súkku-
laðinu og smákökunum hennar
Hólmfríðar. En fyrst fara þau fylktu
liði ásamt Stúfi jólasveini og fóstrum
og velja sér jólatréð. - Síðar kemur
að súkkulaðinu og kökunum.
„Í desember í fyrra skrifuðu í
gestabókina 870 manns fram til 17.
desember,“ segir Hólmfríður stolt.
„Við hleypum fólki ekki út í skóg-
inn, við höggvum niður þau tré sem
þarf að grisja og svo getur fólk valið
úr þeim. Við seljum líka Hafnarfjarð-
arbæ tré, bæði á torgin og svo seljum
við öll trén í jólaþorpið. Við seljum
eingöngu stafafuru sem er algerlega
barrheldin, svo seljum við furugrein-
ar og köngla. Við sáum, ræktum,
setjum niður og grisjum svo, þetta
eru útivistarskógar og þannig er
unnið í þeim,“ segir hún og heldur að
mér jólaköku og smákökum.
„Krökkunum finnst líka gaman að
koma hingað á vorin en það er önnur
saga,“ bætir hún við. Hólmfríður og
maður hennar gæta langömmu-
barnsins meðan móðirin er í Listahá-
skólanum, það væsir ekki um litlu
Láru Þöll í þeirri vist. Hún fær að
fara með að velja jólatréð með
krökkunum og langafa.
„Við erum með logandi á arninum
um helgar, þetta er fimmta aðventan
sem við seljum jólatré hér í Selinu,“
segir Hólmfríður. „Þá kemur full-
orðna fólkið með börnin sín.“
Árni segir að trén sem seld eru
núna séu þetta 15 til 25 ára. „En það
þarf að stytta þau allra stærstu, en
viðskiptavinir sjá um að telgja þau til
að neðan, það þarf öflugan jólatrés-
fót fyrir stór tré.“ Árni segir mér og
þær góður fréttir tré hérlendis bindi
meira kolefni en fólk bjóst við áður.
Og nú kemur öll barnahersingin til
að fá súkkulaðið og kökurnar. Öll eru
þau fimm ára. Þau hafa fréttir að
færa. „Jólasveinninn var ekki með
bílpróf,“ segir Ragnheiður Ágústs-
dóttir. „En það gerir ekkert til, hann
statti bara upp og veifaði,“ segir Elín
Helena Karlsdóttir og horfir á mig
einlægum brúnum augum. Þetta er í
fyrsta skipti sem þessi börn koma í
svona jólaheimsókn til Skógrækt-
arfélags Hafnarfjarðar. Þau þakka
fyrir góðgerðir og skemmtilega ferð
með því að syngja hárri röddu:
Í skóginum stóð kofi einn
sat við gluggann jólasveinn
þá kom lítið héraskinn
og vildi komast inn.
Það virðist lítil hætta á að hérum
eða fólki verði úthýst í Selinu, þvert á
móti mega bæði menn og málleys-
ingjar búast þar við góðum mót-
tökum, sú er reynsla mín af þessari
skemmtilegu aðventuheimsókn í
glitrandi jólasnjónum.
Húsráðendur Þau Hólmfríður og Reynir maður hennar með Láru litlu Þöll taka á móti mörgu
fólki á aðventunni sem kaupir sér nýhöggvið jólatré og fær sér heitt súkkulaði eftir kaupin.
Jólatréð Árdís Grétarsdóttir leikskólastjóri með börnum og fóstrum með velvalið jólatréð sem
þau skreyta svo í leikskólanum sínum Víðivöllum við mikinn fögnuð allra viðstaddra.
Forsmekkur jólanna
Morgunblaðið/Frikki
Stúfur Jólasveinninn Stúfur ók rútunni og heldur hér af stað með börnunum að finna gott og fallegt jólatré.
Stúfur próflaus Ragnheiður
Ágústsdóttir t.h. segir að Stúfur
hafi ekki bílpróf en Elín Helena
Karlsdóttir t.v. segir að það geri
bara ekkert til, hann bara veifi.
Smákökur Börnin slá ekki hend-
inni á móti heitu súkkulaði og smá-
kökum, lagkökum og fleiru góðu.
Hjá Skógræktarfélagi
Hafnarfjarðar var mik-
ið um að vera þegar
Guðrún Guðlaugs-
dóttir hitti Hólmfríði
Finnbogadóttur um
leið og 5 ára börn frá
leikskólanum Víðivöll-
um voru þar að velja
sér jólatré.
gudrun@mbl.is
daglegtlíf
Síldarsaga Íslendinga er komin
út í 3 bindum. Einn höfundanna,
Jakob Jakobsson, hefur sér-
stakt dálæti á síldinni. »30
gull íslands
Tawny Kitaen, sem sló í gegn í
myndböndum Whitesnake er
hún var gift David Coverdale og
lék á móti Tom Hanks. »42
hvað varð um...
Friðþór Eydal hefur viðað að sér
ógrynni gagna og mynda um
Keflavíkurstöðina frá 1942 til
1951 og gefið út á bók. »32
stöðin í keflavík
Skáld-Rósa á streng í íslensku
þjóðinni. Gísli H. Kolbeins hefur
skráð sögu ljósmóðurinnar með
skáldgáfuna. »34
skáldkona
Fjórar litlar grínsýningar Ladda
eru orðnar 80, uppselt hefur
verið á þær allar og meistari
grínsins er í fullu fjöri. »28
stanslaust grín