Morgunblaðið - 09.12.2007, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 43
Kitaen hefur vafið mörgum rokk-
aranum um fingur sér gegnum tíð-
ina og þegar Blender bað hana að
gefa rokkþyrstum konum ráð í
þeim efnum sagði hún: „Ég lét
David Coverdale bíða í þrjá mánuði
og Tommy Lee í fjórar vikur. Það
er stuttur tími hjá mér. Sjáðu til, ef
þú vilt krækja í þessa gaura skaltu
ekki hoppa upp í rúm til þeirra.
Konur sem láta það snemma eru
kallaðar grúppíur.“
Næsta ást í lífi Tawny Kitaen
var hafnaboltahetjan Chuck Finley
en kynni tókust með þeim snemma
á tíunda áratugnum. Þau gengu í
það heilaga 1997 og eiga saman
tvær dætur, Wynter (f. 1993) og
Raine (f. 1998). Lengi vel lék allt í
lyndi og grein um hjónin í Sports
Illustrated vakti mikla athygli árið
1999. Finley þótti hafa gert hið
ómögulega – tamið ótemjuna.
Lögbrot og líkamsárás
En ekki var allt sem sýndist.
Síðla árs 2001 var Kitaen hand-
tekin í Newport Beach, Kaliforníu,
sökuð um að hafa unnið skemmdir
á bifreið ónefndrar konu. Hún var
ekki kærð.
Nokkrum mánuðum síðar var
Kitaen tekin höndum á ný fyrir að
ganga í skrokk á Finley í bíl á leið
til heimilis þeirra í Newport Beach.
Mun hún hafa sparkað ítrekað í
hann með hælaskóm og snúið svo
heiftarlega upp á eyrað á honum að
enn sér á því. Þess má geta að
Kitaen er 170 sm á hæð en Finley
195 og þrekinn eftir því.
En hvað gerðist í raun og veru?
Kitaen gerir grein fyrir sinni hlið á
málinu í viðtalinu við Blender.
„Við vorum í bílnum og hann
byrjaði. Eina leiðin til sleppa var
að sparka í hann. Ég komst að lok-
um út úr bílnum og hringdi á
Neyðarlínuna. Átta lögreglubílar
mættu á svæðið. Þar sem ég sat í
aftursæti lögreglubílsins og hann
stóð á veröndinni birtust mér leift-
ur frá lífi okkar. Ég gerði því lítið
úr aðstæðum, hann gerði mikið úr
þeim. Því næst var ég færð í járn
fyrir framan augun á átta ára dótt-
ur minni þar sem hún stóð við hlið
föður síns. Þetta var skelfilegt.“
Kitaen var flutt á lögreglustöðina
þar sem hún notaði símtalið sitt til
að hringja í Finley. „Hann bað mig
að hringja aftur eftir tíu mínútur,
hann myndi útvega tryggingarfé.
Ég hringdi aftur en þá svaraði
hann ekki. Við töluðum ekki saman
í sex mánuði á eftir. Í fjóra sólar-
hringa var ég í 22 tíma einangrun,
engir gluggar, ekkert. Í dag skil ég
hvers vegna ég var ekki höfð með
hinum föngunum. Lögreglan vissi
að þeir myndu lemja mig í
strimla.“
Svo mörg voru þau orð.
Eitthvað hefur Finley upplifað
þetta með öðrum hætti því hann
sótti um skilnað þremur dögum eft-
ir atvikið. Hann fékk nálgunarbann
á Kitaen og tímabundið forræði yf-
ir dætrum þeirra. „Ég er smeykur
um að hún geti skaðað sjálfa sig og
aðra, meðal annarra mig og börnin
mín,“ sagði Finley fyrir dómi.
Kitaen kom fyrir dóminn nokkr-
um dögum síðar og lýsti því þar yf-
ir að ekkert væri henni mikilvæg-
ara en fjölskyldan og að hún lifði
fyrir dætur sínar. Við sama tæki-
færi viðurkenndi hún að vera háð
lyfseðilsskyldum lyfjum sem hún
hafði tekið um tveggja ára skeið
við þunglyndi og mígreni.
Kitaen var ákærð fyrir heimilis-
ofbeldi en sátt tókst í málinu gegn
því skilyrði að hún færi í áfeng-
ismeðferð og sækti námskeið í
reiðistjórnun. Þá var henni gert að
láta 500 dollara af hendi rakna til
kvennaathvarfsins á staðnum.
Kaldhæðið.
Ári síðar baðst Kitaen opin-
berlega afsökunar á framkomu
sinni í útvarpsþætti Howards
Sterns.
Eftir nokkurt hlé frá sviðsljósinu
skaut Kitaen aftur upp kollinum í
veruleikaþættinum Hið súrrealíska
líf á sjónvarpsstöðinni VH1
snemma á síðasta ári. Var þar teflt
saman hópi (fyrrverandi) frægs
fólks. Naut okkar manneskja þar
takmarkaðra vinsælda og end-
urtekin æðisköst mæltust illa fyrir
hjá þátttakendum og áhorfendum.
Ljóst var að konan var í litlu jafn-
vægi og líklega á einhverju sterk-
ara en koffeini.
