Morgunblaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Á VORDÖGUM fór ég og fjárfesti í
nýrri tölvu. Ég ákvað að kaupa mér
Apple-tölvu því af auglýsingunum að
dæma og starfsfólki verslunarinnar
átti ég ekki von á öðru en að þar
myndi ég ekki einungis fá frábæra
tölvu á góðu verði heldur einnig fyr-
irtaks þjónustu og einfaldar lausnir
á öllum tölvuvandamálum mínum
sem hingað til höfðu þó ekki verið
stórvægileg. Í kjölfarið ákvað
tengdafaðir minn að fjárfesta í slík-
um grip enda hélt ég ekki vatni yfir
öllu því fagra sem mér var lofað þeg-
ar kaupin voru fest.
Til samans höfum við tengdafaðir
minn eytt um 450.000 krónum í tölv-
ur og búnað frá Apple og að auki um
40.000 krónum í hugbúnað sem þörf
var á.
Skömmu eftir að síðari tölvan var
keypt byrjuðu þó að koma upp ýmis
vandamál í samskiptum okkar við
Apple-búðina.
Þar sem aðra tölvuna átti einnig
að nota við vinnu og þurfti að bæta
við ákveðnu bókhaldsforriti sem ein-
ungis virkar í Windows-umhverfi
reyndist nauðsynlegt að fara og
kaupa forrit erkióvinarins og setja í
tölvuna. Til þess að koma Windows
inn í fallegu Apple-tölvuna þurfti að
ná í eitt forrit af netinu og reyndist
það okkur ekki beint mjög auðvelt.
Þegar ég hringdi í Apple-umboðið til
þess að fá hjálp voru mér gefin þau
svör að forritið væri einhvers staðar
á síðunni og ef ég fyndi það ekki þar
þá væri það á erlendu heimasíðunni.
Til að gera langa sögu stutta fannst
forritið hvergi og þá fékk ég þau
svör að ég yrði bara að leita betur.
Sem ég og gerði en fann ekkert.
Næsta skref var því að kaupa for-
rit hjá Apple sem átti að gera svip-
aða hluti og fyrra forritið og því var
eytt meiri peningum í Apple-búðinni
í þeirri von að loksins myndi tölvan
fara að gegna sínu tilætlaða hlut-
verki.
Þegar heim var komið og bækl-
ingurinn hafði verið lesinn urðum
við tengdafaðir minn að sætta okkur
við að það verk að koma forritinu
fyrir í tölvunni yrði að vera í höndum
mágs míns þar sem hann hafði ívið
meiri tölvuþekkingu en við. Þegar
mágur minn komst í það verk að
setja forritið í tölvuna kom í ljós að
umbúðirnar, sem rifnar höfðu verið
utan af forritinu í æsingnum við að
koma tölvunni í gagnið, gegndu
stærra hlutverki en að hlífa leiðbein-
ingarbæklingum. Leyndist þar utan
á lykilorðið að sjálfu forritinu. Og
það var komið eitthvert lengst út á
hauga.
Við fórum því álútir niður í Apple-
búð til að segja þeim frá raunum
okkar en þegar þangað var komið
var viðmót starfsfólks Apple-
búðarinnar ansi súrt. Ekki nóg með
að það væri okkur að kenna að lyk-
ilorðið væri týnt, sem við höfðum nú
þegar fyllilega gert okkur grein fyr-
ir, þá væri hreinlega bara ekkert
hægt að gera í stöðunni. Við gætum
jú keypt nýtt forrit eða ef við værum
tilbúnir að borga fyrir símtöl og
tímavinnu starfsmanna væri hægt
að senda diskinn út til þess að reyna
að fá nýtt lykilorð en það tæki lang-
an, langan tíma eins og þau orðuðu
það.
Og hingað er ég kominn. Frekar
sár út í starfsmennina fimm sem
höfðu ekkert að gera í afgreiðslunni í
dag á meðan mér var bent á að rukk-
að yrði fyrir tímavinnu og símtals-
kostnað við það að reyna að ná í lyk-
ilorðið. Frekar sár út í
þjónustustýruna sem sagði að þetta
tæki reyndar langan, langan tíma og
hafði greinilega engan áhuga á að
finna lausn á vandamáli okkar. Og
það sem verst er er að ég er frekar
sár út í sjálfan mig fyrir að trúa á
fögur loforð Apple-búðarinnar um
betra og einfaldara tölvulíf.
Viktor Ellertsson,
nemandi í Reykjavík.
Apple – þar sem einblínt er á
vandamálin en ekki lausnirnar
Frá Viktori Ellertssyni:
Vorum að fá í sölu stórglæsilega neðri
sérhæð í 3-býlishúsi við Háteigsveg. Um er
að ræða eitt af þessum gömlu virðulegu
húsum í nágrenni Miklatúns. Hæðin skiptist
m.a. í mjög rúmgott hol, stofu, borðstofu,
eldhús, baðherbergi og tvö þrjú herbergi.
Hæðin hefur öll verið standsett á vandaðan
og smekklegan hátt m.a. eldhús,
baðherbergi, gólfefni, innréttingar, tæki og
fleira.
Verð 47,5 millj.
HÁTEIGSVEGUR - STÓRGLÆSILEG 5 HERB.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111