Morgunblaðið - 09.12.2007, Page 37
hef ég eitthvað upp úr þessu. Ég get
ekki neitað því. Annars verður þú að
spyrja eiginkonuna um það. Hún sér
um fjármálin. Ég er enginn peninga-
maður – ég er hugsjónamaður.“
Enda þótt hér sé talað með óræð-
um hætti er það ákveðin vísbending
um breytinguna á högum þeirra
hjóna að eiginkona Óla, Lilja Sigurð-
ardóttir, hefur sagt starfi sínu lausu
á Akureyri til að geta ferðast með
bónda sínum um heiminn – og haldið
utan um budduna.
Opera-galleríið færir hratt út kví-
arnar. Þegar eru rekin gallerí í
Lundúnum, París, New York,
Miami, Feneyjum, Hong Kong, Seúl
og Singapúr. Í vor verður svo opnað
nýtt útibú í Monte Carlo og í kjölfar-
ið í Peking, Bombay og Dubai. Að-
spurður hvort hann muni sýna á
þessum stöðum í bráð segir Óli það
óákveðið. Þó hafi verið ámálgað við
hann að hann leggi til verk fyrir
opnunina í Monte Carlo.
Bók á ensku og frönsku
Um þessar mundir er í vinnslu
bók um list Óla, Chessboard Of My
Life eða Taflborð lífs míns, sem
koma mun út á ensku, frönsku og
jafnvel kínversku á næsta ári. Höf-
undar texta eru Jean-David Malat
hjá Opera-galleríinu í Lundúnum og
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur.
Útgerð Óla G. er orðin mikil og
við þau skilyrði veitir ekki af að hafa
góða vinnuaðstöðu. Hana hefur mál-
arinn, 100 fermetra rými með mikilli
lofthæð á hæðinni fyrir ofan Lista-
safn Akureyrar. „Þessa aðstöðu hef-
ur Akureyrarbær skaffað mér og
eiga bæjaryfirvöld heiður skilinn
fyrir að koma með þessum hætti upp
að hliðinni á mér. Það er nauðsyn-
legt að umhverfið sé gott því það er
alltaf hægt að sækja í sollinn og has-
arinn.“
Óli segir gott að finna velvilja frá
þeim sem ráða og það sé engin til-
viljun að listalífið á Akureyri styrk-
ist ár frá ári. „Grunnurinn er auðvit-
að Myndlistarskólinn en þaðan hefur
komið breiðfylking myndlistarfólks
sem setur í dag sterkan svip á listalíf
landsins. Óvenju margir málarar.“
Kaupir kartöflugeymsluna
Sjálfur lætur Óli ekki sitt eftir
liggja við uppbyggingu listarinnar
nyrðra en hann hefur fest kaup á
gömlu kartöflugeymslunni ofarlega í
listagilinu af arkitektastofunni Koll-
gátu og mun opna þar listhúsið
Festarklett á næsta ári. „Mér fannst
að það þyrfti að loka listagilinu að
ofan og þegar ég varð þess áskynja
að gamla kartöflugeymslan væri til
sölu stökk ég á þetta og fæ hús-
næðið afhent í janúar,“ segir Óli en
Festarklettur er nafn á klöppum við
Gásir og Kaupang, þar sem land-
námsmenn bundu skipin á sinni tíð.
Unnið er að nýju deiliskipulagi
fyrir svæðið ofan kartöflugeymsl-
unnar og vonast Óli til að fá að reisa
þar lítið hús til sýningahalds. „Ég
er þegar búinn að fá þá Kollgátu-
menn til að teikna þetta fyrir mig
og finna því stað. Við sjáum svo
hvað setur.“
Enda þótt Óli sé Akureyringur
fram í fingurgóma er ómetanlegt
fyrir listmálara að skipta annað
veifið um umhverfi. „Uppgötva nýja
liti og nýja birtu,“ eins og hann
kemst að orði. Hann segir ýmsa
glugga vera að opnast hvað það
varðar. „Ég fékk nýverið boð um að
vinna á grafíkverkstæði í Frakk-
landi og það er greinilegt að það er
mér til framdráttar að vera orðinn
málaliði hjá Opera-galleríinu.“
Sú staðreynd þýðir þó að hann
getur ekki lengur sýnt hvar sem er.
„Þar sem Opera-galleríið er með
starfsemi má ég ekki sýna hjá öðr-
um. Þannig þurfti ég á dögunum af
afþakka boð frá Montreal og New
York. En ég hef frítt spil á Norð-
urlöndunum og í Þýskalandi.“
Já, hálkan er ekki að tefja okkar
mann í seinni tíð. Það er sumarfæri.
hugsjónamaður
orri@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 37
www.rumfatalagerinn.is
Jólasveinarnir versla
í Rúmfatalagernum!
GLIMMERLJÓS
Flott ljós með glimmeri.
TUSKUDÝR
Mjúk tuskudýr, margar gerðir.
GLIMMERPENNAR
10 stk. í pakka.
BRATZ SOKKAR
Þykkir og góðir.
JÓLASTYTTA
Sætir jólakrakkar, hæð 18 sm.
TUSKUDÝR
Krúttleg tuskudýr, nokkrar gerðir.
NÁTTFÖT
Skemmtileg búninganáttföt
fyrir stelpur og stráka.
KÓRÓNUPÚÐI
Sætur skrautpúði í herbergið.
ÞVOTTASTYKKI
Með Spiderman mynd.
JÓLABANGSI
Sætur sveinki, hæð 18 sm.
LITAKASSI
Fullur kassi af litum og fleiru.
BARNASOKKAR
Mikið úrval, margar stærðir.
JÓLASOKKAR
Mjúkir og sætir sokkar.
299,-
299,-
1 STK.
149,-
99,-
199,-
99,-
199,-
199,-
199,-
199,-
199,-
1 STK.
1 STK.
1 STK.
1 STK.
10 STK.
1 PAR
399,-
1 PAR
1.490,-