Morgunblaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 36
myndlist
36 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Blessaður vertu, þetta gekkeins og í sögu. Það varsumarfæri, hvergi hálku-blettur,“ segir Óli G. Jó-
hannsson þegar fundum okkar ber
saman í Studio Stafni hjá Viktori
Smára Sæmundssyni forverði í Ing-
ólfsstrætinu þetta eftirmiðdegi.
Listmálarinn var að koma frá Akur-
eyri, þar sem hann býr og starfar,
og er á leið til New York, þar sem
opnuð verður einkasýning á verkum
hans í Opera-galleríinu 1. maí næst-
komandi.
„Ég ætla aðeins að líta á veggina
þarna úti en þeir hafa beðið um stór
verk. Ætli ég verði ekki með á bilinu
20 til 25 ný málverk. Ég er reyndar
ekki búinn með þau öll, þannig að
það er betra að láta hendur standa
fram úr ermum,“ segir Óli og glottir
þessu kumpánlega eyfirska glotti.
Varla þarf að taka fram að hér er
um stórt tækifæri fyrir hann að
ræða. Það er ekki á hverjum degi að
íslenskir listamenn halda einkasýn-
ingu í New York. „Ég get ekki neit-
að því að ég er spenntur. Það verður
gaman að sjá hvernig viðtökur mað-
ur fær í henni Ameríku.“
Sýning í Studio Stafni
Vilji menn kynna sér hvað Óli er
að fást við um þessar mundir er
þeim bent á sýningu sem hann opn-
aði á föstudag í Studio Stafni. Þar
hanga uppi fjögur stór málverk á
striga og nokkrar litaðar teikningar,
eins og Óli og Viktor koma sér sam-
an um að kalla smærri verkin. Hér
er bara um „snöggt bað“ að ræða en
sýningunni lýkur um næstu helgi.
Þess má geta að Viktor Smári og
menn honum tengdir eru með fullt
umboð fyrir verk Óla á Íslandi. List-
málarinn kveðst alltaf hafa verið
heppinn með eftirspurn hér heima
en neitar því ekki aðspurður að verð
á verkum hans sé stígandi í kjölfar
landvinninga á erlendri grundu.
Það er í mörg horn að líta hjá Óla.
Um þessar mundir á hann verk á
tveimur samsýningum á vegum
Opera-gallerísins, annarri í Singa-
púr en hinni í Seúl. Yfirskrift beggja
sýninga er Meistaraverk samtímans
(e Masterpiece Contemporary) og
er þar blandað saman verkum goð-
sögulegra listamanna á borð við Pi-
casso, Míró, Renoir, Chagall og
Matisse og núlifandi málara frá
ýmsum löndum. Óli segir kínverska
málara, sem getið hafa sér gott orð
víða um heim á undanförnum árum
og misserum, áberandi á sýning-
unum, svo sem Liu Fei. Þá eigi
Frakkar þar nokkra fulltrúa. Norð-
urlandabúarnir eru tveir, Óli og
Erró. Sýningarnar eru sölusýningar
og er sá háttur hafður á að seljist
mynd kemur strax ný mynd eftir
viðkomandi listamann upp í staðinn.
Þegar Óli er spurður hvað margar
myndir hafi selst eftir hann þarna
eystra svarar hann fyrst með óræðu
brosi en segir svo: „Eigum við ekki
að segja að það sé drjúgt.“
Við hlið Míró og Chagall
Hlutirnir hafa gengið hratt fyrir
sig hjá Óla á þessu ári. Boltinn byrj-
aði að rúlla í upphafi þess þegar
Ingvar J. Karlsson og Guðmundur
A. Birgisson skildu bók sína um
listamanninn eftir hjá Opera-
galleríinu í Lundúnum. Í framhald-
inu var Óla boðið að halda einkasýn-
ingu í galleríinu í júní og seldust öll
verkin á sýningunni, fjórtán að tölu,
strax á opnunardaginn, líkt og
greint var frá hér í blaðinu.
Óli kveðst í fyrstu hafa verið til
reynslu hjá galleríinu en eftir við-
tökurnar á sýningunum í Lund-
únum, Seúl og Singapúr sé hann
kominn inn í hlýjuna. Nú sé Opera-
galleríið formlega orðið umboðsaðili
hans. Auk þriggja fyrrnefndra staða
hanga verk eftir hann uppi í Opera-
galleríinu í París.