Sættir og skaufastífla
Þrátt fyrir ósköpin er Finley
ennþá besti vinur Kitaen, að því er
hún upplýsir í Blender. „Eftir að
við byrjuðum að tala saman aftur
höfum við byggt upp frábært sam-
band. Ef ég er í tygjum við mann
sem getur ekki sætt sig við það að
Chuck sé hluti af lífi mínu vísa ég
þeim manni umsvifalaust á dyr.“
Hún gerir þó ekki ráð fyrir að
þau taki saman á ný. „Kynferð-
islegi þátturinn er að baki en veistu
hvað, hann hefur ekki verið í neinu
sambandi í fjögur og hálft ár.“
Þegar blaðamaðurinn spyr hvað
muni gerast þegar af því verður
svarar Kitaen: „Það verður ekki af
því. Hann hefur sagt mér það. „Ef
ég giftist aftur, giftist ég þér.“
Hann veit líka að byrji hann aftur
að slá sér upp mun ég drepa kon-
una. Svo eru börn líka besta
skaufastífla (e. cockblocker) í heimi.
Stelpurnar munu aldrei hleypa
annarri konu inn í sitt líf. Þannig
að þetta er eins og best verður á
kosið. Ég get farið út með hverjum
sem er. Hver segir svo að skilnaður
geti ekki fengið farsælan endi?“
Þessi orð voru látin falla í júní
2006 en fimm mánuðum síðar var
Kitaen ekki alveg jafn hress þegar
lögreglan ruddist inn í samkvæmi á
heimili hennar og fann fimmtán
grömm af kókaíni. Dæturnar munu
hafa verið heima þegar leitin fór
fram. Lyktir málsins urðu þær að
fallið var frá ákæru gegn því að
Kitaen færi í sex mánaða áfeng-
ismeðferð. Engum sögum fer af
okkar konu síðan en vonandi tekst
henni loksins að snúa við blaðinu.
Lífsreynd Nýleg mynd af Kitaen.
Hún hefur marga fjöruna sopið.
»Enda þótt samband Coverdale og Kitaen hafiverið ástríkt var það líka stormasamt og árið
1991 var ballið búið. Parinu varð ekki barna auðið
og hörmuðu gárungarnir það. Voru sannfærðir um
að þau hefðu orðið fjallmyndarleg – og loðin.
Fyrir veiðimanninn
í fjölskyldunni þinni
Krókhálsi 5 - Sími 517 8050
- Sportbudin.is -
Síðumúla 8 - Sími 568 8410
- Veidihornid.is -
Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760
- Veidimadurinn.is -
Munið vinsælu gjafabréfin okkar
Ron Thompson
Aquasafe vöðlupakki.
Góðar öndunarvöðlur og skór.
Fullt verð 28.990. Jólatilboð aðeins 19.995
Simms Classic Guide
Gore-tex veiðijakki.
Fullt verð 35.900. Jólatilboð aðeins 29.900.
Simms Freestone veiðijakki.
Vatnsheldur með útöndun.
Verð aðeins 19.900
Ron Thompson veiðijakki.
Vatnsheldur með útöndun.
Fullt verð 12.900. Jólatilboð aðeins 9.995.
Nýtt – NRS flotveiðivesti.
Sérhönnuð flotvesti fyrir veiðimenn.
Örugg vesti í alla veiði.
Verð aðeins 12.980.
Sage fluguveiðipakki. Fli og Launch
4ra hluta stöng í hólk. Gott LA hjól og RIO flugulína.
Lífstíðarábyrgð frá framleiðanda á stöng. Frábært
verð á alvöru fluguveiðipakka. Aðeins frá 34.900.
Veiðiflugur Íslands.
Biblía fluguhnýtarans. Bók sem allir
áhugamenn um fluguveiði verða að eiga.
Verð aðeins 3.995.
The Scandinavian Speycast.
Nýjasta myndin frá íslandsvininum Henrik
Mortensen. Jólamynd veiðimannsins í ár.
Eigum allar eldri myndirnar á DVD.
Verð aðeins 3.990.
Ron Thompson vöðlutaska.
Nauðsynleg taska fyrir alla veiðimenn
sem eiga vöðlur. Vatnsheldur botn.
Motta til að standa á þegar farið er í og úr.
Verð aðeins 3.995.
Scierra Explorer veiðitaska.
Afar vönduð og sterk veiðitaska undir
allan veiðibúnaðinn. Vatnsheldur botn.
Verð aðeins 6.995.
Infac byssuskápar.
Öruggir og traustir byssuskápar
í mörgum stærðum. Rúmgóður og
fallegur skápur fyrir 7 byssur.
Aðeins 35.900.
Atlas snjóþrúgur.
Sterkbyggðar þrúgur sem henta vel
íslenskum aðstæðum.
2 stillanlegir göngustafir og góð taska fylgir.
Verð aðeins 19.980.
Gerviandasett.
12 stokkendur; sofandi, vakandi og kafandi.
Góður bakpoki, bönd og blýsökkur fylgja.
Frábært verð. Aðeins 8.995 fyrir allt þetta.
ProLogic skotveiðijakki.
Vatnsheldur og hlýr jakki með útöndun.
Áralöng góð reynsla á Íslandi.
Verð aðeins 23.900
ProLogic
skotveiðibuxur.
Vatnsheldar og hlýjar smekkbuxur.
Áralöng góð reynsla á Íslandi.
Verð aðeins 17.900.
ProLogic Thermo
skotveiðihanskar.
Vatnsheldir og hlýir. Verð aðeins 2.995.
Einnig úr neopren. Verð aðeins 2.295.
ProLogic skór.
Vatnsheldir og hlýir skór með góðri útöndun.
3 gerðir. Bæjarins besta verð.
Aðeins frá 9.995.
Ameristep rúllubaggi.
Vinsælasta felubirgið á markaðnum.
Hvergi betra verð. Aðeins 16.880.
Vandað hreinsisett
fyrir haglabyssur.
Burstar, stöng, olía og fleira í góðum kassa.
Verð aðeins 4.880.
Simms Freestone vöðlupakki.
Góðar öndunarvöðlur og skór.
Fullt verð 32.800. Jólatilboð aðeins 25.900