„Blessaður vertu, hraðinn er svo
mikill að það er með ólíkindum,“
segir Óli þegar hann er spurður
hvort hlutirnir hafi ekki gengið
hratt fyrir sig. „Auðvitað batt ég
vonir við þetta en ég væri að
skrökva ef ég segði að mig hefði ór-
að fyrir þessum ósköpum. Þetta hef-
ur gengið vonum framar og þegar
maður sér myndirnar sínar hanga
við hliðina á Míró og Chagall veltir
maður því fyrir sér hvern andskot-
ann maður sé kominn út í. Þú afsak-
ar orðbragðið.“
Útspekúleraðir markaðsmenn
„Það eru ekki margir sem sleppa
gegnum nálaraugað hjá Opera-
galleríinu og það er fyrst þegar
maður er kominn inn fyrir þröskuld-
inn að það byrjar að hnoðast utan á
þetta,“ heldur Óli áfram. „Það er
ekki á hverjum degi að íslenskur
málari fær svona tækifæri en þeir
hjá Opera-galleríinu eru útspekúler-
aðir markaðsfræðingar. Það er því
eins gott að halda haus og standa
sig.“
Þegar Óli er spurður hvort hann
finni fyrir pressunni svarar hann því
játandi en bætir svo við: „En sem
betur fer hef ég alltaf unnið best
undir pressu.“
Það er vitaskuld tómt mál að tala
við listamenn um peninga en Óli er
eigi að síður spurður hvort hann sé
ekki farinn að hafa eitthvað upp úr
þessu. „Þú segir nokkuð,“ segir
hann og eyfirska glottið er aftur
komið á sinn stað. „Jú, jú, vissulega
Ég er ekki peningamaður – ég er
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Málarinn „Þetta hefur gengið vonum framar og þegar maður sér myndirnar sínar hanga við hliðina á Míró og
Chagall veltir maður því fyrir sér hvern andskotann maður sé kominn út í,“ segir Óli G. Jóhannsson.
New York, Singapúr, Seúl, Lundúnir. Málverk Óla
G. Jóhannssonar gera víðreist um þessar mundir
eftir að hann komst á mála hjá Opera-galleríinu.
Orri Páll Ormarsson ræddi við listamanninn um
þessa hröðu breytingu á hans högum.
„Það er mjög góður árangur hjá þessum sjálfmenntaða listamanni frá Ak-
ureyri að vera kominn inn fyrir dyr hjá þessu umsvifamikla galleríi, Opera,
sem er þekkt fyrir að leggja rækt við listamenn sem þykja söluvænlegir.
Það er alveg óhætt að nota orðið ævintýri í þessu sambandi,“ segir Að-
alsteinn Ingólfsson listfræðingur um samstarf Óla G. Jóhannssonar og
Opera-gallerísins. „Þetta eru mjög duglegir sölumenn sem vilja frá mikla
framleiðslu frá sínum listamönnum en gera vel við þá á móti. Ég sé ekki
betur en þetta mali báðum gull.“
Aðalsteinn þekkir ekki mikið til Opera-gallerísins sjálfur en segir lista
þeirra listamanna sem þar eru á mála segja sína sögu. „Það eru mörg stór
nöfn þarna og svo á galleríið talsvert af verkum eftir gamla meistara sem
fallnir eru frá. Óli er í prýðilegum félagsskap.“
Aðalsteinn segir nokkuð mikla breidd í hópnum en Opera-galleríið virð-
ist leggja mesta áherslu á traust og hefðbundið en þó nútímalegt málverk.
Þess má geta að sá sem nú sýnir í Opera-galleríinu í New York, þar sem Óli
opnar sýningu í maí á næsta ári, er popplistamaðurinn Ron English. „Það
verður gaman að sjá hvernig Óla verður tekið þar,“ segir Aðalsteinn.
Malar báðum gull
Shadow Light
Design by Tord Boontje
LÆKJARGATA 2a SÍMI 511-5001 OPIÐ 9-22 ALLA DAGA